Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

7. Desember 2008

FRAMLAG PÁLS BALDVINS BALDVINSSONAR TIL ŢJÓĐFÉLAGSUMRĆĐU

Birtist í Fréttablaðinu 06.12.08.
FB logoDanski rithöfundurinn Hans Scherfig segir í einni bóka sinna að til séu þeir sem skrifi um lífið, svo  hinir sem skrifi um þá sem skrifa um lífið. Þá megi ekki gleyma þeim sem lifa lífinu.
Páll Baldvin Baldvinsson  hefur sérhæft sig í kategóríu tvö. Hann birtist þjóðinni fyrst og fremst sem sá sem fjallar um  þá sem skrifa um lífið. Sannast sagna finnst mér oft gaman að hlusta á Pál Baldvin, til dæmis í Kilju Egils Helgasonar en sá þáttur er í uppáhaldi hjá mér. Þar er Páll Baldvin fastagestur og oft með skemmtilegar vangaveltur um bókmenntir. Þess vegna þótti mér heldur miður þegar hann sá ástæðu til að gefa mér hrapalega falleinkunn fyrir framgöngu mína í nýlegum sunnudagsþætti Ævars Kjartanssonar  og Ágústs Þórs Árnasonar þar sem fjalla átti um fullveldið. Þetta gerði hann í grein í Fréttablaðinu í vikunni.
Ég kom í þennan  þátt við forföll annars manns með minna en engum  fyrirvara því þátturinn var hafinn þegar mér var kippt inn í hann. Hafði ekki einu sinni heyrt upphafið. Þar var fyrir Kristrún Heimisdóttir sem Páll Baldvin segir hafa verið beitta „ofbeldisfullri stýringu" af minni hálfu, enda sé ég „kjaftaskur" og „ráptuðra" sem tali í „tómum frösum"  og ástæða til að spyrja hvort ég hafi ekki þorað að tala um „fullveldið", viðfangsefni þáttarins. Í stað þess að ræða fullveldið hafi ég farið „út og suður" um rafmagnsskömmtun í Kaliforníu, loftslagsmálin, Brusselvaldið, brunatryggingar i Reykjavík. Svo víða hafi ég farið „að varla var þráður í samtalinu."  
Hér endurómar Páll Baldvin ávirðingar Kristrúnar Heimisdóttur í minn garð í þættinum og að honum loknum. Bæði hún og félagar hennar á fjölmiðlum haga að sjálfsögðu sínu máli eins og þau kjósa. En skyldi vera til of mikils mælst að biðjaþau að íhuga hvers vegna þessi dæmi hafi verið nefnd í umræðu um fullveldi þjóða og samfélaga? Þau voru tekin til að sýna hvar hið eiginlega vald liggur og þá einnig hvar við viljum í raun hafa það; hvers vegna við viljum mörg hver hafa  lýðræðislega þröskulda fólksins í sveitarfélögum og þjóðríkjum, þröskulda sem alþjóðafjármagnið kemst ekki alveg eins glatt yfir og vill því jafnan burt. Heimsvæðingin hefur verið á forsendum fjármagnsins, hvort sem horft er til Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða Evrópusambandsins.
Þetta var það samhengi sem þessi dæmi voru sett inn í. Rafmagnsskömmtun í Los Angeles er dæmi um borg í markaðsvæddu hagkerfi sem hélt eignarhaldi á rafmagnsveitum á sinni hendi og slapp þannig við Enron skandalinn og aðra óáran því tengdu. Bandaríkin eru um sumt ekki eins miðstýrð og Evrópusambandið sem sviptir aðildarþjóðirnar fullveldi sínu í veigamiklum efnum. Raunveruleg dæmi úr lífi fólks og samfélaga skipta máli þegar talað er um fullveldi og lýðræði, völd og áhrif fólks á eigið umhverfi. Hér þarf að horfa á raunveruleikann eins og hann birtist okkur, reynsluna og lærdómana sem draga má af skerðingu fullveldis og nærlýðræðis, skerðingu þess að Jón og Gunna rétt eins og Ögmundur, Kristrún og Páll Baldvin fái um það ráðið í hvernig samfélagi þau búa. Dæmin eru allt um kring. Brunatrygginar á vegum Reykjavíkurborgar voru aflagðar þegar okkur var bannað með tilskipun Evrópusambandins að skipuleggja þær eins og við helst vildum. Þetta gerði skipulag brunatrygginga margfalt kostnaðarsamara, þyngra í vöfum og óhagkvæmara. Þetta er lítið einfalt dæmi um skerðingu á fullveldi þjóðar sem hefur neikvæðar afleiðingar í för með sér fyrir Jón og Gunnu og alla hina í samfélaginu - nema þá fáu sem græða. Dæmi sem þessi vekja greinilega hneykslan hjá sjálfskipuðum stýrendum umræðunnar um hvað megi og megi ekki tala um þegar fullveldi ber á góma. Loftlagsmálin, hafréttarmálin og mannréttindin nefndi ég í þættinum á hinn bóginn sem dæmi um mál sem við þyrftum að sameinast um á heimsvísu.
Ég fæ engu um það ráðið þótt Páli Baldvini Baldvinssyni þyki lítið til minna röksemda og málflutnings koma. En einni spurningu langar mig til að biðja Pál Baldvin að velta fyrir sér: Getur verið að almenn umræða um kennisetningar og fræðilega teóríu án skírskotunar til þess veruleika sem við hrærumst í, og til þeirra mála sem heitast á okkur brenna, sé takmörkuð og á engan hátt fullnægjandi þegar fullveldi og önnur mikilvæg mál ber á góma? Hvaða sjálfskipaða vald hvaða sjálfskipuðu sérfræðinga ákvarðar ramma umræðunnar? Hvernig er hægt að ná fram málefnalegri, víðsýnni umræðu og traustari ákvarðanatöku um framtíðina ef ekki með vísan í reynsluna og raunveruleg dæmi úr lífi þjóða og einstaklinga?  Leiðin til þess hruns sem við nú stöndum frammi fyrir var vörðuð af einstrengingslegum ramma kennisetninga sem m.a. hafa verið settar fram af fólki sem teljast fræðimenn á heimsmælikvarða og hafa jafnvel fengið Nóbelsverðlaun í nýfrjálshyggjuhagfræði. Vald og áhrif Jóns og Gunnu úti í bæ, og þeirra fullveldi í hnattvæddum heimi, á ekki að einskorðast við þröngan ramma kennisetninga.   Teóría á ágætlega við í samræðum þeirra sem hafa atvinnu af því að skrifa um þá sem skrifa um lífið. En engin teóría um framtíð samfélags er góð ef hún er komin úr tengslum við þau sem lifa lífinu.

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOĐSFERĐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARĐ AĐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOĐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AĐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRĆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta