Annađ
30. Desember 2006
HEIĐURSMAĐUR GEFUR ÍSLENSKA FÁNANN

Ég varđ í gćr ţess mikla heiđurs ađnjótandi ađ taka viđ íslenska fánanum ađ gjöf frá Pétri Kristjánssyni, sem Reykvíkingum og landsmönnum mörgum er ađ góđu kunnur fyrir óeigingjörn störf um áratugaskeiđ. Varla hefur sá atburđur átt sér stađ í höfuđborginni ţar sem ţurft hefur ađ setja upp öflugan eđa flókinn hljóđbúnađ ađ Pétur hafi ekki stýrt ţar málum.
Pétur Kristjánsson er auk ţess ötull félagsmálamađur, vakinn og sofinn í starfi fyrir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og ţar međ BSRB.
Viđ afhendingu fánans lagđi Pétur áherslu á nauđsyn ţess ađ hafa íslenska fánann í heiđri og skyldu Vinstri grćn minnast ţess í komandi kosningabaráttu og í kjölfariđ, hugsanlega viđ stjórnvöl landsins, ađ ţeim vegnađi vel sem héldu í heiđri ţađ sem íslenskt er.
Ég met mikils ţessa gjöf Péturs Kristjánssonar og ţann hug sem ađ baki henni býr.
Um gjöf Pétur Kristjánssonar var fjallađ í Morgunblađinu í dag:
"PÉTUR Kristjánsson, áhugamađur um rétta notkun á íslenska fánanum, gaf á ađventunni forsćtisráđuneytinu fána á stöng sem hann hafđi sjálfur smíđađ ađ mestu. Ekki reyndist pláss fyrir fánastöngina í híbýlum ráđuneytisins og var Pétur beđinn ađ fjarlćgja fánann sem hann og gerđi. Ađ endingu fann Pétur gjöfinni eiganda í Ögmundi Jónassyni ţingmanni Vinstri grćnna.
Tilgangurinn međ gjöfinni var ađ vekja athygli ráđuneytisins á notkun fánans en Pétri finnst hann of lítiđ notađur á opinberum vettvangi. Hann hafi í sumar reynt ađ ná sambandi viđ Geir H. Haarde forsćtisráđherra til ađ bjóđa honum fánastöngina en ekki náđ í ráđherrann en rćtt máliđ viđ starfsmenn ráđuneytisins. Ađ sögn Péturs gaf hann ţeim sjálfdćmi um hvernig stöngin yrđi á litinn en fékk aldrei skýr svör um ţađ. Hann lét ţetta ekki á sig fá heldur smíđađi fánastöng međ fćti og kom henni til skila í ráđuneytiđ.
Hinn 22. desember var hringt frá ráđuneytinu og honum tjáđ ađ ekki vćri pláss fyrir stöngina í híbýlum ţess og hann beđinn ađ fjarlćgja hana og varđ Pétur viđ ţví. "Ég fór og náđi í stöngina og hún er nú bara uppi á skrifstofu hjá mér í vinnunni," segir Pétur sem gaf síđar Ögmundi Jónassyni stöngina sem hann ţáđi međ ţökkum.
Fánanum of lítiđ hampađ
Pétur segir ađ í raun hafi gjöfin veriđ gárungsháttur en hann hefđi ţó taliđ ađ einhvers stađar vćri pláss fyrir stöngina, t.d. í fundarsal ráđuneytisins, sumarbústađnum á Ţingvöllum eđa í ráđherrabústađnum. Fánanum vćri alltof lítiđ hampađ af ráđherrum og ţingmönnum og tími vćri kominn til ađ gera bragarbót ţar á. Pétur hefur lengi haft áhuga á réttri notkun íslenska fánans og hefur ritađ nokkrar greinar um ţađ í dagblöđ, sú nýjasta birtist í Morgunblađinu á Ţorláksmessu.Halldór Árnason ráđuneytisstjóri sagđi í samtali viđ Morgunblađiđ ađ ţví miđur hefđi ekki fundist stađur fyrir stöngina innan veggja ráđuneytisins, ţ.m.t. í bústađnum á Ţingvöllum og ráđherrabústađnum."
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOĐSFERĐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARĐ AĐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOĐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AĐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRĆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












