Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

26. Apríl 2007

JÓNÍNA BJARTMARZ, UMHVERFISVERÐLAUNIN OG HINAR SYRGJANDI MÆÐUR


Á degi umhverfisins – sem var í gær -  taldi Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra Framsóknarflokksins rétt að veita auðhringnum Bechtel  sérstök verðlaun, Kuðunginn, sem er umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins. Vel kann að vera að fyrirtækið hafi staðið sig vel hvað varðar öryggisreglur við byggingu álversins á Reyðarfirði, en vandséð er hvernig mengandi stóriðja á skilið sérstök umhverfisverðlaun. Að verðlauna fyrirtækið af því það “vinnur eftir umhverfiskerfi sem dregur stórlega úr líkum á umhverfisslysum og mengun” er umhugsunarefni. Hefði mátt ætla að ríkisstjórnin hefði gert ítrustu kröfur í þeim efnum að skilyrði fyrir leyfisveitingu. En þetta minnir okkur líka á að af þessum rekstri stafar hætta vegna umhverfisslysa og mengunar.

Bechtel er þekkt um heim allan og er mér ekki kunnugt um að þessi alræmdi auðhringur njóti í öðrum löndum þeirra aðdáunar og þess trausts sem Framsóknarflokkurinn á Íslandi ber til fyrirtækisins.

Í skýrslunni “Bechtel: Profiting from destruction” sem mætti þýða “Bechtel: Grætt á gjöreyðingu” frá árinu 2003, er saga fyrirtækisins rakin með dæmum. (Sjá hér:) Í inngangi segir: “Þessi skýrsla rekur dæmi úr sögu Bectels sem hefur látið að sér kveða í vatnsveitum, kjarnorkuiðnaði, orkugeiranum og almannaþjónustu. Þessi dæmi afhjúpa sögu ósjálfbærrar og eyðileggjandi hegðunar sem hafa ollið viðvarandi eyðileggingu samfélaga og umhverfis víða um heim. Hér er að finna lýsingar frá fyrstu hendi þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á hegðun fyrirtækisins... Þessi skýrsla afhjúpar 100 ára sögu sem hefur snúist um að fá sem mest út úr ruddalegustu tækninni, að hala inn óhóflegan gróða og að hundsa samfélagslegan og umhverfislegan fórnarkostnað.” Hér verður aðeins tæpt á tveimur dæmum sem hátt ber í samtímanum: Írak og vatninu.

Írak

Rakin eru dæmi um hvernig Bechtel hafi átt í góðum viðskiptum við stjórn Saddams Husseins, en síðan hafi forystumenn fyrirtækisins, sem löngum hafi átt greiðan aðgang að forsetum Repúblikana, átt þátt í undirbúningi innrásarinnar í Írak. Fyrirtækið hafi síðan fengið afhenta samninga frá Bandaríkjaforseta án útboðs, til að byggja upp það sem innrásarherinn hafði lagt í rúst. Fyrirtækið gafst reyndar upp á uppbyggingarstarfinu í fyrra og dró sig út úr landinu, en fékk fyrir vikið 2.4 milljarða bandaríkjadala. Fyrirtækið hefur sjálft gefið út fagra mynd af uppbyggingarstarfi sínu (sjá hér:), en á það hefur verið bent (sjá hér: ) að aðeins sé ein óháð eftirlitstofnun sem sé viðurkennd af bandaríska þinginu, SIGIR, og að hún hafi aðeins komist yfir að meta 65 af þeim 13.578 verkefnum sem bandaríska ríkisstjórnin hefur staðið fyrir og borgað í Írak. Þrátt fyrir þá takmörkuðu yfirsýn er sýnt fram á að afrekaskrá Bechtels, eins og fyrirtækið lýsir henni, er ekki sannleikanum samkvæm. Bechtel segist t.d. hafa gert við þrjár brýr á meginþjóðbrautum sem hafi orðið fyrir stríðsskemmdum. SIGIR segir að  engum slíkum framkvæmdum hafi verið lokið. Bechtel segist hafa neyðst til að hætta við byggingu fæðingar- og barnaspítala í Basra vegna „öryggisástands“. SIGIR segist hins vegar hafa sagt upp 50 milljón dollara samningi Bechtels, þegar í ljós kom að fyrirtækið hafði gefið rangar skýrslur og var komið 90 milljónir dollara fram úr fjárhagsáætlun og einu og hálfu ári á eftir verkáætlun. Hætt er við að það hafi enn aukið á sorg íraskra mæðra.

Vatnið

Af því umhverfisráðherra okkkar Íslendinga telur vert að veita Bechtel umhverfisverðlaun, er rétt að rekja sögu fyrirtækisins í vatnsmálum, en Bechtel er eitt af tíu stærstu einkafyrirtækjunum á því sviði. Í einni stærstu borgum Bólivíu, Cochabamba, var vatnsveitan einkavædd 1999 og færð í hendur fyrirtækisins Aguas del Tunari, sem var í eigu Bectels og International Water Ltd.(sjá hér:).  Vatnsgjöld hækkuðu samstundis, í sumum tilfellum um 100 – 200 prósent. Lágmarkslaun eru innan við 100 dali á mánuði en margar fjölskyldur fengu vatnsreikninga upp á 20 dali eða meira. Fyrirtækið reyndi meira að segja að meina fólki að safna vatni af húsþökum sinum með þeim rökum að vatnið væri fyrirtækisins!  Borgarbúar risu gegn okrinu og fóru í allsherjarverkfall í janúar 2000. Ríkisstjórnin sendi herinn á vettvang og í mótmælaöldunni slösuðust 175 og einn lést. En mótmælum linnti ekki og á endanum rifti ríkisstjórnin samningnum við undirfyrirtæki Bechtels. Bechtel lagði hins vegar fram kröfur um milljarða króna í skaðabætur vegna þess gróða sem fyrirtækið taldi sig hlunnfarið um. 

Becthel og undirfyrirtæki þess hafa víða komið við sögu, frá Eistlandi til Manilla á Filippseyjum og alls staðar er að segja sömu sögu svikinna loforða.  Vatn er að verða mikilvægasta auðlind veraldar og því skiljanlegt að Bechtel leiti hófanna hér sem annars staðar. Ríkisstjórnin hefur með nýjum vatnsveitulögum frá 2004 opnað fyrir að sveitarfélög geti selt frá sér vatnsveiturnar til hlutafélaga. BSRB hafði það að vísu í gegn við samningu frumvarpsins að meirihluti í slíku hlutafélagi þurfi að vera í eigu opinberra aðila, en menn geta velt þvi fyrir sér hver aðstaða sveitarfélaga fyrir austan verður ef til slíkra samninga kæmi. Ekki hefur það styrkt samningsaðstöðu sveitarfélaga að Bechtel hefur leyfst að borga 80 milljónir í nýtt íþróttahús og heyrst hefur af fleiri slíkum styrkjum til sveitarfélagsins.

Það er sem sagt til önnur hlið á umhverfisverðlaunahafa Jónínu Bjartmarz en þá sem er að finna á heimasíðu verðlaunahafans um eigið ágæti. Bechtel hefur  stært sig af því á heimasíðu sinni að eitt sinn hafi fyrirtækið haft einhvers konar aðkomu að 350 orkuverum sem gengu fyrir kolefnabruna. Síðan eru liðin nokkur ár. En skyldi vera ástæða til að furða sig á dómgreind framsóknarmanna þegar kemur að verðlaunaveitingum? Framsóknarflokkrurinn hefur sýnt að hann er mikið fyrir verðlaun gefin, hvort sem er fyrir umhverfisverðlaun, jafnréttismál eða annað. Verðlaunahafi Framsóknar í jafnréttismálum í aðdraganda kosninga var Framsóknarflokkurinn. Ég hef sannfrétt að innan Framsóknar hafi þetta þótt verðskuldaður sigur. Auðhringurinn Bechtel stendur jú nærri Framsóknarflokknum. Næst verður sennilega að verðlauna Framsóknarflokkinn fyrri að hafa verðlaunað Bechetel. Þá yrði allt fullkomnað. Ef þetta gerðist mættum við vita að þjóðin hefði gengið í björgin. Það verður vonandi aldrei.


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOÐSFERÐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARÐ AÐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOÐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta