Annað
30. Júní 2006
FRÁ FÆÐINGU KÓLUMBUSAR AÐ VINNA UPP Í STARFSLOKASAMNING

Fyrir fáeinum dögum birti Blaðið frétt, sem ekki fór mjög hátt í fjölmiðlaheiminum. Blaðið taldi sig hafa heimildir fyrir því að fráfarandi forstjóri Straums Burðaráss fengi starfslokagreiðsu, sem næmi einum milljarði króna nú þegar honum hefði verið sagt upp störfum. Blaðið segir að þessi samningur hafi verið gerður á milli forstjórans og þáverandi stjórnarformanns. Í fréttinni er svo haft eftir honum að hann myndi“ekkert eftir því hvernig samningar voru gerðir á sínum tíma.”
Milljarður til eða frá, hver man eftir slíku smáræði? Það er tímanna tákn að starfslokasamningur af þessu tagi skuli varla vekja athygli sem nokkru nemur enda þjóðin orðin vön að fylgjast með slættinum á milljarðamæringunum. Hér er þó um að ræða upphæð sem tæki láglaunamann með 150 þúsund á mánuði “einungis” fimm hundruð fimmtíu og fimm ár að vinna fyrir. Hann hefði með öðrum orðum verið sleitulaust að frá árinu 1451, því herrans ári sem landkönnuðurinn mikli Kólumbus fæddist, en óþarfi er að kynna þann fræga Ameríkufara til sögunnar.
Fyrir nokkrum árum var mikil gagnrýni uppi í þjóðfélaginu vegna svokallaðra biðlauna opinberra starfsmanna. Ef staða sem opinber starfsmaður hafði gegnt var lögð niður átti hann rétt á launum í 6 mánuði eða 12 mánuði ef hann hafði verið í starfi í meira en 15 ár, það er að segja ef um var að ræða ævistarf viðkomandi. Þessu var breytt með lögum árið 1996 og gildir biðlaunarétturinn ekki um nýráðningar frá þeim tíma. Þetta var að mínum dómi slæm og ósanngjörn lagabreyting. Hvað um það, svona gekk þetta fyrir sig. Það er þó ómaksins vert að bregða sér í samanburðarfræðin. Ársbiðlaun ein
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOÐSFERÐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARÐ AÐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOÐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












