Annađ
31. Janúar 2010
„ŢAĐ VERĐUR EKKI FYRR EN UM ŢRJÚ LEYTIĐ..."

Ekkert jafnast á við Ísland í góðu skapi. Þannig finnst mér landið vera þegar veður er fallegt, stilla og heiðríkja. Þannig er það búið að vera um helgina á þeim slóðum þar sem við Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, fórum um , en það var sem leið liggur um landið vestanvert og norður í Skagafjörð þar sem ég var gestur á félagsfundi Vinstri grænna. Fundurinn var blanda af alvöru stjórnmálanna og ánægju að vera samvistum við félaga og vini. Ekki var verra að fundarfólkinu var boðið að hlýða á undurfagra tónlist. Helga Rós Indriðadóttir söng nokkur lög við undirleik Stefáns Gíslasonar (sjálfs stjórnanda karlakórsins Heimis). http://www.salurinn.is/default.asp?page_id=7722
Ekki spillti að tónlistin var flutt á annarri hæðinni í félagsheimilinu Miðgarði í Varmahlíð, í nýuppgerðu glerhýsi, sem tileinkað er stórsöngvaranum skagfirska, Stefáni Íslandi, en þaðan blasir við Skagafjörðurinn, Héraðsvötnin og sveitirnar og tignarleg fjöllin upp af þeim.
Klukkan átta, að loknum tæplega fjögurra klukkutíma fundi, hélt ég að við félagarnir myndum halda rakleitt heimleiðis. Svo var ekki því landbúnaðar- og sjávarútvegsráherra fýsti að fara á Þorrrablót á Hofsósi, sem við og gerðum. Því sá ég ekki eftir. Þorragestir komu með eigin mat og fengum við hann vel útilátinn úr ríkulegu trogi Hörpu Kristinsdóttur, oddvita VG á Hofsósi. Um fjögur hundruð og fimmtíu manns sóttu blótið. Þar var sungið einsog Skagfirðingum einum er lagið auk þess sem við nutum heimatilbúinna skemmtiatriða, bráðgóðra, frumsamið efni, bundið og óbundið. Eitt er víst. Meningarvísitalan er ekki á niðurleið við Skagafjörð.
Um miðnættið risum við Jón Bjarnason úr sætum okkar til að hefja heimferðina. Ég hafði orð á því við nærstaddan eftir hálftíma eða svo að ráðherrann þyrfti að kveðja marga. Viðkomandi svaraði að bragði og virtist styðjast við reynslu: „Það verður ekki fyrr en um þrjúleytið að Jón Bjarnason gengur út úr þessu húsi!"
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLĆTI
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIĐ VONBRIGĐUM!
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGĐ Í MUNNINN
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓĐ KVEĐJA
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
Jón Jón Jónsson












