Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

26. Febrúar 2008

MEIRA ÁL OG HEILBRIGĐA OKURVEXTI !


Í opnugrein í Morgunblaðinu í dag breiða þeir úr sér þingmennirnir Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki. Þeir telja sig kunna leiðir til að lækna efnahagsmein þjóðarinnar.
Þeir, sem aðrir, hafa af því áhyggjur að staða fjármálakerfisins kunni að vera slæm. Í Morgunblaðinu í gær vék Geir H. Haarde, forsætisráðherra einnig að dvínandi gengi íslensku bankanna erlendis. Þar sagði hann að sumir töluðu um að „viðskiptamódel bankanna" fæli í sér ábyrgðarleysi. Geir kvaðst ekki vilja taka sér það orð í munn. „En menn hafa verið djarfir." Og um þessa dirfsku segir forsætisráðherra ennfremur: „Ljóst er að staða bankanna, hvað varðar öflun nýs lánsfjár á erlendum mörkuðum, er núna mjög þröng, eins og allra annarra. En kunnáttumenn telja að það kunni að rætast úr því ástandi á næstu mánuðum. Ef ekki er staðan náttúrlega mjög alvarleg."

Úrræðaleysi Geirs

Hvað skyldi vera til ráða að mati forsætisráðherra þjóðarinnar? Ráðin sem hann hefur á hendi eru gamalkunn og lúin:
Í fyrsta lagi vill Sjálfstæðisflokkurinn meiri stóriðju. Í Morgunblaðsviðtalinu segist Geir telja að það væri mjög heppilegt fyrir þjóðarbúskapinn, eins og horfurnar eru núna, að stórframkvæmdir á borð við Helguvík færu af stað og sama má segja um fyrirhugaðar stórframkvæmdir á Bakka við Húsavík sem að öllum líkindum yrðu tveimur árum síðar. Ekki sé því talað um að allt fari í gang samtímis. Vitað sé af fleiri hugsanlegum orkukaupendum, svo sem Alcan í Straumsvík, netþjónabúi á Keflavíkurflugvelli og fyrirtækjum sem vilji byggja upp starfsemi í Þorlákshöfn.."
Í öðru lagi er það Íbúðalánasjóður sem Íhaldið ætlar að fóðra bankakerfið á.: Það er ómögulegt að Íbúðalánasjóður sé endalaust bitbein og deiluefni í stjórnmálum eða milli ríkisvaldsins og atvinnulífsins."  Deila á milli hverra? Því svarar Geir ekki. Við vitum hins vegar að deilan stendur annars vegar milli bankanna og Sjálfstæðismanna sem ganga erinda þeirra og hins vegar allra annarra! Deilan er heimatilbúin Geir! Ef Sjálfstæðisflokkurinn ákveður að hætta að ganga erinda einkafjármagnsins og grafa undan Íbúðalánasjóði þá er engin deila lengur. Forsætisráðherra getur ekki neitað því í viðtalinu að bankarnir hafi staðið sig illa á húsnæðismarkaði. Formaður Sjálfstæðisflokksins orðar það svo að bankarnir hafi komið „fullgeyst inn í íbúðalánamarkaðinn" en það sé ekki rétt að líta á bankakerfið „sem einhvern sérstakan óvin íbúðareigenda eða húsbyggjenda."
Það er nú það. Hygg ég að margir sem hafa fengið að kenna á okri og aðgangshörku bankanna  séu ekki allskostar sammála forsætisráðherra sínum.

Hvers vegna úthýsa lausnum sem hafa reynst vel?

En það er nákvæmlega á þessum stað sem þeir Bjarni og Illugi taka slaginn.  Í Morgunblaðsgrein sinni í dag segja þeir að engin haldbær rök séu fyrir því að ríkið verði jafnvirkur þátttakandi á íbúðalánamarkaði og verið hefur: „Líta ber á nýja framtíðarsýn fyrir íbúðalánamarkaðinn sem mikilvægan þátt í því að skapa fjármálastarfsemi á Íslandi heilbrigða umgjörð og rekstrarskilyrði til framtíðar," segir í greininni.
Já, það er nefnilega það. Sjálfstæðisflokkurinn vill ganga að Íbúðalánasjóði dauðum (nema til að sinna félagslegum verkefnum sem ekki borga sig!!!). Með því að þröngva Íbúðalánasjóði til að draga saman seglin verði sköpuð „heilbrigð umgjörð" fyrir íbúðalánakaupendur! Ætlar Sjálstæðisflokkurinn aldrei að læra af reynslunni? Eða vill hann það ekki? Metur hann það sem svo að hagsmunagæsla fyrir fjármagnsöflin sé mikilvægari en hagsmunagæsla fyrir almenning?
Hugleiðum þá stöðu sem nú er uppi. Viðfangsefnið er slæm staða bankanna sem hafa farið illa að ráði sínu í fjárfestingabraski. Sem betur fer hefur enn tekist að afstýra meiri háttar þrengingum því íbúðakaupendur hafa átt sér bakhjarl í Íbúðalánasjóði. Nú er hins vegar lausn Íhaldsins á vanda bankanna að afhenda þeim íbúðakaupendur sem nauðuga viðskiptavini til að braska með og rétta þannig stöðu sína! Tvær flugur yrðu þannig slegnar í einu höggi að mati Sjálfstæðisflokksins: Bankarnir myndu dafna og íbúðakaupendur myndu greiða þeim heilbrigða okurvexti.
Gaman væri að fá nýtt viðtal við Geir H. Haarde og síðan meiri skrif frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins þar sem þeir reyni að skýra fyrir okkur sem erum í tregari kantinum hvers vegna eigi að eyðileggja fyrirkomulag sem hefur reynst vel.

 

  


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOĐSFERĐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARĐ AĐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOĐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AĐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRĆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta