Annað
4. Júlí 2006
A JOYFUL OCCASION?
Þetta voru orð forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar þegar hann bauð George Bush eldri velkominn á Bessastaði í kvöld í boði embættis síns og þar með íslensku þjóðarinnar: Gleðilegur viðburður.
Nú hef ég ekkert á móti því að fyrrverandi forseti Bandaríkjanna heimsæki Ísland og þess vegna líti við á Bessastöðum ef um kunningsskap er að ræða með honum og íbúum þar. Sjálfsagt er að taka vel á móti fólki, einnig þessum manni.
Mér finnst það hins vegar vera umhugsunarefni, sé það rétt skilið hjá mér, að forseti Íslands hafi boðið þessum manni sérstaklega til landsins. Það hlýtur þá að hafa einhverja táknræna merkingu. Og þar staldra ég við. Þessi fyrrum forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar, CIA og forseti Bandaríkjanna og vel að merkja faðir núverandi forseta er tákngervingur bandaríska valdakerfisins nú um stundir; kerfis sem er ábyrgt fyrir mestu h
Fulltrúa þessa kerfis er nú – einmitt nú þegar heimurinn er að vakna til vitundar um hættuna, sem stafar af ráðandi öflum í Bandaríkjunum - boðið sem sérstökum heiðursgesti að Bessastöðum. Hvers vegna í ósköpunum? Ef bjóða á kunnum Bandaríkjamanni til Íslands og að Bessastöðum, væri hægt að finna ótölulegan fjölda vísinda- og listamanna, baráttumanna fyrir mannréttindum og lýðræðislegum gildum í stað þess að velja fulltrúa h
Það á að vanda gestavalið á Bessastöðum. Eðlilegast er að þangað komi gestir sem eru í forsvari fyrir þjóðir, stofnanir og samtök. Þegar sleppir formlegheitunum taka við hin persónulegu tengsl. Ef forseta Íslands langar til að fara í brúðkaup barna norræns þjóðhöfðingja þá fer hann það á eigin vegum, prívat og persónulega. Ef hann langar til að taka á móti föður Bandaríkjaforseta, þá gildir hið sama. Um leið og slíkt er gert í nafni embættis forseta Íslands er gesturinn orðinn á okkar vegum, íslensku þjóðarinnar og því eðlilegt að um málið sé fjallað í slíku samhengi.
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOÐSFERÐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARÐ AÐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOÐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












