Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

8. Ágúst 2005

SÉRA GUNNÞÓR OG CLINT

Seinni partinn í júlí birtist umhugsunarverð grein í Morgunblaðinu eftir séra Gunnþór Ingason, sóknarprest í Hafnarfirði en hann er jafnframt umsjónarmaður Krýsuvíkurkirkju fyrir hönd Þjóðminjasafns Íslands. Í greininni mótmælir séra Gunnþór fyrirhugaðri stríðsmyndatöku í Krýsuvík með Clint Eastwood í aðalhlutverki. Séra Gunnþór beinir athygli okkar að eftirfarandi: "Fjölmennur her stríðir nú í Írak eftir innrás í landið. Sýnt er að átökin dragist á langinn og stuðningur minnki við þau. Gæti verið að kvikmyndin Flags of our fathers muni réttlæta þessar stríðsaðgerðir með því að vísa á fornar dáðir og áhrifaríka fánahyllingu á Iwo Jima og gefa til kynna að innrásarstríðið í Írak sé engu síður réttlætanlegt en illvíg átök fyrrum við Japana á Kyrrahafi? Og viljum við Íslendingar styðja það?"
Nei séra Gunnþór, ekki vil ég það.
Það er hárrétt sem ýjað er að í þessari ágætu blaðagrein að tengsl eru iðulega á milli kvikmyndaiðnaðar og hergagnaiðnaðar og hefur verið svo í gegnum tíðina. Í fréttum af kvikmyndagerðinni í Krýsuvík hefur komið fram að bandaríski herinn í Keflavík sé kvikmyndagerðarmönnunum innan handar. Hagsmunirnir eru augljósir.
Ég birti hér að neðan umrædda blaðagrein með góðfúslegu leyfi höfundar.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------

Vá í Krýsuvík

KRÝSUVÍKURKIRKJA er lítil og lágreist en setur mikinn svip á umhverfi sitt þar sem hún horfir móti Arnarfelli. Blágræn vötn og mislit fjöll, jarðhitasvæði, grónar heiðar og hraun einkenna landslagið. Höfuðskepnur kveðast á og semja áhrifamikið náttúruljóð.

Ein edler ort zum ausspannen und besinnen, hefur Þjóðverji skrifað nýlega í gestabók kirkjunnar. "Göfugur staður til að slaka á og íhuga." Og Bandaríkjamaður ritar: What a blessing to worship the Lord in the awesome example of his creation. "Mikil er sú blessun að dýrka Drottinn í máttugri sköpun hans." Það er sem erlendir menn greini oft betur en við sjálf, sem vaxin erum upp í íslenskum jarðvegi, tign og fegurð íslenskrar náttúru. Hún er gjöfulli auðlind en við, mörg hver, höfum enn glöggvað okkur á er gefur áþreifanlegar tekjur jafnframt því að svala fegurðarþrá og sálarþorsta þeirra sem á vit hennar leita í virðingu og einlægni.

Stríðsmynd

Krýsuvík og kirkja hennar minna á erfiða lífsbaráttu þjóðarinnar fyrr á tíð en líka dug hennar sem styrktist af Guðstrausti. Vígaslóð heimsins og illvirki sem skera dýrmæta þræði í vefnaði sköpunarverksins eru þar fjarri. Fyrirhuguð kvikmyndataka við rætur Arnarfells, þar sem svipmyndir skelfingaratburða frá síðari heimsstyrjöld verða endurskapaðar, er tilræði við friðsæla fegurð Krýsuvíkur, mynd hennar og minningar. Átökin á japönsku eyjunni Iwo Jima, sem voru grimmust við fjallshæðina Suribachi og Arnarfellið á að vera í kvikmyndinni "Flags of our Fathers," voru einn óhugnanlegasti atburður Kyrrahafsstyrjaldarinnar. Til þess að breyta Krýsuvíkinni í þann vígvöll þarf að svíða og sundurtæta jörð. Skriðdrekar og önnur vígtól verða á ferð, þungar tökuvélar og hundruð manna. Þótt lofað sé að vel verði farið með náttúruna og tjón hennar bætt er vafasamt að unnt verði að lagfæra skemmdir á lífríki, náttúru og menningarminjum. Og satt mun reynast að "betra er heilt en vel gróið".

Helgispjöll

Það er ekki aðeins umhverfisvá sem steðjar að Krýsuvík með stríðsmyndatökunni. Hún er innrás í sögu Krýsuvíkur og dregur hörmungaratburði að henni. Hví er ekki kvikmyndað á eynni japönsku þar sem hildin var háð sem líkja skal eftir við kvikmyndatökuna? Vafasamt er að Japanar kærðu sig um það. Til þess eru sár þeirra of djúp og nístandi af skelfingum stríðsáranna. Það virðist eftirsóknarvert og freistandi fyrir unga Íslendinga að leika hermenn í kvikmynd sem töffarinn svali Clint Eastwood stjórnar. En það er samt óæskilegt hlutverk. Sjómennskan er ekkert grín segja þeir í verstöðvum og á útnesjum enda hefur það kostað mörg mannslíf að draga lífsbjörgina að landi. Hermennska sem felur í sér grimmileg átök og manndráp er enn síður grín eða leikur og mun óvissara er um réttmæti hennar.

Friðelskandi Íslendingar ættu ekki að líkja eftir hernaði fyrir fé og vafasaman frama. En sjá einhverjir sér hag í því að herjað sé á náttúru og helgi Krýsuvíkur til þess að hylla harðvítugt stríð og blóðsúthellingar?

Ljósmyndin þekkta sem ljósmyndari tímaritsins Life tók stuttu eftir orrustuna á Iwo Jima og sýnir hermenn reisa fána á Suribachi-fjalli varpaði ljóma föðurlandsástar á þennan hörmulega hildarleik. Fjölmennur her stríðir nú í Írak eftir innrás í landið. Sýnt er að átökin dragist á langinn og stuðningur minnki við þau. Gæti verið að kvikmyndin Flags of our fathers muni réttlæta þessar stríðsaðgerðir með því að vísa á fornar dáðir og áhrifaríka fánahyllingu á Iwo Jima og gefa til kynna að innrásarstríðið í Írak sé engu síður réttlætanlegt en illvíg átök fyrrum við Japana á Kyrrahafi? Og viljum við Íslendingar styðja það?

Maður og náttúra

Stríðsmyndagerðin í Krýsuvík stríðir gegn ímyndinni um friðsælan fólkvang og "Samspil manns og náttúru" svo sem árþúsundaverkefni Hafnarfjarðarbæjar í Krýsuvík nefndist við aldaskil. Hún er einnig í ósamræmi við mannræktina í Krýsuvíkurskóla þar sem þeim er liðsinnt er týnt hafa áttum og ánetjast vímuefnum og hún fer illa við málverkin í "bláa húsinu" í Krýsuvík sem birta dulmögn litríkrar náttúru og dýrmætt samband jarðlífs við himin Guðs. Krýsuvíkurkirkja minnir líka á þau tengsl sem ekkert líf má missa svo að það visni ekki í rót. Hún minnir á arfleifð fyrri kynslóða og þýðingu þess að tapa ekki áttum og finna hjartslátt Guðs í lífríkinu og virða það og elska. Styrjaldir og hermdarverk hafa keðjuverkandi áhrif til ills og vísa í öndverða átt. Þau votta tengsla- og kærleiksskort manna í millum og þjóða. Þau votta líka virðingarleysi fyrir lífinu þegar þau eru sýnd í kvikmynd og sveipuð dýrðarljóma og fyrir þeim flaggað.

Krýsuvíkurkirkja er opin og veitir athvarf til að ná áttum og skynja verðmæti og háleitt markmið lífs. Kirkjan verður áfram opin þótt aðkomuleiðir rofni. En það myndi samræmast helgi kirkjunnar og lífsverðmætum að forða frá þeirri vá sem stríðsmyndagerð er í friðsælli Krýsuvík.

Höfundur er sóknarprestur og umsjónarmaður Krýsuvíkurkirkju fyrir hönd Þjóðminjasafns Íslands.


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta