Annađ
19. Apríl 2007
SKÁTAMESSA OG NESHRINGURINN

Á sumardaginn fyrsta fer ég jafnan í skátamessu í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Mér finnst ţetta tilheyra sumardeginum fyrsta og jafnframt geri ég ţetta í minningu föđur míns Jónasar B. Jónssonar, sem um langt árabil var skátahöfđingi og bar hag skátahreyfingarinnar ćtíđ fyrir brjósti. Ţađ geri ég líka. Og sumardagurinn fyrsti minnir á starf skátanna.
Margrét Tómasdóttir, skátahöfđingi, flutti rćđu og minntist atburđa frá liđinni öld en í ár eru einmitt hundrađ ár frá stofnun skátahreyfingarinnar. Ţađ var Baden Powell sem stofnađi til hennar m.a. til ađ finna villuráfandi ćsku í austurhluta Lundúna og öđrum stórborgum Bretlands uppbyggileg verkefni í skipulagđri ćskulýđsstarfsemi. "Er nokkuđ síđur ţörf á slíku starfi í dag," spurđi Margrét Tómasdóttir, og ţétt setin kirkjan kinkađi kolli.
Margrét Tómasdóttir, skátahöfđingi, minntist ţess ađ fljótlega eftir stofnun skátafélaga hér á landi hefđi sr. Friđrik Friđriksson fariđ međ skátaflokk, Vćringja, um götur Reykjavíkur, á sumardaginn fyrsta ađ ţví er mér skildist, syngjandi sálma á latínu! Einhvern veginn var ţessi frásögn – eđa öllu heldur svipmynd - sem brugđiđ var upp sérlega grípandi vegna stórbrunans í Austurstrćti í gćr ţar sem gömul hús brunnu, ţar á međal hús sem á sínum tíma hýsti stiftamtmann, Trampe greifa og Jörund hundadagakonung, Landsyfirréttinn og síđan skemmtistađinn Pravda! Međ öđrum orđum, hús međ sögu. Reyndar svo langa sögu ađ húsiđ var rúmlega aldar gamalt ţegar Vćringjar séra Friđriks sungu sína latnesku sálma úti fyrir ţví áriđ 1913.
Seinni partinn ţáđi ég bođ Kristínar Ţorsteinsdóttur ađ ganga um Seltjarnarnesiđ undir leiđsögn hennar. Kristín hefur opnađ fyrirtćki sem ber nafniđ NESHRINGURINN og mun ţađ sérhćfa sig í ţjónustu viđ ferđamenn. Fyrirtćkiđ var formlega opnađ í dag međ göngu um Seltjarnarnesiđ. Í fréttatilkyningu sem send var út af ţví tilefni segir m.a.:
"Í hugum margra svefnbćr en ţegar betur er ađ gáđ kemur í ljós spennandi náttúra, einstakt útsýni, athyglisverđ saga og fallegir stađir. Stutt fjarlćgđ frá miđbć Reykjavíkur gerir ţađ ađ spennandi möguleika fyrir ferđamenn ađ kynnast nesinu í göngu međ fararstjórn. Gangan tekur um tvćr klukkustundir og ađ henni lokinni er gott ađ fara í sundlaug Seltjarnarness og hvíla lúin bein í heitum potti..." Slóđ á heimasíđu Neshringsins er www.simnet.is/verde
Mynd hér ađ ofan er frá göngunni um Seltjarnarnesiđ ţegar stađnćmst var viđ Kviku sem er útilistaverk sem hćgt er ađ dýfa í fótum. Verkiđ, sem er eftir Ólöfu Nordal, stendur á Kisuklöppum í fjörunni viđ Norđurströnd og er óvenjulegt ađ ţví leyti ađ gestir og gangandi geta bađađ fćtur sína í ţví. Verkiđ er gert úr heilum grágrýtissteini sem í er sorfin hringlaga fótbađs- eđa vađlaug. Laugin er lýst upp međ mildu rafljósi ađ innanverđu og í hana rennur stöđugt óblandađ, forkćlt jarđhitavatn úr borholum Seltjarnarness, en vatniđ hefur einstaka efnasamsetningu og ţykir hafa sérstaka eiginleika. Myndin hér ađ neđan sýnir hluta gönguhópsins ţegar stađnćmst var á Valhúsarhćđinni. Kristín Ţorsteinsdóttir er önnur frá vinstri á myndinni.
Göngutúrinn var mjög fróđlegur og stórskemmtilegur. Til hamingju Seltirningar međ framtak Kristínar Ţorsteinsdóttur. Megi fyrirtćki hennar eiga bjarta framtíđ.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson












