Annađ
8. Febrúar 2010
VILJA GRĆĐA Á SPILAFÍKN

„Björgólfur Jóhannesson, forstjóri Icelandair, segir að það geti orðið mikill styrkur fyrir ferðaþjónustuna að fá að opna löglegt spilavíti hérlendis. Hann hafi fundið fyrir nokkrum áhuga erlendis á að slík starfsemi byðist hér á Íslandi. Þá gæti verið til mikils að vinna fyrir hið opinbera ef hægt væri að koma fjárhættuspili upp á yfirborðið á Íslandi, hafa með því strangt eftirlit og afla skatttekna þar að auki..."
Þetta mun því miður ekki vera grín. Það er í alvöru áhugi á því að opna myndarlegt spilavíti á Hótel Nordica! Einhvers staðar heyrði ég talað um Heilsuverndarstöðina gömlu sem tilvalin húsakynni fyrir spilavíti! Þetta er ekki grín þrátt fyrir að allir viti að Ísland hrundi vegna þess að landið var gert að spilavíti í öllum myndgervingum þess hugtaks. Andi spilavítisins sveif hér yfir vötnum og hafði áhrif á allt þjóðlífið í orðum og gjörðum. Ekki var nóg með að landið væri gert að vettvangi spilafíknar og hún örvuð á alla lund, heldur hefur komið á daginn að land og þjóð voru gerð að panti í spilarúlettu heimsins.
Nú segjast þau hjá Icelandair vilja opna „löglegt spilavíti" og „koma fjárhættuspili upp á yfirborðið á Íslandi".
Þetta er einhver misskilningur. Þetta yrði bara viðbót við það sem fyrir er. Hér eru starfandi spilavíti í skjóli laga. Eða hafa menn ekki gengið Skólavörðustíginn í Reykjavík nýlega, eða farið um Hlemm eða Aðalstrætið? Á öllum þessum stöðum rekur Siðfræðistofnun Háskóla Íslands og Guðfræðideildin og allar hinar deildirnar við þjóðarháskólann nokkuð sem heitir Gullnáman og er ekkert annað en svæsið spilavíti. Svo eru það náttúrlega Rauði Krossinn, SÁÁ og Landsbjörg sem að verulegu leyti eru fjármögnuð upp úr vösunum á ógæfusömum spilafíklum. Allt á okkar ábyrgð, því við viljum að öll þessi samtök séu til og dafni en látum þau afla fjármuna með þessum hætti.
Hvernig skyldu þau bregðast við hugmyndum um samkeppni á Nordica? Það er talað um útlenda kúnna. En ég spyr. Er betra að féfletta útlenda spilafíkla? Á kannski að konsentrera á ríka fíkla? Eins og þau gera í Monakó. Þangað hef ég komið einu sinni. Gat ekki beðið eftir að komast burt. Skynjaði að ég var kominn á stað þar glæpir voru normið. Ósóminn ríkisrekinn. Alla vega í skjóli laga. Og ríkið makaði krókinn. Einsog Icelandair leggur nú til.
Er ekki komið nóg af slíku á Íslandi? Eigum við ekki að fara í hina áttina? Loka Gullnámunni. Hvernig væri að taka eins og eitt seminar um það í Háskóla Íslands?
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLĆTI
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIĐ VONBRIGĐUM!
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGĐ Í MUNNINN
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓĐ KVEĐJA
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
Jón Jón Jónsson












