Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

14. Mars 2008

HVAĐ KOSTAR ŢAĐ AĐ MEIĐA FÓLK?

Birtist í Fréttablaðinu 13.03.08.
FrettablaðiðÓmar R. Valdimarsson hefur fengið staðfest fyrir dómi að staðhæfingar Gauks Úlfarssonar um að hann sé rasisti séu ósannar og beri því að líta á þær sem ærumeiðingar. Meira hékk á spýtunni því Gaukur mun hafa sagt að Ómar ynni fyrir alþjóðlegt glæpagengi. Þar er vísað til þess að Ómar hafi verið fréttafulltrúi fjölþjóðarisans Impregilo. Ómari þótti þessi áburður svo ærumeiðandi að hann lét ekki við það eitt sitja að krefjast þess að ummælin væru dæmd ómerk heldur vildi láta dæma sér tvær milljónir í skaðabætur. Í dómsniðurstöðu segir hins vegar að Impregíló sé ekki aðili að málaferlunum  og því ekki ástæða til að fella dóm um þau ummæli.
Ég skal játa að mér hefði þótt fróðlegt að fylgjast með Impregilo hvítþvo sig af áburði um glæpsamlegt athæfi í Suður Ameríku, Afríku og víðar.  Í málaferlum um ærumeiðingar gagnvart Impregilo væri Gaukur ekki einn á báti. Þar væri undirritaður líka, höfundar rannsóknarskýrslu breska þingsins, fréttamenn, þingmenn í Brasilíu og Paragvæ að ógleymdum Carlos Menem,  fyrrverandi forseta Argentínu, sem sagði að Impregilo hefði reist minnisvarða um spillingu með sviksemi og prettum við framkvæmdir í Suður-Ameríku.
Ekki ætla ég að fara í saumana á hvað bjó að baki ásökunum Gauks Úlfarssonar varðandi meinta fordóma Ómars R. Valdimarssonar.  Þar komst dómur að niðurstöðu sem ég ætla ekki að véfengja þótt ýmsar yfirlýsingar Ómars, þar sem erlendir menn koma við sögu, þyki mér umdeilanlegar jafnvel þótt ekki sé um kynþáttafordóma að ræða.
Það er hins vegar sitthvað annað sem orkar tvímælis í þessu máli. Í niðurstöðu dómara segir m.a.: „þótt stefndi hafi tekið þátt í stjórnmálaumræðu á vefsíðu sinni... verður ekki fallist á að stefnandi sé opinber persóna í þeim skilningi að hann verði að þola meiri og sterkari gagnrýni en gengur og gerist."  En ber prívatpersónan Ómar ekki einhverja ábyrgð gagnvart þeim sem hann fjallar um?  Af málskjölum að dæma  virðist vefsíða  Ómars  hafa verið nokkuð  glæfraleg  á köflum,  óspart dylgjað um pólitíska andstæðinga og stundum gróflega snúið út úr orðum þeirra.  Því fer fjarri að Ó.R.V.  sé saklaus af pólitískum leðjuslag.  Þrátt fyrir þetta samhengi hlutanna  lætur dómarinn sér  ekki nægja að dæma áburðinn um rasisma ómerkan heldur á Gaukur Úlfarsson að punga út með 300.000 þúsund krónur í miskabætur og 500.000 kr.  fyrir málskostnaði Ómars.  Með dráttarvöxtum kemur kostnaðurinn til með að teygja sig í átt að milljóninni.

Opið sár við auga og mar á hryggjartindi

En lítum nú á annað mál. Maður er dæmdur fyrir að hafa barið konu til óbóta með „ítrekuðum hnefahöggum í höfuð og andlit og þá sparkað í líkama hennar, með þeim afleiðingum að hún hlaut opið sár og mar á augnlok og augnsvæði hægra megin, marga yfirborðsáverka á höfði, mar yfir hryggjartindi , mar á aftanverðum hægri upphandlegg, yfirborðsáverka á á öxl og mar á vinstra læri."  Og hver skyldi niðurstaða dómara hafa verið í þessu máli?  Í dómsorði segir: „ Ákærði...sæti fangelsi í tvo mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum..Ákærði greiði ... 90.000 krónur í málsvarnarlaun, þar með talinn virðisaukaskattur."
Hvað er íslenska dómskerfið að segja? Ef einstaklingur er borinn röngum sökum opinberlega er ekki látið sitja við það eitt að dæma viðkomandi ummæli ómerk heldur er beitt þungum viðurlögum. Ef einstaklingur hins vegar misþyrmir annarri manneskju þannig að hún stórskaddast eru engar miskabætur dæmdar. 
Þetta þýðir að menn  skuli gæta orða sinna á hinum pólitíska vígvelli, annars skuli þeir hafa verra af. Ef þú hins vegar ert kona og þér er misþyrmt þannig að þú bíður verulegan skaða er til einskis að leita til dómstóla um miskabætur. Í hugum kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi er reyndar svo komið að dómstólaleiðin er slík þrautaganga að aðeins lítill hluti þeirra kærir ofbeldið. 15% kvenna sem sóttu Kvennaathvarfið árið 2007 kærðu ofbeldið. Af þeim konum sem sóttu Stígamót árið 2007 kærðu 13%. Það er  hægt er að meiða fólk  með margvíslegum hætti. Það er hægt að meiða fólk með orðum. Það er líka hægt að meiða fólk með hnefanum. Íslenskir dómsstólar hafa verið að prísleggja meiðslin.
En það er líka hægt að meiða fólk með dómum. Svo mikið er hægt að misbjóða fólki með ranglátum dómum að réttarvitundin og þar með sjálft réttarkerfið bíði skaða af.

Ath., millifyrirsögn féll niður  við birtingu í Fréttablaðinu.

 


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOĐSFERĐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARĐ AĐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOĐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AĐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRĆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta