Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

4. Janúar 2004

Um annála, skaupið og áramótaávörp: Markús Örn með vinninginn

Hér á þessari heimasíðu hefur Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri sætt nokkurri gagnrýni að undanförnu og þá einkum í tengslum við hans eigin gagnrýni á fréttaþáttinn Spegilinn. Hefur okkur mörgum þótt þar vegið að góðri fréttamennsku. Meintur glæpur þeirra Spegilsmanna virðist hafa verið að vilja opna fyrir upplýsingu og mismunandi viðhorf. Þetta er ekki ámælisvert heldur eðlileg vinnubrögð á fjölmilði. Það er athyglisvert að ekki virðast þeir trufla útvarpsstjórann fréttamennirnir, sem eru minna gefnir fyrir andlega áreynslu en þeir Spegilsmenn eru (með Friðrik Pál Jónsson í farabroddi) eða eru einfaldlega samdauna ríkjandi viðhorfum.
Annálar sjónvarpsins – því miður missti ég af annálum hljóðvarpsins hjá RÚV og einnig af annálum Stöðvar tvö – færðu okkur heim sannninn um að ríkissjónvarpið er óþægilega nærri því að vera valdhafafréttamiðill.
Vissulega sáum við í annálum andóf gegn Írak við Sjórnarráðið hér í Reykjavík, en hvar voru fjöldafundirnir sem haldnir voru í höfuðborginni og reyndar víðar, í aðdraganda stríðsins? Allt andóf var smækkað og tekið úr því allur safi og kraftur sem fylgir oftast fjölmennum fundum, nema þá helst varðandi Kárahnjúka. Þar sáust þó fleiri en tíu, tuttugu manns. En það sem ég á við með hugtakinu valdhafafréttamiðill birtist í sinni nöktustu mynd þegar talsmaður Bandaríkjaforseta, hvort sem er í Bagdad, Pentagon eða Hvíta Húsinu, er nánast orðinn fréttaskýrandi fréttastofu Sjónvarpsins. Hann stendur nú orðið við míkrófóninn og talar til okkar beint fyrir milligöngu RÚV. Við skulum ekki gleyma því að úr þessum míkrófóni hafa menn orðið uppvísir af grófum fölsunum bæði fyrr og síðar.
Þessi gagnrýnislausa afstaða til valdsins var einkennadi bæði í innlenda og erlenda fréttaannál Sjónvarpsins. Eftir átakaár, þar sem eignir þjóðarinnar hafa nánast verið gefnar, þar sem hvert hneykslismálið  hefur rekið annað, hvort sem er í Landssímanum og gegndarlausu sukki með almannaeignir þar á bæ, störfum einkavæðingarnefndar sem borgaði sjálfri sér milljónatugi fyrir að ráðleggja sjálfri sér; sölu ríkisbankanna þar sem rétt fyrir áramót var verið að ganga frá 700 milljón króna bónus til nýrra eigenda, þrátt fyrir metgróða; eftir vægast sagt vafasöm vinnubrögð stjórnvalda við útboð og síðan framkvæmdir við Kárahnjúka, fylgispekt og undirgefni gagnvart Bndaríkjamönnum í Íraksstríðinu og fullkomið andvarleysi varðandi þá eðlisbreytingu sem er að verða á NAT'O og felur í sér aukna hættu á að bandalaginu verði beitt sem árásartæki Bandaríkjanna víðs vegar um heiminn – þá hefði maður búist við hressilega krassandi annálum. Skyldi það sem hér er fram talið og margt, margt annað af svipuðu tagi hafa komið fram í fréttaannálum Sjónvarpsins? Nei.
Steininn tók þó úr við ávörp forsætisráðherra og forseta Íslands. Sá síðarnefndi varði mestum tíma sínum í að dásama þá sem hann kallaði "athafnaskáld" og varaði við því að þrengt yrði að þessum mönnum!  Hann sagði að við yrðum að viðurkenna hina miklu menn, sem hefðu sótt fram á sviði lyfjaiðnaðar og síðan fylgdi mikil upptalning á afrekum þeirra.  Ég ætla nú að leyfa mér að segja, að full ástæða er til að setja stórt spurningamerki við hvað þessir aðilar eru að gera víða um lönd.  Og fyrst minnst er á lyfjaiðnað og Balkanskagann, sem ég held að hafi einnig verið nefndur á nafn,  þá er það staðreynd að þangað var haldið með fríðu föruneyti, helstu valdamanna landsins og fulltrúum stærstu fjölmiðlanna, fyrir ekki svo ýkja löngu, þegar skáldjöfrarnir voru að taka yfir lyfjverslun ríkisins í Búlgaríu. Og sömu aðilar hafa nú tekið höndum saman við bandarísk "athafnaskáld", sem með aðstoð bandaríska sendiráðsins í Búkarest beita þumalskrúfum til að þvinga búlgörsk stjórnvöld til að einkvæða og í kjölfarið afhenda þeim búlgarska landssímann.  Þætti okkur í lagi ef útlenskir auðmenn kæmu svona fram við okkur – með hjálp bandarísku utanríkisþjónustunnar?
Ólafur Ragnar Grímsson hefur sagt margt ágætt í ávarpsorðum sínum til þjóðarinnar á nýjársdag á liðnum árum og vissulega var sitthvað ágætt í ávarpinu að þessu sinni. En það á ekki við um meginstefið, nefnilega, að við megum ekki vera vond við ríka fólkið, því það þurfi svigrúm til að "athafna sig". Þessi áskorun var sett í búning sanngirninnar! Á öðru var þörf frá Bessastöðum nú, í samfélagi vaxandi misskiptingar.
Davíð Oddsson var ánægður með sig og sína í sínu ávarpi. Hér á landi væri allt í stakasta lagi. Á gamlárskvöld værum við sem betur fer  laus við allt "nöldrið" sem fyllti síður blaðanna allan ársins hring. Hér var forsætisráherra væntanlega að vísa í málflutning náttúruverndarsinna og talsmanna Öryrkjabandalgs Íslands, verkalýðshreyfingarinnar og stjórnarandstöðu, allra þessara aðila sem sífellt eru "nöldrandi".
En það er rétt, að á gamlárskvöld er ekkert nöldur. Í áramótaskaupinu er þeim yfirleitt hyglað sem gera það gott, þeir eru kankvíslega og góðlátlega mærðir, en hinir sem verða undir, fá eiturpílurnar. Þær stóðu að þessu sinni út úr bakinu á fyrrverandi dómsmálaráðherra og eignmanni,  fyrrverandi Skeljungsforstjóra.  Vinningshafar ársins voru hins vegar hafnir upp til skýjanna, þar skinu þeir skærast Davíð og Björgólfur.
En viti menn, undir miðnættið á gamlárskvöld birtist síðan Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri með aldeilis bráðgóða hugvekju, þátt um Sigvalda Kaldalóns tónskáldið mikla. Það var einstaklega vel til fundið af Markúsi Erni að flétta saman lífshlaup og list Sigvalda sinni hugvekju og á útvarpsstjóri lof skilið fyrir. Markús Örn Antonsson hefur þróað áramótaávarp útvarpsstjóra í sínum anda og hefur hann mótað sína eigin formúlu. Það er erfitt að endurtaka stemningsþátt eins og þennan, sem bundinn er tiltekinni stund – sjálfum áraskiptunum -  en mér þykir það engu að síður vel koma til greina – en þá þarf það að gerast strax á nýjársdag eða annan janúar. En í ávarpaflórunni hafði Markús Örn tvímælalaust vinninginn að mínu mati. Með eigin orðum, stórbrotinni tónlist Sigvalda og með hjálp góðra listamnna, skapaði Markús Örn Antonsson eftirminnilega stund, sem reis svo sannarlega undir þeim væntingum sem kröfuharðir áhorfendur hafa.
Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup á einnig þakkir skilið fyrir þá áherslu sem hann lagði á börn og góða aðhlynningu þeirra á tímum penigahyggjunnar. Þetta er rétt hjá séra Karli. Börnin eiga erfitt uppdráttar í samfélagi gróðahyggjunnar, og því miður er ekki góðs að vænta þegar helstu talsmenn samfélagsins horfa í átt að gullinu og ekki hinum æðri gildum, sjá jafnvel ekki sólina fyrir "athafnaskáldunum", sem mala gullið. Til þeirra virðast þeir líta sem bjargvætta þjóðarinnar – ef þá ekki þjóðanna.


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLÆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIÐ VONBRIGÐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGÐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓÐ KVEÐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta