Annađ
22. Apríl 2009
ŢAKKLÁTUR LĆKNUM
Birtist í Fréttablaðinu 21.04.09.
Á stuttum ferli mínum sem heilbrigðisráðherra hef ég átt ótal fundi á heilbrigðisstofnunum, með starfsfólki og stjórnendum, með trúnaðarmönnum stéttarfélaga innan BHM, ASÍ, BSRB og Læknafélags Íslands. Ég hef hlustað eftir sjónarmiðum og komið mínum eigin á framfæri; viðrað þá skoðun að æskilegt væri að umræða um framtíðina væri eins laustengd amstrinu í augnabliki samtímans og kostur er, fjarri kjarasamningum og hagsmunatengdri baráttu enda ættum við að nálgast viðfangsefnið með langtímahagsmuni samfélagsins alls í huga. Slíkan umræðuvettvang hefði skort. En það eru ekki bara kjarasamningar og hagsmunatog sem villir sýn. Það gera kosningar líka. Auðvitað eiga stjórnmálamenn þá að gera grein fyrir stefnu sinni svo kjósendur fái glögga mynd af áherslum þeirra, t.d. hvort þeir vilji greiða götu markaðsafla eða félagslegra úrræða.
En pólitíkin lætur ekki að sér hæða. Í stað málefnalegrar umræðu er iðulega snúið út úr orðum manna og reynt að sá fræjum vafa og úlfúðar. Kjarajöfnun verður að launalækkun í munni andstæðinga. Það er skrýtin upplifun fyrir mann sem varið hefur starfsævinni í að verja launataxtakerfið og starfskjör launafólks. Frá þeirri köllun mun ég aldrei hverfa! Því miður hefur verðbólga étið upp kjörin án þess að við hafi verið ráðið í kreppunni og við skipulagsbreytingar hafa margir misst spón úr aski - því miður. Þar hef ég hvatt til varfærni og að lágtekjufólki yrði hlíft og störfin varin.
Verstar þóttu mér pólitískar útleggingar framkvæmdastjóra Læknafélags Íslands sem fóru um fréttanetin í síðustu viku: Heilbrigðisráðherrann væri mótdrægur læknum og í ofanálag rógberi sem skapaði ótta og óvssu! Tilefnið var umræða á málþingi þar sem ég sagði að skattaumhverfi og innbyggðir fjármálahvatar gætu haft áhrif á þróun heilbrigðiskerfisins. Í kjölfar yfirlýsinga framkvæmdastjórans hefur fjöldi lækna haft samband við mig til að afsaka þessi skrif, þau væru hvorki á þeirra ábyrgð né í þeim góða samstarfsanda sem samskipti okkar hefðu einkennst af. Orð eigi ekki að leggja út á verri veg en þau eru meint. Fyrir þetta er ég þessum læknum þakklátur.
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLĆTI
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIĐ VONBRIGĐUM!
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGĐ Í MUNNINN
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓĐ KVEĐJA
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
Jón Jón Jónsson












