Annað
25. Maí 2005
OLÍUFÉLÖG AXLA ÁBYRGÐ

Í nóvember á síðasta ári var það gert að umræðuefni á þessari síðu að fyrir botni Hvalfjarðar væru olíutankar í eigu NATÓ og íslensku olíufélaganna. Svo væri að skilja að NATÓ hugsaði vel um sína tanka en öðru máli gegndi um olíufélögin. Þau létu sína tanka drabbast niður. Ryðgaðir tankarnir blöstu við þeim sem ættu leið um Miðsand í Hvalfirði. Á það var bent að þetta væri bæði ljótt að sjá og einnig hættulegt. Ég kvaðst hafa heyrt haft eftir bónda af svæðinu að hann hefði eitt sinn komið að lekri olíuleiðslu þar sem olían hefði runnið út í náttúruna. DV tók málið upp og spurði hvort ekki þyrfti eitthvað að aðhafast í málinu. Nú hefur það gerst - annað er ekki að sjá en verið sé að taka niður tankana, alla vega einhverja þeirra. Þessu ber að fagna. Þökk sé oliúfélögunum og þökk sé DV fyrir að fylgja þessu máli eftir.
Sjá fyrri umfjöllun um málið á vef mínum
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOÐSFERÐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARÐ AÐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOÐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












