Annað
18. Mars 2007
ÞRJÁR SPURNINGAR SIGURÐAR – ÞEIM VERÐUR AÐ SVARA !

Í bréfi Sigurðar Bjarnasonar til heimasíðunnar er spurt þriggja grundvallarspurninga. Í fyrsta lagi telur Sigurður að með stækkun álversins væri Hafnarfjörður að loka fyrir þróun byggðar sem teldi 20 til 30 þúsund manns og "fórna strandlengjunni og hraununum suður á bóginn fyrir álverið." Og Sigurður spyr: Hvers vegna "tapa þróunarsamkeppni byggðarlaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir Gunnari Birgissyni?" Í öðru lagi spyr Sigurður hvort ekki hafi verið settar reglur um hámarksgreiðslur stjórnmálaflokkanna í kosningaáróður? "Hvernig má það þá vera að auðhringurinn fær að sáldra um sig gullinu eins og ekkert sé?" Í þriðja lagi spyr Sigurður um lýðræðið.: "Er það lýðræði að sá sem efnir til atkvæðagreiðslunnar það er meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar komist upp með að hafa ekki skoðun? Hvernig liti það út ef Sjálftæðisflokkurinn nú í aðdraganda kosninganna hefði ekki skoðun og segði: Ég ætla að sjá útkomuna úr kosningunum; þá segi ég ykkur hvað ég á að gera. Það er ekki lýðræðislegt að halda skoðun utan við kosningarnar."
Ég hvet alla að lesa bréf Sigurðar, bæði þátttakendur í fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu í Hafnarfirði og fjölmiðlafólk því Sigurður Bjarnason setur fram vangaveltur sem augljóslega eiga erindi inn í þjóðmálaumræðuna. Sjá HÉR
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOÐSFERÐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARÐ AÐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOÐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












