Annað
31. Mars 2007
ÖRLAGARÍK KOSNING Í HAFNARFIRÐI

Í dag ganga Hafnfirðingar að kjörborðinu og greiða atkvæði um kröfu álrisans Alcans að fá land í Hafnarfirði til að geta næstum þrefaldað umfang núverandi verksmiðju. Gangi þetta eftir munu Hafnfirðingar sitja uppi með stærstu álverksmiðju í Evrópu innan bæjarmarka sinna á svæði sem ella myndi nýtast undir byggð og aðra atvinnustarfsemi.
Það væri dapurlegt í meira lagi ef álrisinn næði sínu fram. Yfirgangurinn hefur verið með ólíkindum. Álrisinn hefur verið látinn komast upp með að ausa fé í kosningabaráttuna; bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa því miður ekki orðið við óskum um að févana grasrótarsamtökum – Sól í Straumi – yrði veittur myndarlegur stuðningur til mótvægis auðhringnum.
Ríkisstjórnin hefur látið óátalið frekleg afskipti álrisans af lýðræðislegum kosningum í Hafnarfirði og minnir það óþægilega á undirgefni svokallaðra bananaríkja gagnvart auðhringum sem tekið hafa sér bólfestu á þeirra landi. En það er ekki einu sinni svo gott að ríkisstjórnin þegi. Hún tekur beinlínis þátt í áróðri Alcans, bæði beint og óbeint. Runólfur skrifar stórgott bréf til síðunnar sem ég hvet alla til að lesa. Hann setur viðhafnarveislu Alcoa á Reyðarfirði í dag í samhengi sem vert er að leiða hugann að.
Runólfur segir m.a.: "Eitt það athyglisverðasta er einmitt það sem gerist þennan dag á Reyðarfirði og í Hafnarfirði; veruleikinn undirstrikar samstöðu auðhringanna hvað sem þeir heita. Þar með er innsiglað bræðralag sem getur orðið fleirum dýrt en Framsóknarflokknum. Ef Hafnfirðingar hafna stækkun og kjósa Hafnarfjörð í staðinn þá er brotinn álhringur sem annars læsist um landið allt. Úrslitin í kvöld hafa landsþýðingu og munu auk þess hafa áhrif á áform allra annarra auðhringa sem síðar meir munu leita til Íslands. Í dag halda Hafnfirðingar á heiðri Íslands."
Bréf Runólfs er HÉR
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOÐSFERÐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARÐ AÐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOÐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












