Annađ
8. Október 2006
RÚSSNESKI FÁNINN, NAGLAKLIPPURNAR Í LEIFSSTÖĐ OG ÖRYGGI BORGARANS
Ungir menn stálu fána rússneska sendiráđsins í "fylliríi" ađ sögn fréttastofu RÚV. Rússar mótmćltu kröftulega og kröfđust ađgerđa. Ungu mennirnir gáfu sig fram og báđust afsökunar. Máliđ úr sögunni. Ekki aldeilis, ţví viti menn, í kvöldfréttum kom fram ađ Rússar litu máliđ enn grafalvarlegum augum og sama var ađ skilja á okkar mönnum í utanríkisráđuneytinu viđ Rauđarárstíginn í Reykjavík. Hugsanlega ţyrfti ađ efla öryggisgćslu viđ sendiráđ í Reykjavík svo alvarlegt vćri ţetta mál.
Eflaust eiga Rauđarármenn ekki annarra kosta völ en taka undir međ Rússum af diplómatískum ástćđum. Vonandi eru ţeir í hjarta sínu ekki rússnesku diplómatíunni sammála og vona ég ađ ekki verđi ráđist í kostnađarsamar öryggisađgerđir vegna ţessa. Sama kvöld og ţessi atburđur átti sér stađ var sagt frá ţví ađ ráđist hafđi veriđ á mann í miđbć Reykjavíkur og honum misţyrmt herfilega. Mađurinn var stórslasađur. Talađ var um fólskulega árás. Árásin lyktađi af eiturlyfjum. Ađ mínum dómi er hér um mun alvarlegri atburđ ađ rćđa en hinn "grafalvarlega" fánastuld og ástćđa til ađ grípa til ađgerđa.
Í stađ ţess ađ verja fána Rússa, setja á fót leynilögreglu, efla víkingasveitir og taka naglaklippur af flugfarţegum í Leifsstöđ, eigum viđ ađ hyggja ađ raunverulegu öryggi almennings. Ţađ gerum viđ međ ţví ađ efla almenna löggćslu, upprćta fíkniefnasölu og síđast en ekki síst leita allra leiđa til ađ koma í veg fyrir ađ fólk sćkist eftir fíkniefnum. Ţessi upptalning er í öfugri forgangsröđ.
Skyldi ekki vera samhengi á milli ţess annars vegar ađ ungt fólk međ geđraskanir fćr ekki ađhlynningu og lćkningu vegna ţess hve ţrengt er ađ geđheilbrigđisţjónustunni og hins vegar ásóknar ţessa sama fólks í eiturlyf síđar á lífsleiđinni? Er ţađ ekki grafalvarlegra mál en ţađ ráđslag drukkinna ungmenna ađ stela fána – sjá ađ sér og biđjast afsökunar?
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOĐSFERĐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARĐ AĐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOĐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AĐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRĆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












