Annað
21. Febrúar 2006
BEÐIÐ SVARS Á ALÞINGI UM SÖLU BÚNAÐARBANKANS
Vilhjálmur Bjarnason, aðjunkt við Háskóla Íslands, hefur staðhæft, að skoðun á efnahagsreikningi þýska bankans, Hauck & Aufhauser, fyrir árið 2003 hafi leitt í ljós, að bankinn hafi ekki verið einn kaupenda Búnaðarbankans einsog fulltrúar seljanda bankans, þ.e. ríkisins, fullyrtu þegar salan fór fram. Einkavæðing Búnaðarbankans, forvera KB banka var sem kunnugt er afar umdeild enda færði hún nokkrum aðilum í hendur gífurleg verðmæti á spottprís. Margir þeirra, sem voru viðriðnir þessa sölu og hafa hagnast um himinháar upphæðir, eru jafnaframt nátengdir Framsóknarflokknum. Á Alþingi vísar forsætisráðherrann, sem jafnframt er formaður Framsóknarflokksins og viðskiptaráðherrann, sem einnig er úr Framsóknarflokki, öllum athugasemdum á bug og þar við situr, - eða hvað?
Nú er komin fram í þinginu fyrirspurn frá undirrituðum þar sem m.a. er farið fram á að upplýst verði um þá þætti í söluferli Búnaðarbankans, sem tengjast þessu afmarkaða máli.
Fyrirspurnin er svohljóðandi:
1. Getur viðskiptaráðherra upplýst með óyggjandi hætti, m.a. á grundvelli upplýsinga sem aflað verði frá Fjármálaeftirlitinu hérlendis og sambærilegri stofnun í Þýskalandi, hvort þýski bankinn Hauck & Aufhauser var eins og haldið hefur verið fram meðal raunverulegra kaupenda og síðan eigenda Búnaðarbankans sem hluti af Eglu hf. þegar einkavæðingu Búnaðarbankans lauk, sbr. tilkynningu 16. janúar 2003?
2. Ef í ljós kemur að hinn erlendi banki var ekki meðal raunverulegra kaupenda og upplýsingar þar um voru rangar, hvaða afleiðingar mun það hafa í för með sér gagnvart:
a. öðrum bjóðendum í Búnaðarbankann sem gengið var fram hjá með vísan til hins erlenda banka sem þátttakanda í tilboði Eglu hf.,
b. einkavæðingarnefnd,
c. ráðherranefnd um einkavæðingu,
d. Kauphöll Íslands vegna rangrar upplýsingagjafar eða mistaka við eftirlit,
e. Fjármálaeftirlitinu vegna rangrar upplýsingagjafar eða mistaka við eftirlit,
f. Ríkisendurskoðun, sbr. skýrslu þeirrar stofnunar um einkavæðinguna,
g. kaupandanum Eglu hf.?
Skriflegt svar óskast.
Nú er að bíða eftir svari ríkisstjórnarinnar og verður fróðlegt að fá það í hendur. Af þeim áhuga sem fjölmiðlar sýna þessu máli, má ráða að þeir muni fylgjast vel með þegar
mbl.is sagði frá í dag: http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1186471
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOÐSFERÐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARÐ AÐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOÐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












