Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

27. Apríl 2008

FRÍKIRKJUVEGUR 11 OG AUĐMANNAVĆĐINGIN


Þegar á 19. öldinni  voru sósíalistar og anarkistar orðnir vongóðir um að okkur myndi takast að færa út landamæri lýðræðisins (í orðsins fyllstu merkingu) .  Dæmi sem þau gjarnan tóku voru almenningsgarðar og almenningssöfn, þjóðminjasöfnin og listasöfnin - söfnin og garðarnir sem voru öllum opnir án aðgangseyris. Þetta var rými okkur öllum opið. Þessi hugsun hefur verið á undanhaldi undanfarin ár.  Þar til nú - fulltrúar VG þekkja þessa hugsun, hún er þeim greinilega eðlislæg. Þegar Íhaldið í Reykjavík leggst á hnén og afhendir peningafólki, af undirgefni, Fríkirkjuveg 11, ásamt lóð og umhverfi, þá rís Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, upp og mótmælir. Hann er ekki lengur einn. Fjöldi fólks er honum samstiga, reisir upp fána í baráttu sem ekki er séð fyrir endann á.
Fyrir mitt leyti segi ég: Haf þú þökk Þorleifur. Ég styð þig í slagnum gegn auðmannavæðingunni. Þín barátta er lýðræðisbarátta og jafnframt barátta gegn valdi auðsins; auðvaldinu. Látum ekki allt verða falt!  

Hér er yfirlýsing Þorleifs Gunnlaugssonar og að neðan bókun borgarfulltrúans í borgarráði:

Vegna umfjöllunar fjölmiðla um Fríkirkjuveg 11 í vil ég koma eftirfarandi á framfæri

  1. Ekki er búið að ganga frá sölu á Fríkirkjuvegi 11.  Það verður í fyrsta lagi gert á fundi borgarstjórnar 6. maí nk. Þar munu 15 borgarfulltrúar taka afstöðu til kaupsamningsins, þar á meðal borgarstjóri en hann hefur ekki atkvæðisrétt í borgarráði.
  2. Slíkir meinbugir voru á gögnum sem lögð voru fyrir borgaráð í gær að ætla má að borgarráðsfulltrúum hafi verið gert ómögulegt að taka upplýsta ákvörðun og af yfirlýsingum borgarstjóra má ætla að hann hafi verið blekktur.
  3. Í gögnunum er mikið misræmi á milli texta og teikninga sem eru þó hluti af samningnum.  Þar er m.a. verið að hundsa nauðsynlega deiliskipulagsvinnu vegna hverfisverndar, en hún myndi leiða til lögboðinnar grenndarkynningar og auglýsingar þar sem allur almenningur fengi tækifæri til að koma athugasemdum sínum á framfæri.  Lýðræðisleg vinnubrögð eru því virt að vettugi. Í kaupsamningsdrögum er ekki tekin afstaða til fornminja á svæðinu sem kaupandi hyggst skemma með vitund borgarinnar sbr. teikningar sem fylgdu.
  4. Borgarstjóri lætur hafa eftir sér í ríkisútvarpinu í gær að ekki sé hægt að hætta við söluna þar sem „bindandi samningur hafi verið kominn á". Sé  svo, þá á það aðeins við um húsið og 900 m² lóð sem auglýst var til sölu. Á sínum tíma ákvað borgarstjórn eftir miklar umræður að bjóða þetta út og ekkert annað.
  5. Eftir stendur að í drögum að kaupsamningi hefur verið bætt við 750 m² leigulóð og heimilaðar margháttaðar breytingar á almenningsgarðinum utan lóðarmarka auk þess sem kaupandi fær neitunarvald gagnvart frekari breytingum eftir það.
  6. Tillögu VG í borgarstjórn 15. apríl s.l. um að leitað yrði leiða til að afturkalla söluna á Fríkirkjuvegi 11 var vísað frá.
  7. Á næsta borgarstjórnarfundi 6. maí munu fulltúar VG leggja til að kaupanda hússins verði ekki selt annað en það sem auglýst var til sölu, það er fasteignin að Fríkirkjuvegi 11 og 900 m² lóð.
  8. Það er með ólíkindum að meirihluti borgarráðs skuli hafa fyrir sitt leyti samþykkt þennan meingallaða samning og lotið þannig ægivaldi fjármagnsins. Það verður hinsvegar borgarstjórn sem tekur endanlega ákvörðun.

 

Bókun ÞG: Fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði telur fráleitt að undirrita samning þar sem Reykjavíkurborg afsalar sér í raun forræði yfir Hallargarðinum öllum og afhendir þar að auki einkaaðilum lóð sem börn og ungmenni hafa nýtt sér til leiks um áraraðir. Garðurinn og gerðið á bak við húsið er í eigu almennings og borgaryfirvöld eiga að hafa fullan og óskoraðan rétt til að sinna honum eins og öðrum opnum svæðum borgarinnar án íhlutunar einkaaðila. Það er óskiljanlegt að meirhluti borgarráðs kjósi að taka þessa ákvörðun í ljósi þess að hún byggir á óskýrum teikningum, ósamræmi á milli teikninga og texta og óljósu orðalagi um upprunalega mynd garðsins. Af teikningunni má þó ráða að ætlunin er að rjúfa skarð í veggi sem njóta fornleifaverndar og er það með eindæmum að ekki skuli standa til þegar um opinberan aðila er að ræða að kveða á um slíkt í kaupsamningi eða afsali. Ekki hefur verið leitað umsagnar Húsafriðunar ríkisins þó teikningarnar gefi það í skin að færa eigi til tröppur og fleira sem sem telst til næsta umhverfis friðaðs mannvirkis í opinberri eigu og án raunverulegs samráðs er ætlunin að rústa höfundarverki Jóns H. Björnssonar landslagarkitekts sem hannaði Hallargarðinn.  Þá vekur það furðu að ekki skuli vera ætlunin að fram fari samráð við íbúa svæðisins og ekki liggi fyrir lóðaleigusamningur. Vinstri græn lögðust gegn sölu hússins á sínum tíma en hér tekur steininn úr þegar auðmenn fá slík forréttindi til afnota. Borgarfulltrúar hafa nú í vetur ítrekað verið minntir á mikilvægi þess að gæta vel að almannahagsmunum þegar ásælni einkaaðila verður sem áköfust. Meðal annars hefur umboðsmaður Alþingis spurt alvarlegra og gagnrýninna spurninga um ráðstöfun á opinberum eigum sem fulltrúum meirihlutans væri hollt að hafa í huga. Það er skylda kjörinna fulltrúa að gæta hagsmuna almennings en ekki sérhagsmuna einstaklinga, sama hvað þeir heita og sama hvað þeir eru auðugir. Til þess vorum við kosin og þar liggur ábyrgð okkar. Það vekur sérstaka furðu að borgarstjóri Ólafur F. Magnússon sem meira að segja var andvígur sölu hússins á sínum tíma skuli nú tala manna ákafastur fyrir því að afsala borginni mun meiru af þessu fallega útivisarsvæði borgarbúa og leggjast þar með flatur fyrir auðmönnum og fótum troða umhverfis- og almannahagsmuni, þvert á fyrri yfirlýsingar.

 

 


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOĐSFERĐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARĐ AĐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOĐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AĐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRĆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta