Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

20. Desember 2005

RÍKISÚTVARPIÐ 75 ÁRA

Í dag eru 75 ár frá stofnun Ríkisútvarpsins. Því miður hafði ég ekki tök á að fylgjast með sjónvarpsþættinum sem sýndur var í kvöld af þessu tilefni. Hins vegar heyrði ég í Jóni Múla Árnasyni  í þætti Ævars Kjartanssonar, sem útvarpað var uppúr hádeginu. Þarna var Ævar með fimm ára gamalt brot úr lengra viðtali við Jón Múla frá 70 ára afmæli RÚV. Gaman var að heyra í báðum þessum mögnuðu útvarpsmönnum, Ævari  og Jóni Múla og við hæfi að heyra Jón Múla beina nokkrum beinskeyttum spurningum að áhugafólki um einkavæðingu Ríkisútvarpsins.

Jón Múli ræddi um menningarlegt hlutverk Ríkisútvarpsins og þar á meðal um varðveisluhlutverkið; í þessari gamalgrónu stofnun hefðu verið varðveittar menningarminjar, sem mikil áhöld væru um að hefðu varðveist ef fallvölt gróðafyrirtæki hefðu haft varðveisluhlutverkið á hendi. Inn á þetta kemur Ólafur Páll Gunnarsson, hinn kunni útvarpsmaður á Rás 2 – umsjónarmaður Rokklands með meiru – í aldeilis stórgóðu viðtali í nýútkomnu Stúdentablaði.
Málflutningur Ólafs Páls sver sig rækilega í ætt við þær hefðir sem gert hafa Ríkisútvarpið að stórveldi. Hann sýnir sögunni virðingu en er jafnframt opinn fyrir nýjum tímum, víðsýnn og vill nema ný lönd. Ólafur Páll minnir okkur á menningarlegt hlutverk Ríkisútvarpsins í víðu samhengi: " Fólk talar oft um að ríkið eigi ekki að gera þetta og hitt. Sjálfur er ég t.d. voða lítill kommúnisti en þó er ég þeirrar skoðunar að það séu ákveðin þjóðareinkenni Íslendinga sem ber að varðveita. Við höfum t.d. tekið ákvörðun um að reyna að vera með gott skólakerfi og gott heilbrigðiskerfi. Við erum með Þjóðleikhús, við eigum íslenskan dansflokk o.s.frv.  Mér finnst Ríkisútvarpið vera hluti af þessu kerfi."

 Dægurhljómlist mikilvægur hluti menningarinnar - Rás 2 hefur staðið vaktina

Undir þetta tek ég með Ólafi Páli. Eins og hann segir síðar í viðtalinu þá eru "vissir hlutir sem gera okkur að þjóð," og hann bendir réttilega á að þar sinni Rás 2 veigamiklu hlutverki. Ef ekki væri fyrir hennar tilstilli hefðum við takmarkaðri aðgang að íslenskum listamönnum og þeir að okkur, ekki síst þegar þeir hafa verið að stíga sín fyrstu skref á listabrautinni. Drepum aftur niður í viðtalinu við Ólaf Pál Gunnarsson: "Rás 2  sinnir menningarhlutverkinu með því að spila dægurtónlist sem er að miklu leyti íslensk. Ég trúi því ekki að árið 2005 – á tímum Sigurrósar og Bjarkar - sé til fólk sem segir: "Lokum bara þessari Rás 2. Hún spilar ekki annað en nýja íslenska tónlist og er eina stöðin sem spilar Björk, Sigurrós, Megas, Bubba og Hörð Torfa. Hún er þar að auki eina útvarpsstöðin á rokklandinu Íslandi sem varðveitir íslenska dægurtónlistarsögu með því að hljóðrita hátt í 200 hljómsveitir á ári. Lokum þessu bara!" Ímyndum okkur að Rás 2 hyrfi af vettvangi. Þá væru þeir einu sem sæju um tónlist fjölmiðlar í einkaeigu. Það væri einfaldlega hræðilegt – ég tala nú ekki um í jafnlitlu landi og við búum í. Ríkisútvarpið á að mínu mati að halda uppi ákveðnu viðmiði. Það á að vera betra útvarp en önnur og við eigum að gera öðruvísi hluti en aðrir. Við eigum ekki endilega að einbeita okkur að hlutum sem hægt er að græða á einn, tveir og þrír. Dægurtónlist – popp og rokk – er stór hluti af menningarsögu okkar. Við getum verið stolt af því sem við erum að gera. Við á Rás 2 erum a.m.k. stolt af okkar fólki og ekki síst framlagi okkar, t.d. tónleikasafninu okkar. Ef þú vildir heyra útgáfutónleika Sigurrósar frá 1999 þá gæti ég einfaldlega náð í þá. Við eigum allt sem við tökum upp; Músiktilraunir 15 ár aftur í tímann, Popp í Reykjavík, Airwaves frá 2000 og hitt og þetta. Annað dæmi er að um daginn voru liðin tíu ár frá snjóflóðinu á Flateyri. Þá var haldin minningarathöfn og fjölmiðlar vildu auðvitað gera málinu góð skil. Þá þurfti Stöð 2 að fá lánað myndefni frá Sjónvarpinu, þó að þeir hafi auðvitað fjallað um sama mál á sínum tíma. Þeir geta eflaust geymt myndefni, rétt eins og við, en það er ekki svo mikið hægt að græða á því í krónum talið. Það er kannski ekki heldur þeirra hlutverk. RÚV á aftur á móti að gæta þessara hluta...Hlutverk frjálsra fjölmiðla er að græða peninga. Geri þeir það ekki er þeim lokað. Okkar hlutverk er einfaldlega allt annað."    


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLÆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIÐ VONBRIGÐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGÐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓÐ KVEÐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta