Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

29. Ágúst 2003

Til varnar tjáningarfrelsi

Birtist í DV 28.08.2003
Stöð tvö er fyrirtæki sem lýtur stjórn eigenda sinna. Samkvæmt því er þeim í sjálfsvald sett hver er ráðinn og hver er rekinn. Og nú hafa þeir rekið Árna Snævarr, fréttamann. Látið hefur verið í veðri vaka að hann hafi ekki sýnt eigendum sínum trúnað. Hann er sagður hafa upplýst þegar þessir sömu eigendur reyndu að hafa afskipti af fréttum stöðvarinnar. Ekki heyrist mér á fréttaviðtölum að Árni Snævarr skrifi upp á að svo hafi verið. Tilefnið voru fréttir af laxveiðum - það kemur þessu máli hins vegar ekki við fremur en hver lak hverju og í hvern. Alvarlegast er að fréttamaður er rekinn úr starfi fyrir að vilja verja sjálfstæði fréttamanna.

Trúnaður gagnvart fleirum en eigendum

Því fer fjarri að ég ætli að gera lítið úr mikilvægi þess að menn sýni vinnustað sínum og þeim verkefnum sem þeim er falið hollustu og trúnað. En á fjölmiðli gilda einnig aðrar reglur. Trúnaður er ekki einskorðaður við stjórnendur eða eigendur. Því fer fjarri. Hann gildir einnig og ekki síður gagnvart hlustendum og eftir atvikum lesendum. Fréttamaðurinn á með öðrum orðum að vera trúr því hlutverki sínu að koma sannleikanum eins og hann telur hann vera, á framfæri. Þegar hann telur, með réttu eða röngu, að verið sé að koma í veg fyrir að svo verði gert, þá hefur hann að mínu mati siðferðilegan rétt til þess að láta frá sér heyra. Sumir myndu eflaust ganga lengra og segja að honum bæri skylda til þess.

Fréttamönnum eins og öðrum geta vissulega orðið á mistök. Ekki hef ég þó nokkra ástæðu til að ætla að svo hafi verið í þessu tilviki. En jafnvel þegar slíkt er uppi á teningnum á að virða viljann fyrir verkið. Eigendum og stjórnendum ber skylda til að setja málið í rétt samhengi og gera það af mikilli yfirvegun.

Auðvitað er erfitt að alhæfa um þessi efni en stjórnendur fjölmiðils verða að hafa burði til að láta þrútið geð sitt víkja fyrir viti þegar þeim finnst kusk sett á flibba sinn. Sá skaði sem fréttastofa Stöðvar tvö varð fyrir þegar upplýst var um tilraunir eigenda til að hafa afskipti af fréttum er smávægilegur miðað við hitt að vísa úr starfi manni sem hefur gerst “sekur” um það eitt að vilja standa vörð um tjáningarfrelsi. 

Bara skipulagsbreytingar!

Málflutnigur eigenda Stöðvar tvö er harla mótsagnakenndur. Stundum er talað um leka og skort á trúnaði en undir það síðasta virðist hin opinbera skýring á uppsögn vera sú að þetta sé hluti af skipulagsbreytingum. Auðvitað er fólki oft sagt upp störfum af skipulagsástæðum. Það má hins vegar vera hverju barni ljóst að skipulagsbreytingin á Stöð tvö felst ekki í öðru en að losa sig við mann sem ekki vildi láta brjóta á sér.

Ég starfaði á fréttastofu Sjónvarps um hríð með Árna Snævarr. Hann var vaskur mjög í allri framgöngu, nokkuð örgeðja á stundum í jákvæðri merkingu þess hugtaks en öllu framar einlægur og áhugasamur að rækja hlutverk sitt sem fréttamaður eins vel og hann mögulega gat. Við minnumst framgöngu hans við komu einræðisherranna frá Kína hér um árið, félögum mínum í lögreglunni stundum til mikillar armæðu, en ég held að fáir deili um það nú að Árni Snævarr var þar að sinna fréttamennsku á þann hátt sem tíðkast í öllum löndum þar sem fjölmiðlar starfa frjálst og óháð. Árni gerðist nokkuð aðgangsharður og líkaði illa að íbúðarhverfi væri lokað á meðan hinir kínversku valdamenn áttu þar leið um. Lögreglan hafði vissulega sínum skyldum að gegna samkvæmt ákvörðunum stjórnvalda. Eftir á að hyggja held ég að flestir séu sammála um að það hafi verið íslensk stjórnvöld sem þá gengu of hart fram en ekki íslenskir fréttamenn, jafnvel ekki hinir harðdrægustu úr þeirra hópi.

Styðjum fréttamenn til góðra verka

Annars ætti þetta að verða okkur tilefni til umræðu um íslenska fjölmiðla. Þar kennir vissulega margra grasa. Margir fjölmiðlamenn hafa átt góða spretti og sýnt af sér fagmannleg vinnubrögð. Því miður er það þó ekki dæmigerð lýsing á íslenskum fréttamönnum og hef ég spurt sjálfan mig hvort skýringin geti verið sú, að fréttamenn starfi oft við skilyrði þar sem þeir eiga ekki kost á því að sýna sínar bestu hliðar.

Við þær aðstæður sem við búum við nú, þar sem eignum þjóðarinnar er skákað fram og til baka á hagsmunaborði fjármálamanna sem sumir hverjir eru óþægilega tengdir hinu pólitíska valdi í landinu – þá skýtur skökku við að maður skuli rekinn fyrir að vilja efla sjálfstæða fréttamennsku. Nær væri að setja sporana í fréttamannastétt landsins og hvetja hana til að rífa ofan af graftarkýlunum í efnahags- og stjórnmálalífi þjóðarinnar. Þá fyrst held ég að heyrðist hljóð úr horni þegar farið væri að kreista kýlin.

Að vera í réttu liði

Það sem uppúr stendur í mínum huga er sú atlaga sem við erum að verða vitni að gegn sjálfstæðri fréttamennsku og opinni umræðu í þjóðfélaginu. Sigurður Guðjónsson forstjóri Stöðvar tvö hefur sagt að þeir sem ekki sýni honum trúnað, séu ekki í hans liði. Fleiri ágætir fréttamenn hafa verið látnir fjúka af Stöð tvö að undanförnu en Árni Snævarr og þær spurningar vakna hvað þar hafi legið að baki. Í vetur hafði kvisast að Egill Helgason sem stjórnaði sínu Silfri á Skjá einum þætti ekki eigendum stöðvarinnar nógu leiðitamur og velja sér oft viðmælendur þeim lítt að skapi. Nú hefur verið skýrt frá því að hann verði ekki með umræðuþátt á vetri komanda. Hann verður semsagt ekki “í liðinu” á Skjá einum.

Getur verið að framtíðin verði sú að fréttamenn fái eingöngu að starfa að því skilyrði uppfylltu, að þeir sýni eigendum viðkomandi fjölmiðils fullan trúnað eins og kallað er. Væringar eru sem kunnugt er á milli fjölmiðla og eigenda þeirra. Hollt væri að reyna að gera sér í hugarlund hvað gerðist ef svo brigði nú við að með þeim tækist öllum mikill vinskapur. Sætum við þá uppi með eina skoðun í landinu?  


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOÐSFERÐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARÐ AÐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOÐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta