Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

7. Mars 2006

SJÓNARMIÐ ÞJÓÐVILJANS Á SKAGANUM OG ÁLVAKAN Í HLJÓMALIND

Ég hef fengið nokkur viðbrögð á ummæli mín á Alþingi í gær um hótanir Alcan um að loka álverinu í Straumsvík, yrði ekki farið að vilja álrisans um heimildir til stækkunar álversins. Ég byggði á ummælum Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra hvað þetta snertir. Hann kallaði þetta ekki hótanir en í mínum huga var augljóst að álrisinn hafði gert forsætisráðherra þjóðarinnar ljóst hvaða afleiðingar það myndi hafa yrði ekki farið að vilja hans.

Ýmsir hafa tekið allt annan pól í hæðina en ég gerði og má þar nefna ágætan fastan penna hér á síðunni, Helga Guðmundsson, en á ágætri heimsíðu sem hann rekur, Þjóðviljanum á Skaganum,  ( viðeigandi heiti á síðu hjá þessum fyrrum ritstjóra Þjóðviljans) segir hann: "Forsætisráðherrann atyrðir VG stöðugt fyrir að vera á móti álstefnunni og vilja bara gera „eitthvað annað”. Kannski nú sé að skapast lag til að gera „eitthvað annað” með því að taka ALCAN á orðinu og segja: Elskurnar mínar. Því fyrr sem þið lokið því betra. Við höfum sjálf nóg not fyrir orku á því verði sem þið borgið." Og enn segir Helgi: "Álverið í Straumsvík er á herfilegum stað og hindrar eðlilega þróun byggðar í Hafnarfirði. Það stendur í jaðri bæjarstæðisins og íbúðabyggðin þrengir orðið að því eins og umsátursher. Í stuttu máli myndi engum heilvita manni detta í hug að setja niður nýtt álver á þessum stað. Eigendurnir vilja stækka og endurbæta en réttast væri að stöðva öll áform um stækkun eins og nú er talað um. Hvers vegna? Aðallega af tveimur afskaplega þýðingarmiklum ástæðum. Í fyrsta lagi vegna þess að verksmiðjan er að verða eins og ólæknandi kýli á byggðinni í Hafnarfirði. Með því að leggja hana niður eða farlægja hana fæst dýrmætt byggingaland sem Hafnfirðingum veitir sannarlega ekki af (og höfn í kaupbæti). Í öðru lagi losna eitt – tvö orkuver til annarra nota ef slökkt er á kerjunum í Straumsvík." Sjá nánar HÉR.
Annar aðili sem fram hefur komið og fagnað yfirlýsingum Alcans eru aðstandendur
 "Ál Andvöku" sem ber yfirskriftina:
Gerum betur, Ísland nr 1.Hún verður haldin í dag og hefst klukkan 17:30 á Kaffi Hljómalind."

Í fréttatilkynningu frá aðstandendum Álvökunnar er staðhæft og spurt í senn:
" Alcan flýr land og lokar í Straumsvík ?
Fagnað verður þeim fréttum sem borist hafa um að álverinu í Straumsvík verði lokað á næstu árum ef þeir fá ekki að stækka við sig. Fagnað verður því tækifæri sem landanum býðst í kjölfarið til nýsköpunar í atvinnulífinu. 
Dagskrá:
Dofri Hermannsson flytur stutt ágrip um aðrar mögulegar leiðir í atvinnusköpun en álframleiðslu ...
Helena Stefánsdóttir talar stuttlega um aðalfund Alcoa sem hún var viðstödd á dögunum í New York, og sýnir stutt myndbrot frá viðtölum sem hún tók.
Þar kom m.a fram að Alcoa ætlar einnig úr landi ef að meirihluti þjóðar vill þá ekki. 
Í lok dagskrár verður hvatt til umræðu um nýsköpun í íslensku atvinnulífi þar sem gengið er út frá sömu ívilnunum og Alcoa hefur verið lofað, eins og

  • Skattafslátt
  • Afsláttum af fasteignagjöldum
  • 90% afslátt af stimpilgjöldum
  • ódýru raforkuverði (ódýrasta orkuverð í heimi).
  • Afslátt af fasteigna-og lóðagjöldum.
  • Ókeypis land
  • Ofl.

Virkjum hugann !
Eftir umræður og kynningu á niðurstöðum verða tónlistaratriði.
19:00 Þorsteinn Einarsson úr Hjálmum spilar"

Mínar málsbætur fyrir að vekja athygli á hótun Alcans um lokun eru af tvennum toga og nefndi ég þær við umræður á Alþingi í gær. Annars vegar er um að ræða stóran vinnustað sem hefur þýðingu fyrir þá sem þar starfa eða honum tengjast. Hins vegar er um það að ræða að þetta veitir okkur innsýn í þjóðfélag þar sem auðhringar ráða lögum og lofum. Inn í þá veröld stefnir ríkisstjórnin okkur. Í umræðum á Alþingi í gær sagði ég m.a. eftirfarandi: "Hæstv. forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson hefur upplýst að álsamsteypan Alcan hafi haft í hótunum ef ekki yrði heimiluð stækkun á álverinu í Straumsvík. Talsmaður Alcan-samsteypunnar hefur hvorki viljað játa því né neita að orðsendingar þessa efnis hefðu farið á milli Alcan og íslenskra stjórnvalda en lagði áherslu á að engar hótanir hefðu átt sér stað. Það voru heldur ekki orð hæstv. forsætisráðherra Íslands. En auðvitað er í því fólgin hótun ef stjórnvöldum er gerð grein fyrir því að til álita komi að loka álverinu í Straumsvík ef ekki verði farið að vilja álfyrirtækisins. Straumsvík er stór vinnustaður og eðlilegt að menn leggi við hlustir þegar svona er talað. Það er gott að hæstv. forsætisráðherra skuli hafa upplýst þjóðina um samskipti stjórnvalda við álfyrirtækið af þessu tilefni. En þessi atburður sýnir okkur hins vegar hvar völdin koma til með að liggja í þjóðfélaginu með stefnu ríkisstjórnarinnar og þá ekki síst Framsóknarflokksins, að gera Íslandi háð álframleiðslu hvað varðar allt að þriðjungi efnahagsstarfseminnar. Er hæstv. forsætisráðherra sammála því mati að litlu efnahagskerfi eins og okkar sé betur borgið fyrir þá fjölbreyttri efnahagsstarfsemi en fáum fjölþjóðlegum auðhringum?..."
Út á þetta gaf forsætisráðherra lítið og sagði að um hefði verið að ræða eðlileg samskipti við Alcan og fráleitt að tala um hótanir í því samhengi. Ég þakkaði honum hins vegar fyrir að upplýsa um þessi samskipti: "Ég var einmitt að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að reiða þessar upplýsingar fram. Hann segir að þetta séu eðlileg samskipti, engar hótanir hafi átt sér stað. Auðvitað eru fólgnar í því hótanir þegar sagt er við ríkisstjórn Íslands að fari hún ekki að vilja álrisans komi hugsanlega til þess að álverinu verði lokað. En um hitt vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Er hann mér sammála um það að þetta sé alvarleg áminning til Íslendinga um að verða ekki háðir stórfyrirtækjum, stórum auðhringum eins og Alcan, og stefna ríkisstjórnarinnar gengur reyndar út á? Hér hefur verið talað um rafmagn til stækkunar álversins en það eru aðrir þættir. Í ágætri grein sem Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir sem skipar efsta sætið hjá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði í Hafnarfirði ritar í Morgunblaðið í dag þá vekur hún athygli á því að það séu ekki einvörðungu þessir þættir sem kunni að koma til álita heldur einnig mengunarþættir. Verður íslensku ríkisstjórninni stillt upp við vegg að því leyti líka?"
Við þessu fengust engin svör og lýsti ég vonbrigðum yfir því: "Hitt finnst mér vera áhyggjuefni af hve mikilli léttúð og hve miklu alvöruleysi hæstv. forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar tekur á þessum málum og hann svarar því ekki þegar þeirri spurningu er beint til hans hvort stefna ríkisstjórnarinnar um að gera þriðjung af efnahagsstarfsemi á Íslandi [háða álframleiðslu] feli ekki í sér hættur og hvort þetta sé ekki áminning um þær hættur þegar stórfyrirtæki, auðhringur á borð við Alcan setur okkur stólinn fyrir dyrnar á þann hátt sem hér hefur verið upplýst um."

 


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOÐSFERÐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARÐ AÐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOÐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta