Annað
15. Mars 2005
EINFÖLD LEIÐ TIL AÐ LAGA RÚV
Röksemd Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, fyrir að breyta Ríkisútvarpinu í markaðsstofnun/SF er að innihaldi til eftirfarandi: Þá losnar stofnunin við afskipti stjórnmálamanna; fólk eins og mig, það er að segja ráðherrann sjálfan. Ef þetta er vandamálið kann ég eitt ráð við því. Það er að láta stofnunina í friði; skipa menn í útvarpsráð eða önnur ráð sem eru hliðhollir stofnuninni en ekki einstaklinga sem brugga henni launráð. Með öðrum orðum, ráðherrann gæti beitt áhrifum sínum til þess að fagleg vinnubrögð væru í heiðri höfð.
Í Kastljósi í kvöld var spurt hvers vegna ekki hafi verið beðið með ráðninguna á fréttastjóra Útvarps þar til frumvarp ráðherrans væri orðið að lögum. Nær hefði verið að spyrja hvers vegna ráðherrann hefði ekki beitt sér í þágu vandaðra og heiðarlegra vinnubragða. Þá hefði ekki þurft neitt frumvarp – eða hvað?
Menntamálaráðherra átti ekki orð yfir því hve fráleit sú krafa hafi verið á Alþingi að óska eftir afskiptum hennar að útvarpsstjóramálinu. Þar var væntanlega vísað í mín ummæli. Ég sagði að almennt væru bein pólitísk afskipti óæskileg en ef um það væri breið samstaða á Alþingi að beita áhrifum til að leysa mál og setja niður deilur þá væri ekkert við það að athuga, heldur beinlínis æskilegt. Það væri nefnilega eitt að nota pólitísk völd í eiginhagsmunaskyni og til að þjóna þröngum flokkshagsmunum og annað að færa það sem úrskeiðis hefði farið til betri vegar.
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOÐSFERÐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARÐ AÐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOÐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












