Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

8. Febrúar 2006

MYND MÁNAĐARINS

Ađ undanförnu hafa birst nokkur lesendabréf hér síđunni ţar sem vikiđ hefur veriđ ađ misskiptingunni í landinu. Skjólstćđingar stjórnarflokkanna hafa hagnast um milljarđa, jafnvel milljarđatugi í kjölfar einkavćđingar á vegum ríkisstjórnarinnar.

Einn lesandi vísar í ársskýrslu Landsbankans ţar sem fram kemur "ađ launagreiđslur til Halldórs J. Kristjánssonar bankastjóra námu 149 milljónum króna á síđasta ári, en hluti ţeirrar upphćđar tengdist ađ vísu uppgjöri á kaupréttarsamningum. Greiđslur til Sigurjóns Ţ. Árnasonar bankastjóra námu 83 milljónum króna samkvćmt ársskýrslunni og alls fengu 16 framkvćmdastjórar sviđa og dótturfélaga greiddar samtals 598 milljónir í laun og hlunnindi eđa hver um sig ađ međaltali 37,4 milljónir. Halldór var sem sagt međ 12,4 milljónir á mánuđi, Sigurjón međ litlar 6,9 milljónir og 16 framkvćmdastjórar fengu ađ jafnađi 3,1 milljón á mánuđi í sinn hlut". (sjá nánar HÉR)

Annar lesandi vísar í Morgunblađsfrétt ţar sem fjallađ er um fjármálabrask Finns Ingólfssonar, viđskiptafélaga Ólafs Ólafssonar, framsóknarmannanna, sem nú velta milljörđum á eigin reikningum.Um nýjustu tilfćringar hjá Finni kemur eftirfarandi fram í fyrrnefndu lesendabréfi: "Fikt, einkahlutafélag sem er fjárhagslega tengt Finni Ingólfssyni, stjórnarmanni í bankanum og forstjóra VÍS, keypti í gćr 76 ţúsund hluti í KB banka á genginu 928. Verđmćti bréfanna var ţví um 70 milljónir króna. Í tilkynningu til Kauphallar segir ađ Finnur eigi enga hluti í bankanum en fjárhagslega tengdir ađilar eigi 28,4 milljónir hluta eftir ţessi viđskipti. Ađ framvirkum samningum međtöldum eru hlutirnir um 30 milljónir talsins sem félög tengd Finni eiga í KB banka. Markađsvirđi ţeirra hluta er um 28 milljarđar króna. " (sjá nánar HÉR)

Ţriđji lesandinn, kórónar síđan ţessa síđustu syrpu lesendabréfa um ţetta efni hér á síđunni. Ólína minnir á ađ á sínum tíma hafi ljósmyndari Morgunblađsins náđ ógleymanalegri fréttamynd, ţegar ţeir félagar, Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson, fengu Búnađarbankann gefins áriđ 2002. Á myndinni hafi sést ţegar  "áhrifamenn í viđskiptalífi og stjórnmálum sem keyptu banka af flokksfélögum sínum… héldu hróđugir á brott frá ţví ađ undirrita samninga ţar um. Í myndinni var fólginn veruleiki sem sagđi meira en langar úttektir um íslensk viđskipti og viđskiptasiđferđi." Ólína segir ađ á sínum tíma hefđi myndin af ţeim framsóknarfélögum verđskuldađ útnefningu, sem mynd ársins. Ólínu get ég glatt međ ţví ađ sú mynd var einmitt útnefnd hér á síđunni sem mynd ársins 2002 eins og sjá má HÉR.

Ólína gerir ţađ ađ tillögu sinni ađ ljósmynd sem í gćrmorgun birtist í Morgunblađinu af bankastjórum Landsbankans verđi útnefnd mynd ţessa árs. Hún minni um margt á myndina af ţeim félögum Finni og Ólafi ţegar ţeir fengu Búnađarbankann ađ gjöf áriđ 2002. Á Morgunblađsmyndinni í gćr, segir Ólína, "sátu fyrir búralegir bankastjórar glađbeittir og ánćgđir međ mikinn hagnađ bankans sem líka var seldur fyrir slikk ekki alls fyrir löngu. Í forgrunni var skilti sem á stóđ: Fáđu meira fyrir launin ţín. Afhjúpandi mynd og afstrakt sem sjálfsagt hefur vakiđ fleiri menn til umhugsunar um launatekjur, hagnađ og sölu ríkiseigna en tveir eđa ţrír leiđarar á miđopnu Morgunblađsins. Myndirnar tvćr sýna ađ morgunblađsmenn eru vakandi í vinnunni......"

Allt kann ţetta ađ vera satt og rétt hjá Ólínu en ég minni á ađ áriđ er rétt ađ hefja göngu sína. Ađ svo stöddu skulum viđ láta nćgja ađ útnefna ţá félaga Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Ţ. Árnason sem fyrirsćtur mánađarins.  Vel má vera ađ myndin endi sem verđlaunamynd ársins. Hver veit nema svo verđi?

Bréf Ólínu er HÉR


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOĐSFERĐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARĐ AĐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOĐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AĐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRĆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta