Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

17. Febrúar 2008

REYKJAVÍKURBRÉF: ÁBYRGĐ LÖGGJAFNAS Í FALLVÖLTUM HLUTHAFAHEIMI?


Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins í dag tekur á mikilvægu álitamáli, annars vegar framkomu stjórnenda stórfyrirtækja, himinhá laun og  kaupréttarsamningar þeim til handa og hins vegar réttarstöðu annarra hluthafa („almenningshlutafélag er ekkert annað en sameign þeirra, sem eiga hluti í því")  og í því samhengi skyldum sem hvíli hjá löggjafanum  hinum smáa hluthafa og samfélaginu til varnar gegn ásælni hinna stóru gráðugu hluthafa og starfsmanna sem koma inn í fyrirtækin á þeirra forsendum.

Bónusar í fiski og banka!

Viðhorf höfundar Reykjavíkurbréfs þótti mér þegar á heildina er litið gott, ekki síst fyrir þá sök að hann taldi mikilvægt að stjórnendur stórfyrirtækja aðhefðust ekkert sem væri hróplega úr takti við launakerfin og lífsskilyrðin almennt í landinu. Þrátt fyrir þetta  gat ég ekki annað en brosað innra með mér þegar sett voru nánast í eina spyrðu með sína bónusa, fiskvinnslukonan og bankastjórinn: „ Kannski má segja að prinsippið sé í sjálfu sér heilbrigt, þ.e. að starfsmaður, hvort sem hann er að veiða fisk, flaka fisk eða stjórna banka, fái umbun fyrir vel unnin og árangursrík störf en að útfærslan hafi farið úr böndum. Það sé æskilegt að samfélagið sem viðkomandi starfar í sé sæmilega sátt við það, sem er að gerast, og þess vegna verði að vera eitthvert samhengi á milli þess, sem gerist almennt í starfskjörum fólks, og þess, sem menn geta borið úr býtum t.d. í fjármálageiranum á Íslandi. „
Eins og hér kemur fram er áherslan á að skoða málin heildrænt, í samhengi við það sem er að gerast í þjóðfélaginu almennt. Gott, sem fyrr segir.

Óseðjandi þotulið

Síðan spyr höfundur um ábyrgð löggjafans: „ Í ljósi þess, að almenningshlutafélög eru sameign þeirra, sem hluti eiga í þeim, má spyrja hvort einhver sérstök ástæða sé til að bregðast við. Á löggjafinn að beita sér með einhverjum hætti? Er ekki sjálfsagt að fólk fái að ráðstafa eigum sínum að vild og þar með verði hluthafar að gera út um það sín í milli, sem eigendur, hversu háar fjárhæðir þeir eru tilbúnir til að borga stjórnendum, sem starfa fyrir þá? Auðvitað er það svo í meginatriðum...Það er þó eitt, sem löggjafarvaldið getur gert. Það getur skoðað rækilega hvort tilefni er til að styrkja og treysta stöðu litla hluthafans í almenningshlutafélögum..."
Undir þetta vil ég taka með Morgunblaðinu. Skiljanlegt er að hluthafar sem hafa tapað á verðbréfahruni að undanförnu reiðist þegar þeir horfa upp á hvernig farið er með fjármuni þeirra þegar forstjórar eru annars vegar. Við hin þurftum (mörg hver alla vega) ekki að verða vitni að neinu hruni til að gagnrýna hið óseðjandi þotulið sem aldrei kann sér hóf.

Það sem höfundi Reykjavíkurbréfs láðist að fjalla um

Tilefni þess að ég skrifa þessar línur er þó ekki fyrst og fremst til að taka undir með höfundi Reykjavíkurbréfs heldur  að benda á það sem vantar í þann hluta bréfsins sem fjallar um ábyrgð stjórnvalda. Hún á að mínu mati að felast í því að ráðstafa ekki út á fallvaltan hlutabréfamarkað dýrmætum eignum þjóðarinnar. Sá lærdómur sem við eigum að draga af þeim sveiflum sem nú ganga yfir markaðina er hve varasamt það er að treysta á fjárgróðafólk þegar fjöregg okkar eru annars vegar, hvort sem það er heilbrigðisþjónustan, orkuauðlindirnar og orkukerfin, vatnið eða fiskurinn í sjónum! Þar liggur sú ábyrgð löggjafans sem höfundi Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins í dag láðist að fjalla um.


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLĆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIĐ VONBRIGĐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGĐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓĐ KVEĐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta