Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

20. Apríl 2006

ÞAÐ ER HÆGT AÐ LAGA RÍKISÚTVARPIIÐ ÁN HÁEFFSINS

Birtist í Morgunblaðinu 19.04.06.
Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, segir það vera brýnt hagsmunamál að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag. Nýráðinn útvarpsstjóri, Páll Magnússon, tekur undir með ráðherra og ríkisstjórn og segir það vera mikið hagsmunamál að stjórnarfrumvarpið um RÚV hf verði samþykkt. Vísar hann m.a. máli sínu til stuðnings til þriggja Norðurlandanna, Finnlands, Svíþjóðar og Noregs (sbr. Mbl. 12. apríl), þar sem útvarpsstöðvarnar eru hlutafélög.
Ekki veit ég hve vel ígrundaður þessi samanburður útvarpsstjórans er. Það er vissulega rétt að þjóðarútvarpsstöðvarnar í þessum löndum eru hlutafélög. Sögulegur bakgrunnur er hins vegar mismunandi. YLE í Finnlandi var upphaflega stofnað sem hlutafélag í einkaeigu og kom ríkið á seinni stigum inn í eignarhaldið. Í Svíþjóð er byggt á gamalgróinni hefð þar sem aðskiljanlegum aðilum hefur verið tryggð aðkoma að stofnuninni. Hvað Noregi viðkemur, þá var það svo að NRK, ríkisútvarp þeirra Norðmanna hafði verið mjög miðstýrð stofnun áður en rekstrarforminu var breytt árið 1996. Allar ákvarðanir, stórar og smáar, þar með taldar heimildir um fjölgun starfsmanna, þurftu að fara í gegnum ráðuneyti og jafnvel þingnefndir áður en þær komust til framkvæmda. Slíkt kerfi var óbærilega þungt í vöfum og skiljanlegt að menn vildu breyta um form. Ríkisútvarpið íslenska er ekki í sambærilegri stöðu og norska útvarpið var í. Í fyrsta lagi er það svo að miðstýring í ríkiskerfinu hér á landi er nú miklu minni en áður var, bæði hvað snertir mannahald, kaup og kjör og aðrar ákvarðanir. Í öðru lagi er Ríkisútvarpið svokölluð B-hlutastofnun og sem slík mjög sjálfráð um allar sínar gjörðir. Þegar Rás 2 var sett á laggirnar á sínum tíma gerðist það með þeim hætti að Andrés Björnsson, þáverandi útvarpsstjóri, skipaði þriggja manna nefnd til að skoða kosti í stöðunni og í kjölfarið undirbúa stofnun rásarinnar. Skömmu síðar var opnað fyrir Rás 2!
Varla getur þetta talist þunglamalegt kerfi. Ég hef einnig velt því fyrir mér hvort Ríkisútvarpið og stjórnendur þess, hafi verið látnir njóta sannmælis í oft óvæginni gagnrýni í þeirra garð á undanförnum árum. Þar vísa ég í framfarir á ýmsum sviðum í samræmi við kröfur tímans; lenging sjónvarpsdagskrár, þróun Rásar 2 og dægurmálaumfjöllunar, starfsemi svæðisstöðva, textavarp, RÚV-vefur, flutningur og tækjavæðing í Útvarpshúsinu o.fl. Jafnframt hefur verið hlúð að hefðum menningarútvarpsins. Auðvitað eru skoðanir skiptar um áherslur í dagskrá hverju sinni en hin dökka mynd sem dregin er upp af ríkisstofnuninni RÚV á ekki við hvað þessa þætti áhrærir. Að sjálfsögðu hefði mátt gera miklu betur með rýmri fjárráðum.

Metnaðarleysi menntamálaráðherra
 
Í samanburðarfræðum sínum nefnir Páll Magnússon ekki eitt Norðurlandanna, þ.e. Danmörku. Það mætti gjarnan verða honum og menntamálaráðherra sérstakt rannsóknarefni, hvernig á því geti staðið að Danmarks Radio, ríkisstofnun sem fjármögnuð er með afnotagjöldum, gat framleitt og selt til 42 Evrópulanda Matador - margverðlaunaðan þátt, eða Króníkuna, eða Taxa, eða Rejseholdet - eða það sem safnar Íslendingum fyrir framan viðtækin - sakamálaþáttinn Örninn sem fékk alþjóðleg verðlaun fyrir nokkrum mánuðum, eins og fleiri þættir, sem DR hefur framleitt? Og hvað er það í danska ríkisrekstrinum og afnotagjöldunum sem er öðruvísi en hjá Ríkisútvarpinu? Vildi menntamálaráðherra gera grein fyrir því? Ætli stöðu Ríkisútvarpsins megi ef til vill skýra út frá metnaðarleysi þeirra þriggja ráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem hafa verið æðstu yfirmenn stofnunarinnar undanfarin mörg ár? Ætli stöðu RÚV megi rekja til sveltistefnu; til andstöðu ráðherranna við menningarstofnunina, andstöðu, sem nú að lokum er að leiða til þess að Ríkisútvarpinu verður, ef illa fer, breytt í einkafyrirtæki með liðsstyrk þeirra sem opnir eru í báða enda í versta skilningi þess hugtaks!

Beitum skynsemi til breytinga
 
Sitthvað hefur verið gagnrýnt hjá RÚV og má margt betur fara þar í stjórnsýslunni. En mikilvægt er að þær breytingar sem gerðar verða á lagaumgjörð stofnunarinnar komi til móts við rökstudda gagnrýni og sníði af raunverulega annmarka. Það gerir stjórnarfrumvarpið ekki enda engan rökstuðning að hafa frá ríkisstjórninni, annan en staðhæfingu um að hlutafélagaformið sé gott! Það er mikið rétt að hlutafélagaformið er ágætt þar sem hluthafar eru fleiri en einn og veita viðkomandi starfsemi raunverulegt aðhald sem fyrirtæki á markaði. Ríkisútvarpið er hins vegar menningar- og þjónustustofnun sem rekin er með önnur markmið að leiðarljósi en fyrirtæki sem ætlað er að skapa eigendum sínum arð. Ég hvet áhugafólk um framtíð Ríkisútvarpsins að kynna sér frumvarp þingflokks VG um Ríkisútvarpið. Samkvæmt því yrðu gerðar umtalsverðar breytingar á stjórnsýslu stofnunarinnar. Þær myndu gera stjórnsýsluna í senn markvissari og lýðræðislegri. Losað yrði um pólitískt meirihlutavald yfir stofnuninni, pólitískar mannaráðningar yrðu úr sögunni og fleiri straumum úr þjóðfélaginu veitt að Ríkisútvarpinu en verið hefur til þessa. Frumvarp ríkisstjórnarinnar herðir hins vegar hin pólitísku tök og færir pólitískt ráðnum útvarpsstjóra nánast alræðisvald í rekstri stofnunarinnar, bæði yfir mannahaldi og framkvæmd dagskrár. Skyldi eiganda Ríkisútvarpsins, íslensku þjóðinni, finnast það vera eftirsóknarverður kostur? Væri ekki rétt að spyrja þjóðina, þótt ekki væri nema óbeint, með því að fresta samþykkt stjórnarfrumvarpsins fram yfir næstu kosningar?

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLÆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIÐ VONBRIGÐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGÐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓÐ KVEÐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta