Annað
20. Ágúst 2007
ENN ERU TIL HUGSJÓNAMENN
Birtist í Fréttablaðinu 19.08.07.
Mikil gerjun er nú í sparisjóðum landsins. Til þeirra var stofnað til að efla samfélagið í héraði, þjóna fólki og fyrirtækjum. Þeir sem lögðu fram stofnfé gerðu það iðulega af hugsjón enda kveðið á um það í lögum að stofnféð mætti aðeins greiða þeim til baka með eðlilegum vöxtum og verðbótum. Gerjunin nú er af tvennum toga. Annars vegar er framhald á tilraunum ýmissa stofnfjáreigenda að gera sér mat úr stofnfjárframlagi sínu langt umfram það sem lög og reglur gera ráð fyrir. Stofnfjárflut sinn vilja þeir geta selt á markaðsprís. Í ljós hefur komið að stofnfjárhlutum hefur að undanförnu verið ráðstafað með það í huga að framundan sé mikil uppskeruhátíð stofnfjáreigenda. Sparisjóðunum megi nú breyta í hlutafélög og þá verði græðginni allar götur greiðar. Hinn þátturinn í þessu ferli snýr að meintri "hagkvæmni" með samjöppun. Nú á að sameina og stækka. Hvar skyldi slík þróun enda? Bankarnir hafa þannig smám saman verið að hagræða sér út úr íslensku hagkerfi – eigendurnir komnir úr landi. En þrátt fyrir milljarðagróða bankanna sem nú starfa á heimsvísu er landsmönnum boðið upp á okurkjör sem aldrei fyrr. Í lesendabréfi sem heimasíðu minni barst fyrir nokkru sagði: " Sparisjóður Svarfdæla vakti athygli á sér um daginn fyrir hvort tveggja, vinstri græna hugsun, þeas. samfélagslega hugsun og ekki síður hitt, ótrúlegan gróða. Níu starfsmenn og níuhundruð milljónir í gróða. Ef Kaupþing er með tíuþúsund starfsmenn ættu þeir að vera með níuhundruð milljarða gróða. Hvað varð um hagkvæmni stærðarinnar? Fór hún í laun og bónusa til eigenda. Má ég biðja um marga litla sparisjóði, dreifða áhættu, fjölbreytt atvinnulíf, félagslegt réttlæti: Blandað hagkerfi. Vegna Gæðanna." Þetta eru umhugsunarverð orð. Sem betur fer eru enn til hugsjónamenn sem starfa í góðum félagslegum anda. Dæmi þar um er framganga almennra stofnfjárhafa í Sparisjóði Skagafjarðar undanfarna daga. Þeirri spurningu beini ég svo til lesenda Fréttablaðsins, hvort við þurfum á meiri samþjöppun að halda í íslensku hagkerfi. Er kannski kominn tími til að afþjappa?
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson












