Annađ
21. Janúar 2010
EKKI SÚ RÉTTVÍSI SEM BEĐIĐ ER EFTIR

Ekki reyni ég að afsaka ofbeldi og líkamsmeiðingar. Ekki gagnvart lögreglumönnum. Ekki gagnvart þingvörðum. Né neinum öðrum. Um ofbeldi gagnvart einmitt lögreglu og þingvörðum eru nokkrir einstaklingar nú bornir sökum og krafist þungra dóma. Þegar skrifstofustjórn Alþingis tók ákvörðun um kærur með kröfum um refsingar og fangelsisdóma síðastliðið haust mótmælti ég. Taldi þetta ósanngjarnt, óráðlegt, nánast heimskulegt. Við yrðum að horfa á aðstæður. Spyrja, hvers vegna allur þessi hugaræsingur og ofsi? Svörin blöstu við. Á þessum tíma var það að renna upp fyrir fólki að Ísland hafði verið svikið. Og blóðið ólgaði. Fólk greip til aðgerða sem það að jafnaði gerir ekki - og eru óafsakanlegar undir öllum venjulegum kringumstæðum.
Svo leið tíminn. Flestir héldu að málið væri dautt. Slasað fólk hefði fengið bætur. Helst ríflegar. En viti menn. Nú reis "Réttvísin" úr rekkju. Steig framúr. En ekki sú réttvísi sem beðið var eftir.
Í þjóðfélaginu er nefnilega spurt: Hvar eru sakargiftir á hendur þeim sem settu Ísland á hausinn; fjölskyldur út á gaddinn; fyrirtæki í gjaldþrot? Í þjóðfélaginu bíður enginn eftir fangelsisdómum yfir ungu fólki sem mótmælti ranglætinu. Jafnvel þótt það hafi gripið til aðgerða sem ég reyni ekki að afsaka. Og sennilega unga fólkið sjálft ekki heldur - ekki lengur - vonandi.
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLĆTI
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIĐ VONBRIGĐUM!
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGĐ Í MUNNINN
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓĐ KVEĐJA
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
Jón Jón Jónsson












