Annað
4. Mars 2007
FLOTT HALLA !
Ég skal játa að þegar Halla Gunnarsdóttir, blaðamaður og knattspyrnukona með meiru, fékk aðeins örfá atkvæði í nýlegu formannskjöri til Knattspyrnusambands Íslands fyrir skömmu þá kom það mér á óvart og olli mér vonbrigðum, ekki hennar vegna heldur vegna KSÍ, sem mér fannst vera að fara á mis við tækifæri til þess að sækja inn í nýjar lendur með þessari kraftmiklu konu.
Þetta segi ég með fullri virðingu fyrir meðframbjóðendum Höllu Gunnarsdóttur. Þegar ég svo horfði á Höllu í Kastljósþættti Evu Maríu í kvöld fann ég að hún var þrátt fyrir allt sigurvegari þessara kosninga. Bæði breytti hún einhverju með framboði sínu – hún skilaði áfangasigri í baráttu kvenna – okkur fannst mörgum hún vera eftirsóknarverður frambjóðandi í þessu gamla karlavígi - og auk þess er ég sannfærður um að Halla Gunnarsdóttir hefur með málflutningi sínum og baráttu sáð í jarðveginn og að hún muni uppskera þegar þar að kemur: "Þetta er bara rétt að byrja – þetta er barátta sem heldur áfram – að bera út fagnaðarerindið sem fótboltinn er." Þessi barátta snýst í huga Höllu ekki um Höllu. Heldur um að allir fái að njóta íþróttarinnar, strákar og stelpur, karlar og konur. Þannig skildi ég viðmælanda Evu Maríu í Kastljósi kvöldsins.
Það er þessi hugsun um frelsið sem höfðar til mín. Frelsisþrána segir Halla Gunnarsdóttir vera þann drifkraft sem knýi sig áfram og hún leggur þar áherslu á kvenfrelsisbaráttu, frelsi kvenna til að stjórna lífi sínu: "...það er þessi mikla frelsisþrá, að allir eigi að hafa þetta mikla frelsi, frelsi til að velja, að konur verði frjálsar." Sammála.
Kastljósið er HÉR.
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOÐSFERÐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARÐ AÐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOÐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












