Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

6. Desember 2005

HVER ER BESTUR? – UM GOTT AUÐVALD OG VONT AUÐVALD


Matthías Johannessen,
skáld og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, skrifar kraftmikla grein – eins konar eldmessu -  í Lesbók Mbl. um síðustu helgi. Matthías fer mikinn og kemur víða við. Undir margt get ég tekið í þessari messu Matthíasar, annað ekki. Honum þykja peningarnir ráða of miklu í samfélagi samtímans, auðmenn kaupi sér völd. Mikið rétt, en er það eitthvað nýtt? Matthías vissi greinilega að þessi spurning myndi vakna og verður fyrri til að spyrja og svara: "Nú segir áreiðanlega einhver", skrifar hann, "varst þú ekki ritstjóri auðmanna á fimmta áratug? Jú, að vísu, en það var gott auðvald. Skipti sér aldrei af ritstjórn Morgunblaðsins og treysti þeim sem það fól starfið..."
Ekki efast ég um að ritstjórar Morgunblaðsins hafi verið sáttir við auðmennina, eigendur blaðsins, sem treystu þeim til að halda uppi merki kapítalismans, NATÓ og alls þess sem blaðið barðist fyrir á síðari hluta 20. aldarinnar. En þetta var semsé, að mati Matthíasar Johannessen, "gott auðvald". Margir kölluðu þetta "góða auðvald" Matthíasar Kolkrabba, en um áratugskeið hafði hann undirtökin í íslensku þjóðlífi, og ekki alltaf til góðs – fjarri því.

Gott auðvald er gott við ritstjóra Morgunblaðsins

Ég held að óhætt sé að fullyrða að "góða auðvaldið" hafi tekið til sín eins mikið af íslenskum þjóðarauð og það komst yfir á hverjum tíma. Það er hins vegar hárrétt  að misskiptingin hefur farið hraðvaxandi í íslensku þjóðfélagi á síðustu 15 árum eða þar um bil og er nú margfalt meiri og sýnilegri en hún lengstum var á síðari hluta 20.aldarinnar. Eignir þjóðarinnar hafa verið seldar og gefnar, en helstu gerendur í þeirri þróun hafa verið menn sem mér er ekki grunlaust um að Matthías og Mogginn telji til "góða auðvaldsins". Eða hvað sagði Morgunblaðið í leiðara þegar Davíð Oddsson lét af störfum, maðurinn sem verkstýrði því að losa um þær hömlur sem þó höfðu verið á auðvaldinu, maðurinn sem kvað það vera hlutverk stjórnmálamanna að "virkja eignagleðina"?

Davíð í liði með "góða auðvaldinu"

Í leiðara Morgunblaðsins 8. september var lokið nánast trúarlegu lofsorði á Davíð: "Pólitík og persóna Davíðs Oddssonar hafa undanfarinn tæpan aldarfjórðung sett svo sterkt mark á íslenzk stjórnmál að erfitt er að finna samjöfnuð." Skrif Morgunblaðsins þessa daga voru uppnumin og var hástöfum tekið undir þá einkunn sem Davíð gaf sjálfum sér á fundi með fréttamönnum. Af hógværð sinni hafði hann þetta að segja um það sem Morgunblaðið kallar "Davíðstímabilið", ár einkavæðingar, markaðshyggju og misskiptingar: "Niðurstaðan er örugglega sú að Ísland er miklu fjölbreyttara, öflugra, skemmtilegra og betra samfélag nú en það var fyrir tíu-tuttugu árum." Í umræddum leiðara Morgunblaðsins var staðhæft fyrir hönd þjóðarinnar að þetta væri hverju orði sannara hjá Davíð Oddssyni: "Undir það geta flestir Íslendingar tekið - og þakkað Davíð Oddssyni fyrir hans hlut í því." Mikið hefði verið gaman ef Matthías hefði skýrt fyrir lesendum Morgunblaðsins hver það er nákvæmlega sem er góður og hver slæmur í heimi hins kaldhamraða kapítalisma – og þá einnig hverjum beri að þakka og þá fyrir hvað?

Þjóðfélag peningafólks

Mjög sterk birtingarmynd auðvaldsþjóðfélagsins var dregin upp í frétt á vísir.is sl. föstudag: "Hátt í hundrað milljóna króna framlag safnaðist í uppboði undir hátíðarkvöldverði Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi þar sem sir Roger Moore var ræðumaður. Nokkur hundruð manns voru þar saman komin í boði Baugs, FL Group og Fons, sem fyrr um daginn höfðu gefið samtals 135 milljónir til mannúðarstarfa í Gíneu-Bissá í Afríku. Hæsta tilboð sem barst í hlut á uppboðinu var 21 milljón króna í málverk eftir Hallgrím Helgason rithöfund, sem hann á eftir að mála, og einn gestanna greiddi tvær og hálfa milljón fyrir að fá að vera veðurfréttamaður á NFS í einn dag, svo eitthvað sé nefnt. 80 milljónir söfnuðust á uppboðinu og síðan skráðu gestir sig fyrir framlögum upp á hátt í 20 milljónir króna."
Einhver myndi segja að þetta hlyti að teljast "gott auðvald",  sem lætur fé af hendi rakna til bágstaddra barna í Afríku. Auðvitað ber alltaf að þakka fyrir það sem gert er af góðum hug, sem ég gef mér að þarna hafi búið að baki. Ég neita því hins vegar ekki að mér fannst þessi frétt um stórgjafirnar til Gíneu-Bissá gefa innsýn í óhugnanlega þróun í okkar samfélagi.  Það er alveg augljóst að hér á landi er orðinn til allstór hópur fólks sem veit ekki aura sinna tal. Við þetta vakna ýmsar pólitískar og siðferðilega spurningar, sem snúa að okkur inn á við.

Bogesen og Salka Valka endurvakin

Við þurfum að spyrja hvort við séum tilbúin að skipuleggja efnahagskerfið og þjóðlífið allt þannig að hér verði til hópur sem bókstaflega veður í peningum á meðan aðrir eiga ekki fyrir nauðþurftum, hópur sem læknar og líknar og öðlast völd og áhrif í samræmi við það.  Viljum við halda aftur inn í þjóðfélag þeirra Bogesens og Sölku Völku? Við erum nefnilega á leiðinni þangað. Á fundi sem ég sat nýlega í stjórn PSI, Samtaka launafólks í almannaþjónustu, kom mál af þessu tagi til umræðu. Þar var heimurinn allur undir en ekki Ísland eitt. Spurt var: Er í lagi að þiggja stuðning frá auðkýfingnum  Bill Gates og öðrum ámóta í þau verkefni sem við erum að sinna, sem er baráttan við heimsauðvaldið og þar með þennan sama Bill Gates. Ef hann er velmeinandi "gott auðvald", er þá nokkuð að því að þiggja af honum pening?

Bill Gates og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna

Hvenær kæmi þá að því, spurðu aðrir, að við færum að haga málflutningi okkar á þann veg að við styggðum ekki velgjörðarmann okkar, Bill Gates?  Á sama hátt má beina spurningu til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi: Er alveg sama hvernig peningum til barnahjálpar er safnað? Ég er ekki í vafa um að börnin í Gíneu-Bissá  kæra sig kollótt um það hvernig fjármununum sem þau fá send er aflað. En gætu fjáröflunarleiðir UNICEF orðið þess valdandi að samtökin  réðust síður í verkefni sem ganga gegn hugmyndum og hagsmunum hinna auðugu velgjörðarmanna en ella hefði orðið? Spyr sá sem ekki veit, en hefur engu að síður óþægilegar grunsemdir um að þetta kunni að vera raunin.
Áfram má spyrja og nálgumst við nú kjarna máls: Getur verið að hagsmunum lítilla fátækra barna í Afríku væri best borgið með því að koma böndum á heimskapítalið; að þegar allt kemur til alls skipti kannski meira máli hvað Ísland segir á fundum Alþjóðabankans, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar en hversu miklum peningum okkur tekst að afla með hjálp Rogers Moores lávarðar? Alþjóðaviðskiptastofnunin fundar í Hong Kong um miðjan mánuðinn. Þar reisir heimsauðvaldið kröfu um frekari einkavæðingu almannaeigna í þróunarlöndunum. Eitt er víst að ef sú krafa nær fram að ganga kæmi það sér ekki vel fyrir fátæk börn í Gíneu-Bissá.

Vel mælt hjá Matthíasi

Á meðan þessu öllu vindur fram munu peningamennirnir og stuðningsmenn þeirra halda áfram að deila um það hver sé bestur, hverjir séu gott auðvald og hverjir slæmt auðvald. Þótt ég telji Matthías Johannessen ganga of langt í fullyrðingum um góða menn og slæma, vil ég engu að síður taka undir með honum að máli skiptir hvernig farið er með peninga og völd. Og það er líka eflaust rétt hjá honum og reyndar mjög vel sagt, að "sá sem selur virðingu sína er fátækari en fátækasti öreigi landsins."


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOÐSFERÐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARÐ AÐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOÐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta