Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

8. Apríl 2006

GLEYMDI EINUM

Í gær fjallaði ég um helstu samstarfsmenn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra um breytingar á lögum um útvarpsrekstur í landinu. Þetta er frjálshyggjuvængur Sjálfstæðisflokksins, þeir Pétur H. Blöndal, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar þingsins og Birgir Ármannsson, varaforseti Alþingis. Þessir samstarfsmenn menntamálaráðherra styðja frumvarp hennar þótt þeir vilji reyndar ganga skrefi lengra en ráðherra, láta ekki staðar numið við hlutafélagavæðingu heldur selja Ríkisútvarpið hið allra fyrsta. Þar skilja hins vegar leiðir með þessum mönnum og Páli Magnússyni, útvarpsstjóra. Hann er þó einn harðdrægasti stuðningsmaður menntamálaráðherra um að hlutafélagavæða RÚV. Auðvitað átti ég að heiðra Pál með ljósmynd í hópnum frá í gær um áhuga á hlutafélagavæðingu útvarpsins því enginn gengur harðar fram en hann við að ýta á hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag ræðst hann á Þorstein Pálsson ritstjóra Fréttablaðsins fyrir að gagnrýna áform ríkisstjórnarinnar. Útvarpsstjóri bregst ekki við röksemdafærslu ritstjóra Fréttablaðsins, sem að mínu mati er mjög vel ígrunduð. Nei, Páll Magnússon reynir að afgreiða Þorstein Pálsson út af borðinu með því að brigsla honum um að ganga erinda atvinnurekanda síns! Greinin heitir enda Samræmd hagsmunagæsla. Þetta eru nákvæmlega sömu viðbrögð og komu frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra við gagnrýni ritstjóra Fréttablaðsins. Er þetta sæmandi? Ekki þykir mér það. Hefur þetta fólk engin rök til að tefla fram? Ætlar ríkisstjórnin að ráðast í breytingar á þessari gamalgrónu menningarstofnun á grundvelli sjónarmiða sem ekki þola rökræðu?

HÉR
HÉR
HÉR mun ég setja leiðara Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu um RÚV.

Eftirfarandi er síðan grein Páls Magnússonar útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins í Morgunblaðinu í dag. 

Páll Magnússon

Samræmd hagsmunagæsla

ÞAÐ rekur nú hver forystugreinin aðra í dagblöðum 365 miðla, Fréttablaðinu og DV, þar sem frumvarpi til nýrra laga um Ríkisútvarpið er fundið flest til foráttu.

ÞAÐ rekur nú hver forystugreinin aðra í dagblöðum 365 miðla, Fréttablaðinu og DV, þar sem frumvarpi til nýrra laga um Ríkisútvarpið er fundið flest til foráttu. Kveður svo rammt að þessu að annar leiðarahöfundurinn er farinn að vitna í hinn og bráðum mun hinn trúlega fara að vitna í annan - og svo báðir í sjálfan sig. Og ekki nóg með það: fréttahluti þessara blaða - sem raunar verður æ erfiðara fyrir lesandann að greina frá skoðanahlutanum í þessu máli - er stútfullur af hinum neikvæðari umsögnum um þetta frumvarp á meðan hinar jákvæðari liggja óbættar hjá garði. NFS, sem líka tilheyrir auðvitað 365 miðlum, stígur svo dansinn með systkinum sínum - gerir m.a. skoðanir ritstjóra Fréttablaðsins að sérstöku fréttaefni hjá sér og sækir viðbrögð við þeim.

Og hver skyldi nú vera skýringin á þessu samræmda göngulagi? Af hverju marséra nú allir miðlarnir í takt í fjölmiðlasamsteypunni í Skaftahlíð? Svar: Þeim þykir hagsmunum eigandans ógnað.

Forstjóri 365 miðla, Ari Edwald, útskýrði þetta af fullum heiðarleika og einlægni á hádegisverðarfundi Heimdallar fyrir skömmu. Hann sagði efnislega að ef RÚV yrði gert kleift að auka skilvirkni og hagkvæmni í rekstri myndi það skekkja samkeppnisstöðuna á þessum markaði. Með öðrum orðum: Það er beinn hagur eiganda 365 miðla að RÚV sé rekið með óskilvirkum og óhagkvæmum hætti. Í því ljósi verður að skoða þennan málflutning. Hagsmunir skattgreiðenda, eða almennings, skipta augljóslega minna máli í þessu samhengi.

Og miðlar 365 hlýða kallinu, sem kannski er mannlegt en ekkert sérstaklega stórmannlegt - og allra síst trúverðugt.

Höfundur er útvarpsstjóri.


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOÐSFERÐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARÐ AÐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOÐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta