Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

26. Nóvember 2006

STYRMIR OG EGILL

Fagna ber þeirri umræðu sem hefur verið að glæðast að undanförnu um hvert stefni í íslensku þjóðfélagi – og þá einnig hvert við viljum stefna með samfélag  okkar. Skrif hér á síðunni um "þotuliðið" í bönkunum, yfirgang þess og tilætlunarsemi, urðu mörgum tilefni til skrifa og umræðna. Sigurður Einarsson, forsvarsmaður KB banka vissi strax hvað klukkan sló og skildi réttilega að hér voru á ferðinni ábendingar, sem ættu erindi í umræðu samtímans.
Sigurður vildi greinilega taka á málinu á dýptina, nokkuð sem vart verður sagt um umfjöllun Egils Helgasonar í Silfri Egils á Stöð 2 í dag.

Egill tekur þann kost að halda sig á grunnslóð, ef svo má að orði komast,  þegar hann fjallar um "jafnaðarsamfélagið" í upphafi þáttar síns í dag. Egill fór víða um Reykjavíkurborg í leit að táknrænni myndskreytingu með texta sínum. Birtist hann til dæmis fyrir framan barnaskóla og býsnaðist yfir því að gáfuð börn og "heimsk" skyldu þurfa að eiga samleið þar innan dyra.
Sá sem þetta skrifar fékk eftirfarandi trakteringu: "Ögmundur Jónasson vill líka jafna að ofan. Hann telur best að bankarnir fari úr landi með gróða sinn. Honum líst betur á að allir séu jafn blankir en að sumir séu ríkir. Verst að þetta hefur verið reynt áður og gafst ekki sérlega vel. Hugmynd kommúnista um jöfnuð var að enginn mætti eiga neitt, allt skyldi vera ríkiseign. Stundum eru Vinstri grænir ekki komnir sérlega langt frá upprunanum."
Sannast sagna finnst mér að Egill mætti vera ögn örlátari á vitsmuni sína en hann stundum er í þætti sínum. Ég tala nú ekki um þegar í hlut á maður, sem telur sig þess umkominn að tala niður til fólks sem hann dæmir úr leik sökum "heimsku".
Það er vandasamt verk að stýra þjóðfélagsumræðunni, leggja út af orðum manna og setja þau í samhengi sem er gefandi fyrir framhald umræðunnar.
Kannski Egill Helgason ætti að temja sér að lesa meginmálið betur, til dæmis hjá mönnum á borð við Noam Chomsky, sem mig rámar í að hann hafi einhverju sinni slegið um sig með. Hann gæti þá lært sitthvað um fjölmiðla, talsmenn og valdsmenn.

 Ef Egill var göslandi í yfirborðinu má segja að Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, hafi haldið sig á djúpsævi í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld. Í prýðilegu bréfi sem barst til síðunnar eftir Kastljósþáttinn frá Ólínu, vekur hún athygli á því hve umhugað Styrmi virðist vera að setja á dagskrá umræðu um þá andhverfu jafnaðarsamfélagsins sem er að birtast okkur hér á landi þessi misserin í formi vaxandi misréttis, fákeppni og einokunar. Ólína hvetur til þess að við hendum þennan bolta á lofti og bætum heldur í, tökum einnig til umfjöllunar enn einn fylgifisk misréttissamfélagsins, kúgunina. Ólína segir í þessu bréfi m.a.um Kastljósviðtalið við Styrmi:
"Hann er að tala um þá sem hafa farið með völdin síðustu fimmtán ár. Hann er með sínu lagi að draga upp mynd af samfélagsbreytingunum sem hér hafa orðið og byggjast á afnámi hafta, einavæðingu og byltingu í skattkerfi landsins þeim í hag sem mega, eiga og erfa. Þessi mannanna verk, breytingarnar á skattkerfi fyrirtækjanna, setning laganna um einkahlutafélög, breytingar á skattlagningu tekna sem vaxtaorkur, verð- og hlutabréf skila eigendum sínum og sala á eignum ríkisins langt undir markaðsvirði, allt þetta hefur fætt af sér einokun og valdasamþjöppun. Í skálaræðum tala stjórnmálamenn um að aðgerðirnar sem hér er rætt um hafi verið almennar og gripið til þeirra til að tryggja almannahag. Landstjórnin síðustu fimmtán ár hefur skilað okkur samfélagi sem einkennist af einokun, valdasamþjöppun og seljendum vöru og þjónustu sem okra á neytendum án þess að stjórnvöld hafi beitt valdi sínu til að koma í veg fyrir þessar afleiðingar. "
Og enn segir: "Ég bíð eftir að ritstjórinn fjalli beint um eina afleiðingu þeirra mannanna verka sem nú er að grafa um sig í íslensku samfélagi, kúgunina...í orðum ritstjórans felst að mínu áliti hvatning til að taka til umræðu aðgerðir og afleiðingar sem hugsanlega eru að skapa hér samfélag sem engin okkar hefur kosið sér – ekki einu sinni þeir sem af takmarkaðri útsýn misstu úr böndunum það sem þeir töldu sig vera að gera réttast. Viðtalið við ritstjórann kallar á upplýsta, fordómalausa umræðu um framtíðina.."
Undir þessi orð vil ég taka.


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta