Annað
18. Júlí 2006
NAUÐSYN Á UMRÆÐU UM SPILAFÍKN
Fyrir nokkrum dögum birti ég pistil hér á síðunni, þar sem spurt var hvort sama væri hvernig Háskóla Íslands væri komið í fremstu röð, sbr. HÉR. Kveikjan að pistlinum var áhrifaríkt lesendabréf frá manni, sem haldinn er spilafíkn en í bréfi sínu víkur hann orðum að þeim stofnunum í þjóðfélaginu sem gera út á spilafíknina í fjáröflunarskyni en Háskóli Íslands er sem kunnugt er ein þessara stofnana, sbr. HÉR.
Umræddur pistill um Háskóla Íslands fékk nokkra umfjöllum í fréttum og mér hafa borist bréf og fyrirspurnir, sem sum hafa birst hér á síðunni, í öðrum tilvikum hefur verið óskað eftir því sérstaklega að bréfin birtust ekki. Einnig hafa mér borist umvandanir og varnaðarorð þar sem hvatt er til hófsemi í umræðunni. Allt er þetta vel meint. Af viðbrögðum fólks úr báðum herbúðum ræð ég hins vegar hve bælt vandamál er hér á ferðinni. Fólk sem haldið er sjúklegri spilaáráttu, og þá ekki síður aðstandendur þeirra, vilja umræðu um vandann, þótt þeir eigi illmögulegt að taka þátt í henni; þeir sem fá afraksturinn í vasann vilja helst að um vandann sé þagað.
Háskóli Íslands og líknar- og hjálparstofnanir á borð við Rauða kross Íslands, Landsbjörg og SÁÁ, sem hagnast á spilavítisélum, verða að axla ábyrgð í þessu efni og það gera þau á þann hátt einan að segja sig algerlega frá fjáröflun af þessu tagi.
Augljóst er að það ætlar að reynast þessum aðilum þrautin þyngri. Í reynd eru það tveir aðilar sem háðir eru spilafíkninni: Sá sem spilar og hinn sem hagnast á sjúkleika hans. Að sumu leyti er síðara hlutskiptið dapurlegra.
Ég hef verið beðinn um að vísa á fyrri skrif mín um þetta efni. Hægt er að slá upp leitarorði hér á síðunni – í þessu tilviki er orðið spilafikn - og koma þá fram þær greinar sem birst hafa hin síðari ár um þetta efni, eftir að ég opnaði þessa heimasíðu, að því tilskyldu að sjálfsögðu að orðið spilafíkn komi fyrir í skrifunum.
Hér má finna hluta af þessum skrifum. Listinn er ekki tæmandi.
http://ogmundur.is/news.asp?ID=655&type=one&news_id=1000
http://ogmundur.is/news.asp?ID=655&type=one&news_id=1563
http://ogmundur.is/news.asp?ID=655&type=one&news_id=1979
http://ogmundur.is/news.asp?ID=655&type=one&news_id=1994
http://ogmundur.is/news.asp?ID=658&type=one&news_id=822
http://ogmundur.is/news.asp?ID=658&type=one&news_id=835
http://ogmundur.is/news.asp?ID=658&type=one&news_id=836
http://ogmundur.is/news.asp?ID=658&type=one&news_id=856
http://ogmundur.is/news.asp?ID=658&type=one&news_id=1003
http://ogmundur.is/news.asp?ID=658&type=one&news_id=1033
http://ogmundur.is/news.asp?ID=658&type=one&news_id=1567
http://ogmundur.is/news.asp?ID=661&type=one&news_id=1564
http://ogmundur.is/news.asp?ID=661&type=one&news_id=1573
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOÐSFERÐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARÐ AÐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOÐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












