Annađ
25. Ágúst 2007
JÓN ÁSGEIR SIGURĐSSON FALLINN FRÁ
Góđur félagi og vinur Jón Ásgeir Sigurđsson er fallinn frá eftir skammvinn enn erfiđ veikindi. Eftirfarandi eru minningarođ sem ég skrifai um hann og birtust í Morgunblađinu:
Viđ fráfall Jóns Ásgeirs Sigurđssonar varđ einni sameiginlegri vinkonu okkar ađ orđi ađ ţar hyrfi af vettvangi ţjóđmálanna kröftugur mađur. "Hann stóđ međ sínu fólki og međ sinni stofnun." Stofnunin sem hér var vísađ til var Ríkisútvarpiđ og fólkiđ var starfsfólk ţar á bć og reyndar gott betur. Ţví ţegar Ríkisútvarpiđ var annars vegar var fólkiđ hans Jóns Ásgeirs ţjóđin öll. Ríkisútvarpiđ átti nefnilega í hans huga ađ tilheyra ţjóđinni allri og ţađ átti ađ vera sannkallađ almannaútvarp, ţjóna almenningi, vera frćđandi og upplýsandi, kjölfesta í menningarlegu tilliti.
Ekki man ég eftir neinum manni sem á undanförnum tveimur áratugum eđa svo hefur veriđ eins ötull og Jón Ásgeir Sigurđsson ađ efna til umrćđu í ţjóđfélaginu um hlutverk fjölmiđla og ţá einkum og sér í lagi Ríkisútvarpsins. Greinar voru skrifađar, efnt til funda og málţinga, skýrslur útgefnar. Alltaf var hinn mikli eldhugi tilbúinn ađ varpa ljósi reynslu sinnar og vitneskju á ţetta mikilvćga málefni. Sjálfur á ég í fórum mínum fjöldann allan af skýrslum og ritgerđum sem ég hafđi fengiđ frá Jóni Ásgeiri og oft áttum viđ samrćđur um ţessi efni sem ég hafđi mikiđ gagn af. Um árabil gegndi Jón Ásgeir formennsku í Starfsmannasamtökum Ríkisútvarpsins sem voru eins konar regnhlífarsamtök stéttarfélaganna í stofnuninni. Ţau létu sig umrćđu af ţví tagi sem hér er vísađ til mjög til sín taka í formannstíđ Jóns. Ég átti kost á ţví nokkrum sinnum ađ taka ţátt í ráđstefnum sem Jón Ásgeir skipulagđi međ innlendum og erlendum gestum. Međal annars kom ég ţar ađ sem formađur BSRB. Ţessar ráđstefnur áttu ţađ sameiginlegt ađ vera í senn gagnrýnar og uppörvandi og voru ţannig ágćtur spegill á skipuleggjandann.
Jón Ásgeir beitti sér mjög í umrćđunni um hlutafélagavćđingu Ríkisútvarpsins og skrifađi talsvert um ţađ efni. Taldi hann hiđ mesta óráđ ađ gera RÚV ađ hlutafélagi og vorum viđ samherjar í ţeirri baráttu. Ég kunni einnig vel ađ meta pólitískar og félagslegar áherslur Jóns Ásgeirs. Hann var herstöđvaandstćđingur og baráttumađur fyrir samfélagslegum gildum og jöfnuđi. Tók hann virkan ţátt í félagslegri baráttu allt frá námsárum sínum ţegar hann var í forystu, SÍNE, samtökum íslenskra námsmanna sem lögđu stund á nám á erlendri grundu.
"Viđ ţurfum á mönnum á borđ viđ Jón Ásgeir ađ halda. Ţađ er slćmt ţegar fćkkar mönnum af hans gerđ," sagđi sameiginleg vinkona okkar sem áđur er vitnađ til. "Hann var klettur sem alltaf var til stađar".
Hinn harđi mađur var líka mildur og viđkvćmur hygg ég. Vinum og félögum er hann mikill missir. Hans nánustu eiga nú um sárt ađ binda. Ég votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúđ.
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOĐSFERĐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARĐ AĐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOĐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AĐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRĆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












