Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

2. Nóvember 2005

UM FRÉTTAMENNSKU – DÆMI AF ORKUVEITU OG FORSETA ÍSLANDS

Í fréttum í morgunútvarpi fór Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi, mikinn og sagði það ósannindi sem haldið hefði verið fram, að til stæði af hálfu Sjálfstæðisflokksins að selja Orkuveituna. Þetta þótti fréttastofu RÚV tilefni til að kynna fréttina á þá leið, að Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki einkavæða Orkuveituna. Þetta er ónákvæm nálgun. Skrefin í einkavæðingunni eru nánast alltaf eins: Fyrst er stofnun gerð að hlutafélagi. Síðan eru hlutirnir seldir í smærri eða stærri skömmtum. Nánast alltaf neita pólitískir stjórnendur því að til standi að selja. Meira að segja þegar ríkisbankarnir voru einkavæddir var sagt í upphafi að einvörðungu stæði til að gera þá að hlutafélögum, hvað þá í tilfelli Pósts og Síma þar sem svarið var og sárt við lagt að aldeilis stæði ekki til að selja.
Notkun hugtaksins einkavæðing er þarna á gráu svæði. Nær væri sennilega að tala um markaðsvæðingu eða einfaldlega nota hugtökin á nákvæmari hátt. Tala um hvort til standi að gera Orkuveituna að hlutafélagi í þessu tilfelli og fylgja síðan spurningunni eftir með því að spyrja hvort síðan standi til að selja hlutina. Þannig hefði verið fróðlegt að heyra hvort Sjálfstæðisflokkurinn væri sammála Vinstrihreyfingunni grænu framboði um að ekki eigi að gera Orkuveituna að hlutafélagi, en það er afstaða, sem ég stóð í meiningu um að VG hefðu verið ein um áður en samkomulag náðist um það í R-listanum að gera Orkuveituna að sameignarfélagi.
Hitt dæmið úr fréttamennskunni sem ég vil tína til, lýtur strangt til tekið ekki að hugtakanotkun heldur öllu fremur afstöðu. Talsmaður auglýsingadeildar sjónvarps kemur fram í sjónvarpsfréttum og biðst afsökunar á því að bjórauglýsingum skuli hafa verið skotið inn í dagskrá Kastjóss þegar forseti Íslands var þar að ræða um fíkniefnavandann. Talsmaðurinn var spurður hvort þetta hefði raunverulega verið bjórauglýsing. Hann viðurkenndi heiðarlega að í sínum huga hefði svo verið þótt strangt til tekið væri ekki svo, því í agnarsmáu letri hefði komið fram, að bjórinn sem sýndur var, hefði verið óáfengur. Og þar liggur minn vandi, sagði talsmaður augslýsingadeildar, ég þyrfti að geta réttlætt bann við slíkri auglýsingu gagnvart viðskiptavininum, seljanda bjórsins. Þá saknaði ég að spurt væri um skyldur gagnvart áhorfendum. Ef það er nú svo, sem hverju barni má ljóst vera, að óprúttnir auglýsendur eru að skjóta sér framhjá lögum með því að auglýsa bjór en með einhverju sýndarmerki sem á að tákna að þetta sé óáfengur drykkur, eigum við þá ekki að eiga vörn í auglýsingasdeild RÚV, sem þegar allt kemur til alls viðurkennir að þetta sé plat? Væri ekki rétt að láta vafann hvíla okkar megin og  láta bjórframleiðandann sækja rétt sinn fyrir dómi. Hvers vegna þröngva áhorfandanum til slíkra verka, samanber baráttu Árna Guðmundssonar, æskulýðs- og tómstundafulltrúa í Hafnarfirði, o.fl. sbr. umfjöllun hér á síðunni, hér.
Til að kóróna allt saman var okkur sagt að það versta við þessa uppákomu hefði verið hvenær auglýsingunni hefði verið skotið inn í dagskrána, það er fíkniefnaumræðu með forseta Íslands. Þetta hefði verið ókurteisi gagnvart honum. Vissulega var það svo, en fyrst og fremst var þetta rangt gagnvart áhorfendum og lögbrot í ofanálag. Síðan veit ég ekki til þess að heimilt sé að rjúfa fréttaþátt með auglýsingum.
 


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOÐSFERÐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARÐ AÐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOÐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta