Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

11. Október 2004

Þjóðarblómið

Skemmtileg er sú hugmynd að láta kjósa um þjóðarblóm. Verst er að almennt er fólk ekki búið að átta sig á að atkvæðagreiðslan stendur yfir einmitt nú og fáir dagar til stefnu eða fram til 15. október. Valið stendur á milli sjö blóma sem eru:  Blágresi, Blóðberg, Geldingahnappur, Gleym-mér-ei, Holtasóley, Lambagras og Hrafnafífa eða Fífa eins og hún yfirleitt er kölluð. Það er ásæða til að hvetja fólk til þátttöku og verð ég að segja að öll þau blóm sem komin eru í "undanúrslit" eru að mínu mati verðug til að verða þjóðarblóm okkar. Fyrir mitt leyti hef ég komist að niðurstöðu. Niðurstaðan varð Fífa. Að hún yrði fyrir valinu hjá mér hefði ég ekki trúað að óreyndu. Ég hef þegar kosið Fífuna og lét þar stjórnast af röksemdum Rögnu S. Sveinsdóttur í grein hennar í Morgunblaðinu nýlega.

Hér er síðan slóðin sem hægt er að greiða atkvæði á.

Eftirfarandi er áðurnefnd grein eftir Rögnu S. Sveinsdóttur, leiðsögumann og fyrrverandi lektor í frönsku, sem birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 2. október  um þjóðarblómið og kjör þess. Greinin þykir mér afar góð og hvet ég fólk að lesa hana:

"GÓÐIR landsmenn, nú styttist sá tími sem þjóðin hefur til þess að íhuga val á þjóðarblómi eða plöntu; miklu skiptir að vel takist til og að valið verði hvorki illa grundað né handahófskennt. Hér skulu því tilgreind ýmis kennimörk er huga skal að áður en til endanlegs kjörs þess kemur, kennimörk sem notuð hafa verið með ýmsum þjóðum í viðlíka tilfellum.
Í fyrsta lagi þarf plöntu er flestir landsmenn þekkja, plöntu sem einkennir landið umfram aðrar, aðgreinir það jafnvel frá öðrum löndum og síðast en ekki síst plöntu sem verið hefur óhjákvæmileg undirstaða í daglegu lífi og menningu þjóðarinnar líkt og hlynur Kanada, sedrusviður Líbanons og papyrusplanta Egyptalands svo nokkuð sé nefnt.
Þegar litið er yfir þær plöntutegundir, sem lagðar eru til grundvallar vali okkar Íslendinga á þjóðarblómi eða plöntu og hugað er að þeim viðmiðunum sem að framan eru tilgreind kemur vart nema ein tegund til greina, þ.e.a.s. fífa; hana þekkja flestir, hún er sérstök, stílhrein, sterk í formi og myndrænt séð kjörin sem táknmynd, eða eins og Landvernd orðar það í bæklingi sínum: "Eitthvað villt og gróft, sem er svo lýsandi fyrir Ísland".
Fífa er mjög áberandi planta, ekki síst aldinið, sem má telja eitt fegursta djásn íslenskrar náttúru og skrýðir landið lengur en nokkur önnur tilgreindra plantna Landverndar, eða frá sólstöðum þar til ullin fýkur burt með haustvindum. Þá skreytir fífa öðrum plöntum fremur jafnt hálendi sem láglendi og hefur í aldanna rás stuðlað að jarðvegsfestu, umfram flestar aðrar plöntur landsins: með þéttriðnu rótarkerfi árþúsunda og rotnandi leifum hennar í raklendi hefur aldrei heyrst getið um landrof í fífuflóa; þannig skapar fífa "táknræna samstöðu um gróðurvernd" eins og komist er að orði í bæklingi Landverndar.
Hve einkennandi fífa er fyrir landið sést best á því hvílíka eftirtekt hún vekur meðal erlendra ferðamanna, en hún er fyrsta og að jafnaði eina plantan sem þeir spyrja hver sé, strax á fyrsta degi ferðar um landið; hún er m.ö.o. flestum erlendum ferðamönnum framandi og þar með eitt af sérkennum landsins; hennar gætir vart annars staðar á byggðu bóli í vestrænni veröld utan nyrstu og strjálustu byggða norðurhvelsins; auk þess er fífa enn þann dag í dag sú íslenska planta sem hve mest er safnað til þurrkunar og híbýlaprýði á vetrum, e.t.v. ómeðvitað sem einskonar minni um birtu og gróanda sumarsins.

Þá er komið að því atriði sem segja má að sé meginforsenda kjörs fífu sem þjóðarblóms, nefnilega því sem gerði hana að óhjákvæmilegri undirstöðu íslensks þjóðlífs í aldanna rás, en í u.þ.b. 1.000 ár af sögu landsins brann á kveikjum hennar svo og stönglum sbr.: "Ljósið kemur langt og mjótt, logar á fífustöngum...", það eina ljós er birtu bar í drungalegar vistaverur genginna kynslóða; þar með gerði hún íslenskri þjóð kleift að vinna, lesa og skrifa á löngum og dimmum vetrarkvöldum; fífa er þannig undirstaða andlegrar jafnt sem verklegrar menningar landsins og um leið tákn ljóssins í tvöföldum skilningi þar eð hún skrýðir landið einnig umfram aðrar plöntur í nóttlausri voraldarveröld íslensks sumars.
Það skal að lokum tekið fram að einstaka aðrar plöntur á lista Landverndar, svo sem birki og hvönn, eiga athygli skilið við val á þjóðarplöntu, en allir gátu lifað án þeirra á meðan enginn komst af án fífu."

 

 


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta