Annað
27. Febrúar 2007
SKIPTIR MANNELDISSTEFNA STJÓRNVÖLD ENGU MÁLI?

Ég trúi því ekki fyrr en í fulla hnefana að öllum sé sama þótt Alþingi samþykki skattabreytingar þvert á ráðleggingar Lýðheilsustöðvar, stofnunar sem sett var á laggirnar til að ráðleggja stjórnvöldum, þar með talið löggjafanum í manneldismálum.
Fyrir þinginu liggur frumvarp um breytingar á virðisaukaskattslögum. Frumvarpið er tæknilegs eðlis en engu að síður nauðsynlegt svo matarskattslækkunin 1. mars geti komið til framkvæmda. Við þetta frumvarp legg ég fram breytingartillögu þess efnis að gosdrykkir og sykraðir drykkir verði undanskildir fyrirhuguðum lækkunum á virðisaukaskatti og vörugjöldum og styðst ég þar við álit Lýðheilsustöðvar frá í desember þegar matarskattslækkunin kom til umfjöllunar á Alþingi. Lýðheilsustöð ritaði þá þingmönnum bréf þar sem þeir voru beðnir lengstra orða að undanskilja gosið og sykurdrykkina fyrirhuguðum lækkunum.
Við þessu var ekki orðið nema hvað þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs studdu málstað Lýðheilsustöðvar sem byggður var á traustum rökum, nefnilega þeim að rannsóknir hefðu sýnt að börn og unglingar væru næm fyrir verðstýringu og væri hætt við því að þessi skattalækkun myndi enn auka gosþambið í landinu. Heilsu ungu kynslóðarinnar væri þar með í voða stefnt.
Nokkrir þingmenn stjórnarmeirihlutans sögðu að ráðrúm væri til að endurskoða málið því breytingin á vörugjöldum og virðisaukaskatti kæmi ekki til framkvæmda fyrr en 1. mars. Nú er sá dagur að renna upp.
Ég skrifaði pistil um þetta málefni hér á síðuna fyrir fáeinum dögum þar sem ég hvatti til umræðu um þetta málefni. Vonaðist ég til að fram færi umræða í þjóðfélaginu í tæka tíð til að afstýra slysi. Engin sjáanleg viðbrögð urðu. Það eru vonbrigði. Í dag er gosmálið fyrsta mál á dagskrá Alþingis.
Athyglisvert verður að fylgjast með afstöðu þingmanna og þá einnig fjölmiðla. Getur það verið að öllum sé sama þótt löggjafinn stýri óhollustunni niður í æsku landsins? Sjá nánar HÉR.
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLÆTI
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIÐ VONBRIGÐUM!
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGÐ Í MUNNINN
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓÐ KVEÐJA
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
Jón Jón Jónsson












