Annađ
18. Apríl 2004
Drápu Íslendingar leiđtoga Hamas?
Í magnađri predikun séra Arnar Bárđar Jónssonar, sem útvarpađ var úr Neskirkju í Reykjavík í Ríkisútvarpinu í dag, var spurningu á ţessa lund varpađ fram og brá prestur ţar út af skrifuđum texta. Međ spurningunni vildi séra Örn Bárđur minna okkur á ađ viđ erum hluti af alţjóđasamfélaginu, látum ţar til okkar taka og ađ ţví fylgi ábyrgđ. Hann minnti á siđferđilega ábyrgđ mannsins gagnvart međbrćđrum sínum, óháđ trúarbrögđum. Hann kom víđa viđ, fjallađi ţó fyrst og fremst um alţjóđamál en vék einnig ađ öđrum málum, m.a. frumvarpi sem liggur fyrir Alţingi um málefni útlendinga. Tilvísanir í bókmenntir voru ríkulegar, sannkölluđ veisla!
Ţađ sem einkennir predikanir séra Arnar Bárđar er hve sterka skírskotun ţćr hafa jafnan til ţess sem er ađ gerast í samtímanum og hve umbúđalaust tekiđ er á málum. Ekki hef ég hlustađ á allar útvarpsmessur síđan séra Gunnar
Kirkjan hefur á ađ skipa nokkrum mjög öflugum kennimönnum, sannkölluđum eldklerkum og eru ţessir tveir fyrrnefndu, ţar framarlega í flokki. Ekki er ég kirkjurćkinn mađur nema síđur sé. Ég held ţađ hins vegar eigi viđ um marga, hverrar trúar sem ţeir eru, ef ţá yfirleitt nokkurrar, ađ kraftmikill málflutningur sem byggir á djúpri siđferđislegri vitund og tekur jafnframt á brennandi málefnum samtíđarinnar af visku, höfđar sterkt til allra. Ég minnist ţess ađ ég stóđ viđ hliđina á ungri stúlku ţegar séra Örn Bárđur flutti rćđu á útifundi sem bođađ hafđi veriđ til á Lćkjartorgi gegn árásinni á Írak. Ađ lokinni rćđunni sagđi hún, ađ hún sći ekki annađ en hún ţyrfti ađ fara ađ sćkja messur í Neskirkju!
Ţegar ég fór inn á vefsíđu Neskirkju eftir ađ útvarpsmessunni lauk sá ég ađ ţar á bć láta menn ekki ađ sér hćđa ţegar tćknin er annars vegar. Ţar er nú hćgt ađ fylgjast međ útvarpsmessum í beinni útsendingu á netinu!
Hér er tengillinn inn á predikun séra Arnar Bárđar í dag.
Og hér er tengillinn yfir á vefsíđu Neskirkju.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson












