Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

28. Mars 2005

PÁSKABOÐSKAPUR FRÁ REYNIVÖLLUM

Ég hef talsvert hugleitt samband ríkis og kirkju í seinni tíð og um trúarbrögð almennt og meðal annars skrifað um þessi viðfangsefni hér á síðuna. Ég hef haft um það vaxandi efasemdir að trúarbrögð séu sá góði hvati sem margir vilja vera láta. Menn tengja gjarnan það besta í gjörðum okkar kristinni arfleifð. Það sækir mjög á hugann að þetta sé hreinlega rangt. Hvað með upplýsinguna, heimspeki almennt og hvað með heilbrigða skynsemi, er virkilega ekki eitthvað innbyggt í okkur öll sem má kalla því nafni? Mjög hrár bókstafsboðskapur sem berst úr kirkjunum – stundum útvarpað – finnst mér hreinlega óþægilegur, áreitinn án þess að vera vekjandi og uppbyggilegur. Iðulega hefði ég fremur kosið að heyra heimspekifyrirlestur eða gott ljóð. Séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum í Kjós höfðaði hins vegar mjög sterkt til mín í útvarpsmessu á föstudaginn langa. Kannski vegna þess að predikun hans var í senn heimspeki og ljóð. Efinn fær líka að vera til í boðskap hans: ".. Raunar er efinn samofinn trúnni, því að engin trú er hugsanleg án efa – og skyldi nokkur efi vera til án trúar? Trú er ekki í því fólgin að leggja trúnað á hvaðeina sem sagt er og þaðan af síður að afneita heilbrigðri skynsemi.
Aftur á móti felst trúin í því að vera gagntekinn af spurningunni um trúna, geta ekki sleppt henni, koma að henni aftur og aftur, allt lífið. Þannig var trú lærisveinanna, þeir trúðu – en þeir efuðust líka. Hinn upprisni birtist sumum lærisveinunum og sumir snertu hann – en samt voru þeir í vafa. Engu að síður urðu páskarnir til þess að snúa dæminu við, allt breyttist, lærisveinarnir voru gagnteknir nýjum krafti og þeir urðu farvegur hins nýja í þessum heimi. -  Hvað er það? Sumum finnst trúin vera farvegur hins gamla, jafnvel úreltra sjónarmiða. Þeim finnst trúin vera sá vettvangur í lífi mannsins þar sem hann varðveitir – og stendur vörð um – það sem alltaf hefur verið, þar verjist maðurinn nýrri þekkingu og nýju áreiti og þar að auki sé trúin – og trúarbrögð almennt – oft gróðrarstía fordóma og jafnvel ofstækis. Oft getur svo verið, en er það þá ekki vegna þess að maðurinn sjálfur, lokaður inni í sínum litla heimi, hefur lagað trúarbrögðin að sjálfum sér, þetta þekkjum við úr kristinni trú ekki síður en öðrum trúarbrögðum..."

Hér birti ég pridikun séra Gunnars Kristjánssonar á Reynivöllum í heild sinni og hvet menn til að lesa hana.

Páskar 2005 Reynivellir: Útvarpsmessa

Textar: Textar: Sálm 118:14-24; 1.Kor. 15.1-8a; Mark. 16.1-7

Biðjum: Himneski faðir, við þökkum þér fyrir gleði og fögnuð páskanna. Við biðjum þig að vekja með okkur sömu gleði og sama hugrekki og þeir vöktu með hinum fyrstu lærisveinum. Amen.

Náð sé með yður og friður.

Enn er myrkur þegar konurnar halda út fyrir borgina, það læðist í spor þeirra þar sem þær nálgast gröfina. Það var einnig myrkur í sál þeirra þegar þær lögðu af stað og umræðuefni þeirra á leiðinni virðist hafa verið steinninn þungi, hann hvílir á þeim eins og mara enda er Golgata ennþá í hugum þeirra. Þær bjuggust ekki við neinu óvenjulegu.

            Eins og aðrir dagar hefst páskadagur í myrkri næturinnar. Páskarnir hefjast í myrkri við gröf dauðans. En brátt roðar sólin austurhimininn. Páskar fjalla um átök ljóss og myrkurs, lífsins og dauðans.

Konurnar hugga sig við ilm blómanna, sem þær halda á, en svo beinist kvíði þeirra aftur að steininum: “Hver mun velta fyrir oss steininum frá grafarmunnanum?” Þannig ritar Markús.

Hann slær hér sinn eigin streng í þessari elstu páskafrásögn guðspjallanna. Í knappri sögu sinni teflir Markús steininum fram af stílfræðilegri ástæðu. Hinir guðspjallamennirnir fóru síðan að dæmi hans. Steinninn vísar til hinna þungu tilvistarspurninga sem vakna með konunum og lærisveinahópnum öllum. Hann er táknmynd fyrir fargið sem hvílir á þeirra eigin hjarta: hvað verður þegar þessu mikla ævintýri er lokið, þessari stuttu sögu sem breytti lífi hópsins frá Galíleu? Hvað verður nú um okkur og um málstaðinn sem olli svo miklu uppnámi og gaf svo mörgum nýja von?

Svipaða táknmerkingu steinsins þekktu Grikkir til forna. Sísifosi konungi í Korintuborg var refsað fyrir að leika á dauðann. Á hann var lagt að velta þungum steini upp fjallshlíð, en steinninn valt jafnharðan niður aftur þegar hann nálgaðist brúnina og þannig án afláts í það óendanlega. Steinninn er ímynd hins þunga oks forgengileika og dauða sem maðurinn ber frá vöggu til grafar.

Í frásögn Markúsar kveður skyndilega við nýjan tón; steinninn fær nýtt hlutverk: óttinn er ekki lengur táknmið hans heldur vonin, hann er ekki lengur merkingarberi kvíðans heldur ímynd gleðinnar, nú er það ekki lengur okið sem hann vísar til heldur lausnin: “En þegar þær líta upp, sjá þær, að steininum hafði verið velt frá, en hann var mjög stór.” Steinninn er orðinn partur af nýju fagnaðarerindi fyrir þennan heim.

Því fór samt fjarri að læriveinarnir og aðrir, sem með þeim voru, hafi tekið þeim fagnandi þegar þær fluttu tíðindin um steininn og gröfina, síður en svo. Tómas neitaði að trúa og hann var ekki sá eini. Mattheus ritar alveg undir lok guðspjallsins þessa umhugsunarverðu athugasemd sem á við um upprisu Jesú meðal annars, hann segir: “... sumir voru í vafa”. Hann er að tala hér um lærisveinana, þá sem stóðu næst Jesú, innsta hringinn. Sumir þeirra voru í vafa, þrátt fyrir upprisuna. Kannski var Mattheus sjálfur í vafa, kannski ert þú í vafa hlustandi góður. Og hvað um Jesúm sjálfan: efaðist hann á krossinum þegar hann hrópaði í örvæntingu: Guð minn hví hefur þú yfirgefið mig?

Efinn er samofinn frásögnum guðspjallanna og gefur upplýsingar um viðbrögð lærisveinanna við sögum af upprisu Jesú og birtingu hans eftir upprisuna. Raunar er efinn samofinn trúnni, því að engin trú er hugsanleg án efa – og skyldi nokkur efi vera til án trúar? Trú er ekki í því fólgin að leggja trúnað á hvaðeina sem sagt er og þaðan af síður að afneita heilbrigðri skynsemi.

Aftur á móti felst trúin í því að vera gagntekinn af spurningunni um trúna, geta ekki sleppt henni, koma að henni aftur og aftur, allt lífið. Þannig var trú lærisveinanna, þeir trúðu – en þeir efuðust líka.  

Hinn upprisni birtist sumum lærisveinunum og sumir snertu hann – en samt voru þeir í vafa. Engu að síður urðu páskarnir til þess að snúa dæminu við, allt breyttist, lærisveinarnir voru gagnteknir nýjum krafti og þeir urðu farvegur hins nýja í þessum heimi. -  Hvað er það?

Sumum finnst trúin vera farvegur hins gamla, jafnvel úreltra sjónarmiða. Þeim finnst trúin vera sá vettvangur í lífi mannsins þar sem hann varðveitir – og stendur vörð um – það sem alltaf hefur verið, þar verjist maðurinn nýrri þekkingu og nýju áreiti og þar að auki sé trúin – og trúarbrögð almennt – oft gróðrarstía fordóma og jafnvel ofstækis.

Oft getur svo verið, en er það þá ekki vegna þess að maðurinn sjálfur, lokaður inni í sínum litla heimi, hefur lagað trúarbrögðin nað sjálfum sér, þetta þekkjum við úr kristinni trú ekki síður en öðrum trúarbrögðum.

Þegar betur er gáð til sögu og samtíðar er trúin einmitt farvegur hins nýja, hún er umbyltandi afl sem losnar sífellt úr læðingi, endurskapandi kraftur sem ögrar kyrrstöðu og fastheldni við það sem úr sér er gengið aftur og aftur með ýmsum hætti í tvöþúsund ár. Þegar við horfum á Jesúm og lærisveina hans leynir það sér ekki að þar er hópur sem vill leysa manninn úr lokuðum heimi til nýs skapandi og gefandi lífs.

Páskarnir eru hátíð hins óvænta og nýja. Páll postuli túlkar páskana sem nýja sköpun. Páskarnir eru umbrot nýrrar sköpunar, það er hans guðfræði. Ný birta skín inn í myrkur grafarinnar þar sem ekkert líf er, ný von kviknar með lærisveinunum óttaslegnu. Páskasólin er vísun í orð sköpunarsögunnar “verði ljós”.

Einmitt á páskum stendur þessi hugrakki og róttæki hópur á tímamótum. Jesús og flokkur hans hafði reynt á þolrifin hjá trúarleiðtogum og ögrað stjórnvöldum, og þeir höfðu einnig gengið fram af almennum borgurum. Hið nýja er ögrandi.

Í eftirfarandi orðum úr nýlegri ævisögu, þar sem vitnað er í orð söguhetjunnar á páskum 1963 er eitt dæmi, þar segir: “Jesús er upprisinn, þessi dagur einkennist af gleði og þakklæti, á þessum degi gerðist afdrifaríkasta bylting sögunnar, bylting sem snýst um ást og umhyggju… , um allsherjarnávist guðdómsins í lífi mannsins; þessi hátíð merkir frelsun mannsins frá kúgun og ofbeldi en hún felur í sér skuldbindingu við mannúð og mennsku.”

Þessi orð skrifaði ungur stúdent, sem síðar varð ímynd 68-byltingarinnar, stúdentaleiðtoginn Rudi Dutschke (1940-1979) sem varð fyrir tveim byssukúlum sem þutu gegnum heilann og skildu eftir sig ógræðanleg sár. Þetta gerðist á útifundi á skírdag 1968, í sama mánuði og Martin Luther King féll fyrir byssukúlu annars ofstækismanns sem þoldi ekki heldur hinn kjarnmikla  boðskap um réttlæti og mannúð.

Stúdentaleiðtoginn Rudi Dutschke átti hins vegar rúman áratug ólifaðan við miklar þjáningar. En vonina um betra þjóðfélag missti hann aldrei, vonina um réttlátt og skapandi samfélag. Hann lést á aðfangadag jóla 1979.

Eins og páskasólin skein inn í myrkur grafarinnar þannig verður vonin til í myrkri vonleysisins. Páskarnir eru hvatning til nýrra verka og meira en það: Hvatning til að leggja mikið í sölurnar fyrir þann dýrmæta málstað sem þeir snúast um.

Litli hópurinn í Jerúsalem, sem beið í ótta og örvæntingu bak við læstar dyr á páskadagsmorgun, er kallaður til nýs hlutverks, hér er vaxtarsproti nýs samfélags sem óttast hvorki konunga né keisara því að einn er konungur hans og það er Jesús. Hér sitja allir við sama borð, borð kvöldmáltíðarinnar, þangað sem aðgangur er öllum opinn, háum sem lágum, Gyðingum og Grikkjum. Hér er ekki gerður greinarmunur á konum og körlum, kynþættir skipta engu og börn eru hafin til vegs og virðingar. Þannig eru lýsingarnar.

Þetta er hið nýja samfélag, þetta er páskahópurinn sem kennir sig við Jesúm Krist sem er mitt á meðal þeirra, upprisinn í hjörtum þeirra. Framgang hins hugrakka samfélags fékk ekkert hindrað, það leggur af stað aftur og aftur, óbundið öllum jarðneskum hagsmunum, brennandi í andanum. Það sýnir sagan.

Þetta skapandi samfélag páskanna er líka prófsteinn á kirkjuna á hverjum tíma: er hún samfélag eins og það var í öndverðu, er hún athvarf þeirra sem skapandi eru, er hún vettvangur hinna hugrökku, skjól þeirra sem ryðja brautina, athvarf hugsjónamanna, vígi hinna róttæku byltingarmanna sem feta óttalaust í fótspor Jesú og litla hópsins frá Galíleu?

Er faðmur hennar opinn fyrir þeim sem lifa á jaðrinum í samfélaginu, sem berjast fyrir rétti sínum, sem leita logandi ljósi að mannúð og mennsku í hörðum og miskunnarlausum heimi?

Skapandi erum við þegar við þorum að halda út í óvissuna, þegar við greiðum nýjum hugmyndum veg. Í sköpuninni er líf, í kyrrstöðunni er dauði.

Gleði páskanna felst í því að segja “já” við lífinu, sínu eigin lífi og annarra. Gleðin kostar ekkert, hún felst í lífsafstöðu, í skapandi lífsviðhorfum þar sem við lærum að nýju að njóta þess sem einfalt er.

Segjum “já” í huga okkar við leikjum barnsins, við lífsþrá unglingsins, stöndum með þeim sem þora að tjá eigin skoðun þrátt fyrir andstöðu, stöndum með þeim sem eru í minnihluta gegn ofurvaldi meirihlutans, verjum rétt hins smáa á tímum sem hefja sigurvegarana á stall, styðjum þá sem leita þess sem satt er, fagurt og gott á tímum sem hneigjast til sýndarmennsku.

Málið snýst um návist Guðs í lífi mannsins, um nýja von í þessum heimi, einnig í lífi fanganna í Abu Ghraib fangelsinu við Bagdhad sem stóðu uppi á kassa með poka yfir höfðinu og rafleiðslur festar á útlimi og kynfæri og hlustuðu á hæðnishróp þeirra sem stóðu umhverfis, sumir með myndavél í höndum, þarna er Golgata nútímans. Páskarnir eru boðskapur til allra þeirra sem líða og þjást í myrkri vonleysis og haturs í þessum heimi, til þeirra sem allar einkaþotur sveigja hjá og enginn minnist, til þeirra sem hafa lokast inni í eigin heimi. Páskarnir snúast um að brjóta vald dauðans á bak aftur, vald haturs og hefnda, miskunnarleysis og harðneskju. Páskarnir eru hátíð sem á morgunsólina að tákni, hina sterku birtu sem hrekur myrkrið á braut.  

Málið snýst um að vera gagntekinn af þeim spurningum sem trúin sýst um: hvað er lífið, til hvers lifi ég? Og að vera gagntekinn af Jesú sem óþrjótandi uppsprettu mannúðar og mennsku. Boðskapur páskanna er tækifæri, sem vekur þessi viðbrögð, “já”, ég er tilbúinn til að leggja hinum skapandi öflum lið, ég er tilbúinn til að ganga til hinna umkomulausu, til hinna óttaslegnu, til hinna fátæku.

Í ævintýrinu Næturgalinn eftir H.C. Andersen bægði næturgalinn dauðanum úr hjarta keisarans með söng sínum. Kannski er skáldið að tala þarna um upprisuna, söngur fuglsins, sem kenndur er við nóttina, kemur til keisarans um nótt með söng sinn og hrekur dauðann úr hjarta hans.

Það er einnig inntak páskanna, það er boðskapur um nýja og óvænta gleði sem nær dýpst inn í vitund mannsins, til vitundar hans og vilja, til alls þess besta sem býr í hjarta hans. Hið nýja vekur löngun mannsins til góðra verka, til nýrrar löngunar til að tjá sig og eiga samfélag við aðra um góð verk í rökkvuðum heimi. Mælikvarðinn á mannúð og mennsku er sá mælikvarði sem Jesús lagði sjálfur með sínu eigin fordæmi: með umhyggju, miskunnsemi og sáttfýsi. Páskarnir leysa manninn úr viðjum dauðans, úr helgreipum hins gamla og forgengilega, undan oki hins ímyndaða öryggis hins viðtekna þar sem hann tortryggni til hins nýja liggur við hvert fótmál.

Líkt og næturgalinn bægir dauðanum úr hjarta keisarans koma páskarnir með nýtt hugrekki til að lifa á öld kvíðans, á tímum ofbeldis þegar hinn hörðu gildi hafa framgang.

Þess vegna eru þeir hátíð gleðinnar, þess vegna er litur þeirra gulur, þess vegna gleðjumst við og fögnum á þessari lífsins og vorsins hátíð.

Amen.


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOÐSFERÐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARÐ AÐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOÐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta