Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

21. Nóvember 2003

Valgerði ögrað og Davíð vill að menn sýni ábyrgð!

Upplýst hefur verið að tveir æðstu stjórnendur Kaupþings Búnaðarbanka hafa hvor um sig keypt hluti í bankanum fyrir rúmar 950 milljónir króna, samkvæmt samningum við eigendur, á gengi sem er langt undir markaðsgengi. Morgunblaðið upplýsir að ef þeir seldu hluti sína nú næmi söluhagnaður hvors um sig 365 milljónum króna. Landsmönnum ofbýður enn eitt dæmið um fjármálabrask á Íslandi. Það sem er nýtt er að bankamálaráðherrann Valgerður Sverrisdóttir, segist vera "hissa". Á forsíðu Morgunblaðsins í dag er vitnað í ráðherrann sem segir að þetta gangi lengra en hún geti sætt sig við án þess að hún "láti í sér heyra". Hún segist ekki hafa til þessa hafa verið með stór orð "um það sem er að gerast á markaðinum en mér ofbýður. Mér finnst felast í þessu mikil ögrun."
Það er alveg rétt hjá Valgerði Sverrisdóttur bankamálaráðherra að hún hefur ekki verið með stór orð "um það sem er að gerast á markaðinum" en þeim mun stærri hafa gjörðir hennar verið. Eru það ekki nýju "kjölfestufjárfestarnir" sem hún fékk Búnaðarbankann í hendur sem eru að gera þessa samninga við stjórnendur sem þeir telja vera þyngd sinnar virði í gulli? Getur það virkilega verið að ráðherrar ríkisstjórnarinnar sjái ekkert samhengi á milli eigin gjörða og hvernig komið er meðferð fjármuna í þjóðfélaginu? Forsætisráðherrann, Davíð Oddsson, hefur sýnt okkur í fréttaviðtölum í dag að hann gerir það ekki! Hann kemur af fjöllum og á ekki orð yfir siðleysi manna; fór í Búnaðarbankann í dag og segist ætla með peningana sína í annan banka. Ekki veit ég hvert Davíð Oddsson ætlar með sparifé sitt því á honum var að skilja að allir bankarnir væru orðnir meira og minna spilltir og stýrt af siðlausum mönnum. Er þetta ekki sami forsætisráðherrann og fyrir skömmu sagðist gleðjast yfir því hve mikil "eignagleði" væri í þjóðfélaginu? Ég held að flestum hafi skilist að ráðherrann hafi átt við að ásókn í gróða, gróðafíknin, væri eftirsóknarverð og leiddi til framfara; og að nú væru öll teikn á lofti að Íslendingar hefðu náð þessu þroskastigi.

 Staðhæfingar úr tengslum við staðreyndir

Þannig er vandséð að ríkisstjórnin sjái nokkurt samhengi á milli þeirrar stefnu sem fylgt hefur verið við stjórn landsins undir hennar handarjaðri og þess sem er að gerast í atvinnu- og fjármálalífi þjóðarinnar.  Reyndar er ég orðinn þeirrar skoðunar að rök hrífi ekki mikið í umræðu um þessi efni. Á öðrum stað í Morgunblaðinu í dag en þeim sem hér hefur verið vitnað til, segir frá ráðstefnu um raforkumál. Þar mun hafa verið lesið upp ávarp frá Valgerði Sverrisdóttur en nú í gervi iðnaðarráðherra. Í ávarpi ráðherrans er mælt með markaðsvæðingu raforkugeirans og segir að margt mæli með því "að hlutafélagaformið taki við af núverandi rekstrarformi ríkis og sveitarfélaga, varðandi samkeppnisþættina, flutning og dreifingu." Haft er eftir ráðherranum að "á síðustu árum hafi áunnist veruleg reynsla á sviði samkeppni, vinnslu og sölu raforku. meiri árangur hafi náðst að jafnaði í vinnslu og sölu í samkeppnisumhverfi en þar sem hefðbundinn einkaréttur sé einn allsráðandi."
Er þetta rétt? Á hverju byggir ráðherrann þetta? Nákvæmlega svona hefur verið söngurinn í tengslum við alla einkavæðingu. Fullyrt er út í loftið að árangur hafi orðið mikill af einkavæðingunni fyrir neytendur. Síðan kemur í ljós að þetta eru meira og minna rangfærslur og oftar en ekki helber ósannindi. Til reynslu hverra er Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra að vísa til og hvaða lönd hefur hún í huga? Horfir hún til Nýja Sjálands, Noregs, Svíþjóðar, Bretlands svo nefnd séu nokkur dæmi um lönd sem farið hafa þann veg sem ráðherrann vísar okkur inn á. Ég hef skrifað nokkrar greinar um slæma reynslu af einkavæðingunni í þessum löndum og stutt mál mitt ítarlega með dæmum. Er ég að fara með rangt mál eða telja ráðherrar í ríkisstjórninni sig ekki þurfa að taka þátt í umræðu þar sem gerð er grein fyrir röksemdum? Telja þeir sig ekki þurfa að tíunda í hverju er fólgin sú "góða reynsla" sem þeir guma af og málflutningur þeirra er sagður byggja á? ( sjá smáfrétt hér á heimsíðunni fyrir nokkrum dögum:
http://www.ogmundur.is/news.asp?id=661&news_ID=1388&type=one

Varðandi hlutafélagaformið væri sérstaklega fróðlegt að fá rökstuðning fyrir því hvað ráðherrann hafi fyrir sér þegar hún segir að það sé talið heppilegra en það rekstarform sem við höfum búið við. Ég hef skrifað greinar þar sem einmitt er varað við hlutafélagsforminu í grunnþjónustu samfélagsins og hef ég vísað í dæmi máli mínu til stuðnings. Er forsvaranlegt annað en að ráðherrar geri slíkt hið sama, hvílir ekki ennþá meiri sönnunarbyrði á þeirra herðum þar sem þeir hafa valdið til að framkvæma? Er lýðræðisþjóðfélag okkar virkilega svo skammt á veg komið að ráðherrar geti komist upp með að tyggja áróðurinn hráann eins og þeir fá hann i hendur af hagsmunaaðilum? Þegar síðan skaðinn er skeður setja þeir upp vandlætingarsvip og segja að sér sé misboðið! Einmitt þessu urðum við vitni að í dag.

 Hvar liggja ögrunarmörkin?

Í leiðara Morgunblaðsins í dag er fjallað um fyrrnefnda kaupréttarsamninga. Þar segir m.a.: "Nú er Kaupþing Búnaðarbanki auðvitað einkafyrirtæki og hluthafarnir geta ákveðið að borga stjórnendum og öðrum starfsmönnum þau laun sem þeim sýnist."
Ekki vill Morgunblaðið sætta sig við þetta og segir að "mörgu sé að hyggja." Upphæðirnar séu "einfaldlega úr samhengi við launakjör á Íslandi..."
Þetta er skarplega athugað hjá Morgunblaðinu! En blaðið heldur áfram og segir að einnig sé á það að líta að erlendis séu menn farnir að líta hornauga "rífleg launakjör" stjórnenda stórfyrirtækja. Ég verð að játa að mér finnst samanburður við almenn laun nánast hlægilegur. Auðvitað eiga þessar greiðslur ekkert sammerkt með launum. Nær væri að tala um ránsfeng því þetta eru peningar sem einstaklingar, sem hafa komist í "lykilstöðu", raka til sín í skjóli stöðu  sinnar. Þótt Morgunblaðið eigi vissulega sína sök á því að keyra samfélagið út á "einkavæðingar- og markaðsbrautina" verður það að segjast eins og er að blaðið hefur jafnan viljað sýna varfærni og þjóðfélagslega ábyrgð. Þannig hefur blaðið beitt sér fyrir dreifðri eignaraðild í atvinnlífi og í fjármálakerfinu svo dæmi sé tekið. Forsætisráðherrann hefur vissulega einnig stundum haft uppi slíkan málatilbúnað en þegar á hefur reynt hefur það ekki verið neitt til að stóla á. Davíð Oddsson getur heldur ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að hann ber sjálfur mikla ábyrgð á því að hafa stýrt okkur inn á þá hálu spillingarbraut sem honum verður nú tíðrætt um. Og þá er það bankamálaráðherrann sem segir að nú sé svo komið að sér sé ögrað og að hún sé hissa.  Hvar nákvæmlega skyldu ögrunarmörkin liggja hjá Valgerði Sverrisdóttur bankamála- og iðnaðarráðherra?

 


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLÆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIÐ VONBRIGÐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGÐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓÐ KVEÐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta