Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

21. Júlí 2005

ÖSSUR Í STUÐI – EN ÓNÁKVÆMUR

Nokkuð höfum við verið á öndverðum meiði á undanförnum dögum ég og minn góði vinur og baráttufélagi til margra ára, Össur Skarphéðinsson. Össur tekur stórt upp í sig (aldrei þessu vant) og telur svo komið að ég ógni skoðanafrelsi á Íslandi; segir þar helst saman að jafna tilburðum mínum og miðstjórn sovéska kommúnistaflokksins hér fyrr á tíð! Nokkuð þykir mér Össur vera ónákvæmur í vinnubröðgum að þessu sinni og niðurstöður sem hann kemst að  gjalda þess óhjákvæmilega.
Svo Össur sé látinn njóta sannmælis þá vil ég birta hér umfjöllun hans svo þar verði ekkert slitið úr samhengi. Pistill Össurar ber yfirskrifitina, Hvar er skoðanafrelsið Ögmundur?  Hér fylgja skrif ÖS:
" Reykjavíkurlistinn var stofnaður til að vera listi fólksins gegn flokksvaldinu. Merki hans er regnboginn - og regnboginn var valinn sem tákn fjölbreytileikans. Hann var tákn fyrir samstöðu hinna fjölmörgu skoðana sem runnu í eitt litróf.
Reykjavíkurlistinn var í eðli sínu andstæða flokksræðisins sem einkenndi Reykjavíkurborg Sjálfstæðisflokksins - þar sem allir áttu að dansa eftir skoðanapípu lokaðrar forystu. Reykjavíkurlistinn stendur þessvegna fyrir umburðarlyndi, réttindi fólks - og frelsi.
Ögmundur Jónasson hefur jafnan verið sannur samherji þeirra sem hafa barist gegn viðleitni til að mýla fólk og þagga niður í því. Við höfum saman varist viðleitni Sjálfstæðisflokksins til að kúga menn út um allt samfélagið með valdboðum og refsiaðgerðum. Þjóðhagsstofnun, Hæstiréttur, sr. Örn Bárður, fjölmiðlalögin...allt eru þetta mál þar sem við höfum snúið bökum saman til að verja rétt fólks til að tjá sig.
Væri það ekki til marks um þau lokuðu vinnubrögð sem við höfum báðir barist gegn ef málefni Reykjavíkurlistans ætti að loka svo kyrfilega inni í reykfylltum bakherbergjum flokksmaskínanna að enginn mætti hafa skoðun. Jú - svo sannarlega. Það er ekki það sem okkar flokksmenn vilja.
En hvernig brást Ögmundur við þegar ég leyfði mér af einlægni að reifa skoðun sem fjölmiðlar tóku upp - og laut eingöngu að því hvernig ætti að haga framboði míns eigin flokks? Ég velti upp mínu viðhorfi um hvernig Samfylkingin ætti að haga eigin framboði ef hinir hrykkju úr skaftinu.
Við sáum viðbrögð Ögmundar í frétt í Morgunblaðinu af vefsíðu hans. Þar gerir hann "formúlu Össurar" að umræðuefni og segir:
"Í Vinstrihreyfingunni grænu framboði höfum við farið mjúkum höndum um Samfylkinguna um nokkurt skeið. En svo má brýna deigt járn að bíti."
Hvað þýðir þetta, félagi Ögmundur? Hvað kölluðum við svona í þeim hundruðum ræðna sem Vg og Samfylkingin fluttu þegar við tókum slaginn saman í fjölmiðlamálinu?
Svona talaði miðstjórn sovéska kommúnistaflokksins. En sannur vinstri sinni getur ekki talað fyrir því að málfrelsið sé tekið af fólki sem hefur skoðanir."

Þetta var semsagt pistill Össurar.  Hann birti ég til þess að Össur Skarphéðinsson fengi notið sannmælis. Nú er spurningin hvort hið sama eigi ekki að gilda um mig, að einnig ég fái notið sannmælis?  Össur byggir bannfæringu sína á undirrituðum fyrst og fremst á eftirfarandi: "En hvernig brást Ögmundur við þegar ég leyfði mér af einlægni að reifa skoðun sem fjölmiðlar tóku upp - og laut eingöngu að því hvernig ætti að haga framboði míns eigin flokks? Ég velti upp mínu viðhorfi um hvernig Samfylkingin ætti að haga eigin framboði ef hinir hrykkju úr skaftinu."

Nú vill svo til að þetta er alls ekki sannleikanum samkvæmt. Ádeila mín á hendur Össuri var fyrst og fremst vegna hugmynda sem hann hafði reifað í Fréttablaðinu um að Samfylkingin byði fram undir merkjum R-listans með eða án þeirra samstarfsflokka sem staðið hafa að listanum. Á forsíðu Fréttablaðsins 17. júlí birtist mikil frétt undir eftirfarandi fyrirsögn: Össur vill R-lista, með eða án samstarfsflokkanna. Í fréttinni er haft orðrétt eftir Össuri: "Ég tel að undir öllum kringumstæðum eigi Samfylkingin að bjóða fram sem Reykjavíkurlisti, þó að annar eða báðir samstarfsflokkanna vilji ekki vera með í slíkum lista."

Þetta er nokkuð afdráttarlaust og að mínu mati meira en lítið ósvífið. Össur samsamar Reykjavíkurlistann Samfylkingunni og telur  greinilega ekkert við það að athuga að hún eigni sér heiti þessa sameiginlega samstarfsvettvangs þriggja flokka, auk fólks utan flokka. Ég reyndi fyrir mitt leyti að færa rök fyrir því að að R-listi, án þeirra  vinstri manna sem er að finna í VG, væri allt annar en með þá innanborðs.( Sjá HÉR)

Við það sem haft var eftir Össuri um prófkjör í eigin flokki í umræddri Fréttablaðsgrein hafði ég ekkert að athuga. Ég hef hins vegar gagnrýnt harðlega hugmyndir sem fram hafa komið um sameiginlegt prófkjör um borgarstjórakandidat. Gagnstætt því sem haldið er fram í því samhengi, að þetta sé einkar lýðræðislegt, er það mín skoðun að slíkt fyrirkomulag sé til þess fallið að styrkja valdastöðu borgarstjóra á kostnað breiðara lýðræðis.
Um þetta hef ég sagt hér á síðunni eftirfarandi : "Varðandi tal sem heyrst hefur um "leiðtogapró fkjör" verð ég að segja að í mínum eyrum hljómar það eins og kall aftan úr fornöld, úr hálsi þeirra sem vilja foringjaræði. Krafa um leiðtogaprófkjör er krafa um foringjaræði: Kjósum foringjann, hlýðum honum svo! Þetta er þröng og í raun mjög andlýðræðisleg hugsun. Lýðræði 21. aldarinnar á að byggja á opinni og breiðri ákvarðanatöku allt kjörtímabilið, ekki þröngri persónupólitík eins og mér sýnist hér lagt upp með. "Leiðtogaprófkjör" er leið til að taka völd og áhrif frá fjöldanum og færa þau í hendur hins útvalda foringja. Seint myndi ég skrifa upp á slíkt."

Vissulega er þetta skoðun. En er ekki leyfilegt að hafa skoðun? Um það erum við altént sammála ég og Össur Skarphéðinsson. Og margt fleira.

Þó ekki um" útvarpsstjóramálið". Hinn afkastamikli pistlahöfundur ÖS skrifar mikinn pistil um þær hugmyndir sem ég hef viðrað hér á síðunni um embætti útvarpsstjóra og hver væri best fallinn til að gegna því embætti. Össur leggst í miklar djúpsálarfræðilegar stellingar og kemst að þeirri niðurstöðu að ég vilji helst fá sjálfstæðismann til starfans. Sannast sagna nefndi ég tvö nöfn, þeirra Þorsteins frá Hamri og Jóhönnu Kristjónsdóttur og á heimasíðunni í dag tek ég undir með lesanda að séra Gunnar á Reynivöllum væri einnig álitlegur kostur. Marga aðra gæti ég nefnt áður en ég nefndi sjálfstæðismenn til sögunnar. Og enn á ég eftir að sjá lista yfir þá sem sækja um starfið og kunna þar að vera ágætir umsækjendur.
Ég er hins vegar að leggja á það áherslu að um Ríkisútvarpið þarf að ríkja breið sátt. Til að það geti gengið eftir þarf að fullnægja ákveðnum forsendum sem ég tilgreini. Ef menn gangast inn á þessar forsendur gæti ég fyrir mitt leyti orðið sáttur þótt fyrir valinu yrði pólitískur andstæðingur minn. Enginn flokkur á að hafa tilkall til þessa embættis en það á heldur ekki að útiloka neinn. Með öðrum orðum, það á ekki að skipa í embættið flokkspólitískt. Á þetta er ég að leggja áherslu í pistli mínum. Í þessu felst engin skoðanakúvending af minni hálfu eins og Össur heldur fram. Þessar skoðanir hef ég meira að segja haft um áratugaskeið! Varðandi "stuðning" minn við Markús Örn Antonsson er það að segja að menn verða að geta rætt menn og málefni efnislega. Ég sagði að Markúsi Erni hefði ekki reynst það fjötur um fót að eiga sér pólitískan bakgrunn, þegar hann á annað borð sýndi að hann léti ábyrgð sína gagnvart Ríkisútvarpinu hafa forgang. Þetta átti við á fyrstu árum Markúsar Arnar í embætti og nefndi ég þetta röksemdafærslu minni til stuðnings um að pólitísk afskipti ættu ekki að útiloka fólk fyrir lífstíð hvorki til þessa embættis né annarra. Því má bæta við að flest erum við pólitísk og ekki einhlítt að þeir sem aldrei gefa sig upp séu ópólitískari en hinir sem flagga skoðunum sínum.

Ég hef stutt Ríkisútvarpið eins og mér hefur frekast verið unnt um langt árabil og ekki látið það á mig fá þótt ég og skoðanasystkin mín hafi iðulega orðið undir þegar stöðuveitingar hafa verið annars vegar. Hef ég sjálfur komið við sögu í slíku samhengi. Margt hefur mér vissulega mislíkað við Ríkisútvarpið í áranna rás og stuðningur minn við þessa stofnun er algerlega undir því kominn að tiltekin grundvallarsjónarmið séu virt. Á þessu hef ég hamrað fyrr og nú. Oft hefur mér þótt RÚV komið út á ystu nöf og hvað stjórnvöldin áhrærir þá mun ég af athygli fylgjast með því hvort ríkisstjórninni er alvara að veikja tengsl almennings við þessa stofnun eins og fólst í stjórnarfrumvarpi um RÚV í vor. Þá verður spurt hvort ríkisstjórnin leggi meira upp úr þröngri pólitískri hugmyndafræði sinni eða breiðri samstöðu og sátt. Það verður ekki bæði sleppt og haldið.

Ekki veit ég hvað Össur Skarphéðinsson á við þegar hann segir að það boði "sjaldnast gott þegar þeir tveir flokkar (Sjálfstæðisflokkur og VG) fara að pukrast saman.."
Hvað á Össur Skarphéðinsson  við? Telur hann VG hafa staðið í einhvers konar samningum við menntamálaráðherra um ráðningu nýs útvarpsstjóra? Svo er ekki þó ég neiti því ekki að gjarnan vildi ég að víðtækt samráð væri haft um þessa stöðuveitingu.

Samskipti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs við alla flokka hafa verið hrein og bein. Oft hefur stjórnarandstaðan glímt sameiginlega við ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Allt of oft hefur VG verið eitt á báti. Nefni ég þar ýmis einkavæðingaráform, stóriðjustefnuna og virkjun við Kárahnjúka, afstöðu til aðildar Íslands að NATÓ og ýmsu því sem það bandalag hefur tekið sér fyrir hendur. Á milli Sjálfstæðisflokks/Framsóknar og VG hefur verið mun lengra bil en á milli Samfylkingar og þessara aðila. Aldrei hefur mér þótt það boða gott þegar stjórnarmeirihlutinn og Samfylkingin hafa náð vel saman svo ég fái frasann að láni frá Össuri og kemur það úr hörðustu átt að væna VG um daður við pólitík Sjálfstæðisflokksins..

Hitt hefur mér þótt betra þegar stjórnarandstöðunni hefur lánast að ná vel saman. Vonandi lánast okkur það á komandi misserum. Þá skiptir öllu að virða skoðanafrelsið og takst á um málefnalegan ágreining, því það er engum til góðs að sópa honum undir teppið.
Þess vegna langar mig til að enda þennan pistil á málefnalegri nótu og þar sem farið er að fjalla um skoðanir væri fróðlegt að heyra útleggingu Össurar Skarphéðinssonar á eftirfarandi ummælum hans um væntingar til nýs útvarpsstjóra: "Næsti útvarpsstjóri þarf að vera fær um að rífa RÚV framúr þeirri stöðnun sem þjakar stofnunina, finna henni traustan fjárhagsgrundvöll og slíta af henni pólitísku fjötrana".

Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur sett fram frumvarp um nákvæmlega hvernig hægt sé að ná þessum markmiðum. Hvað nákvæmlega vill Össur og Samfylkingin í þessu efni?

Lesendum bendi ég á vefslóð Össurar. Hún er HÉR. Eftirfarandi er pistill Össurar um útvarpsstjóramálið og HÉR er slóðin á pistil minn

Ég vona að Össur erfi það ekki við mig að ég birti pistil hans hér án leyfis:

Útvarpsstjóri og hrossakaup

Páll Magnússon hvarf af mikilli skyndingu frá 365-miðlum án þess að hægt væri að skilja af frásögnum nákvæmlega hvað bar á milli. Hugsanlega er hann orðinn leiður á því að hafa Gunnar Smára Egilsson sem Drottinn allsherjar yfir smáu og stóru og ráða litlu sjálfur. En í kjölfarið bárust svo merkileg tíðindi af fundi hans og menntamálaráðherra. Blöðin segja að búið sé að ganga frá því að Páll verði ráðinn útvarpsstjóri. Ég er ekki alveg viss um að þetta verði svona. Ég hef enga trú á því að Þorgerður Katrrín lofa svona upp í ermina á sér án þess að hafa hreinsað það mál við Þann Sem Öllu Ræður.

Mér þótti í ljósi þess síðasta fróðlegt að lesa síðasta pistil Ögmundar Jónassonar á heimasíðu hans - sem fjallar einmitt um næsta útvarpsstjóra. Í honum setur hann fram merkilegar formúleringar sem líta má á sem pólitíska krossgátu með vísbendingum. Ég hafði gaman af að spreyta mig á að ráða hana.

Ögmundur - sem hefur barist fyrir því að losa útvarpið undan pólitísku oki og haldið um það margar ræður á Alþingi - segir nú að hann sé reiðubúinn til að samþykkja útvarpsstjóra sem komi "úr heimi stjórnmálanna." Þetta er út af fyrir sig merkileg breyting á afstöðu - en auðvitað hafa allir rétt til að skipta um skoðun.

Ögmundur segir líka að hann geti vel fellt sig við að sá sem til starfans veljist sé pólitískur andstæðingur hans.

Í pólitísku merkjafræðinni þýða þessi skilaboð að Ögmundur er fyrir hönd VG reiðubúinn til að sætta sig við að Sjálfstæðismaður verði næsti útvarpsstjóri. Hann verður hins vegar "...að vilja Ríkisútvarpið í almannaeign og undir almannastjórn."

Þegar svona fána er skotið upp þýðir það vanalega að einhvers staðar á ósýnilegu dýpi hafa pólitískir fálmarar VG og Sjálfstæðisflokksins snerst og byrjað að þreifa á einstaklingi sem gæti orðið samkomulag um - án þess að mikill darraðardans byrji. Eftir fíaskóið með fréttastjórann hefur stjórnarliðið ekki efni á öðrum skandal - þó furðu gegni að Ögmundur lýsi sérstöku trausti á Markús Örn sem skaut þó mesta pólitíska feilskotinu sem ég man eftir úr sögu RÚV.

Sjálfstæðismaðurinn sem Ögmundur er að gæla við gæti tæpast verið virkur lengur í pólitík því um slíkan yrði aldrei samstaða. Hann má heldur ekki vera frjálshyggjumaður. Ögmundur segir í pistlinum að hann hafi "engan áhuga á hlýðnum já-karli eða já-konu." Það þýðir á ögmynnsku að viðkomandi þarf að hafa verið í andstöðu við forystu Sjálfstæðisflokksins. Kandídatinn þarf þó að njóta trausts í hans röðum - vera ágætlega þokkaður í Framsókn - og náttúrlega hafa virðingu stjórnarandstöðunnar.

Það þarf ekki mikla leikni í pólitískri krossgátu til að sjá hvaða kandídatar passa inní formúleringuna sem eimast úr gambra Ögmundar. Þar eru tveir einstaklingar sem falla einsog flís við rass að formúlu Ömma frænda. Þetta eru þau Inga Jóna Þórðardóttir og Þorsteinn Pálsson. Ég læt svo lesendum eftir að geta sér til um hvort þeirra Ögmundur vildi heldur.

En þetta er auðvitað skákin sem VG var byrjað að tefla í pistli Ögmundar við einhverja í Sjálfstæðisflokknum - þegar Páll Magnússon kom óvænt inn í spilið með fund sinn við Þorgerði.

Það verður gaman að sjá hvernig þessu vindur fram. Nú er það svo að ég held að sá útvarpsstjóri sem RÚV þarf á að halda eigi ekki endilega að vera sá sem allir geta fellt sig við - hvað þá sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn og VG. Það boðar nú sjaldnast gott þegar þeir tveir flokkar fara að pukrast saman.

Næsti útvarpsstjóri þarf að vera fær um að rífa RÚV framúr þeirri stöðnun sem þjakar stofnunina, finna henni traustan fjárhagsgrundvöll og slíta af henni pólitísku fjötrana. Ráðning útvarpsstjóra á því að falla að þörfum stofnunarinnar en ekki einhverra stjórnmálaflokka - jafnvel þeirra sem alltaf unnast á einhvern skrítinn hátt en ná vonandi aldrei að eigast.

Ég veit að Ögmundur er hestamaður góður og nýkominn úr löngu hestaferðalagi með vinum sínum. Það þýðir þó ekki að ráðning útvarpsstjóra eigi að ráðast af pólitískum hrossakaupum.

- Össur

 


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOÐSFERÐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARÐ AÐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOÐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta