Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

27. Febrúar 2012

ŢVĆLAST HAGSMUNIR ÍSLANDS FYRIR?

Jon og Ossur
:... „Ég veit hins vegar að þetta er málamiðlun á milli tveggja póla. Þetta er millileið á milli þeirra sem vilja að Alþingi samþykki að slíta viðræðunum þegar í stað - þennan rétt áskildu menn sér við atkvæðagreiðsluna vorið 2009 - og hinna sem vilja klára endanlegan samning jafnvel þótt það kæmi til með að dragast einhver ár eftir því hvernig lægi á mönnum í Reykjavík og Brussel. Um þessar tvær leiðir verður aldrei breið sátt. Ég tel að leiða eigi viðræðurnar til efnislegrar niðurstöðu eftir því sem kostur er innan þess tímaramma sem við ákveðum. Síðan kjósum við." Þetta er bútur úr viðtali sem mbl.is átti við mig í gær en úrdráttur biritst síðan í Morgunblaðinu í dag. Þar var líka að finna viðbrögð Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, sem ...

25. Febrúar 2012

DAGSETJUM VIĐRĆĐULOK!

EU - ESB !
...Lagt er til að viðræðum við ESB verði hraðað. Dagsetning ákveðin fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu í síðasta lagi undir lok þessa kjörtímabils. Samninganefndum okkar og ESB verði gerð grein fyrir því að þetta afmarki þann tímaramma
sem þær hafi til að fá efnislegar niðurstöður í þeim málaflokkum sem helst varða okkar hag. Verði niðurstaðan sú að þjóðin hafni því að ganga í Evrópusambandið á þeim efnislegu forsendum sem þá liggja fyrir er sjálfhætt að ganga frá aðildarsamningi. Ef þjóðin hins vegar er hlynnt inngöngu yrði það verk klárað....

22. Febrúar 2012

LÍFEYRISKERFIĐ ŢARF AĐ ENDURMETA

Birtist í Fréttablaðinu 21.02.12.
Fréttabladid haus...En svo að það sé sagt alveg skýrt: Nýtt kerfi á ekki að byggja á afturvirkri skerðingu fyrri kerfa. Um þau samdi fólk og verður að geta gengið að þeim rétti vísum sem það iðulega fórnaði kauphækkunum til að öðlast. Það breytir því ekki að lífeyriskerfin verða að koma til endurksoðunar inn í framtíðina og ber að fagna þeirri umræðu sem nú er hafin í þessa veru...

21. Febrúar 2012

FRAMTÍĐ LÍFEYRISKERFISINS

Birtist í Morgunblaðinu 20.02.12.
MBL  - Logo...Verkalýðssamtök hafa fundið sig í þeirri  kostulegu stöðu að krefjast annars vegar hárrar ávöxtunar og hvetja síðan til mótmæla á einkavæddum stofnunum þar sem kjörum er haldið niðri og þjónustu að sama skapi, til að fá sem mestan arð....Ef líferissjóðirnir eiga að nýtast samfélaginu vel til uppbyggingar verða ríki og sveitarfélög að annast milligöngu með fjárfestingar. ...

21. Febrúar 2012

LÍFEYRISKERFIĐ ŢARF AĐ STOKKA UPP

Birtist í DV 20.02.12.
DV -...Sjálfur hef ég sannfæringu fyrir því að okkar smáa hagkerfi rísi ekki undir því fyrirkomulagi sem við höfum smíðað og að við verðum að endurskoða sjálfan grunninn. Í því sambandi er vert að íhuga að smæð hagkerfis okkar er ekki einn áhrifavaldur. Þessa dagana erum við að verða vitni að fallvaltleika á kauphallarmörkuðum víðs vegar um heiminn....

15. Febrúar 2012

GOTCHA!

Birtist í Morgunblaðinu 14.02.12
MBL  - Logo...Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar vildi gera þá breytingu á frumvarpinu að hámarksávöxtun yrði leiðarljósið en ekki örugg og samfélagslega ábyrg fjárfesting eins og ég hafði viljað...

15. Febrúar 2012

LYGABRIGSL FRÉTTASTOFU

Birtist í Fréttablaðinu 14.02.12
Fréttabladid haus...Þennan varnarsigur tel ég einn merkasta sigurinn sem vannst í kjarabaráttunni á vettvangi opinberra starfsmanna á undanförnum tveimur áratugum. Mætti hafa mörg orð um þessi átök og aðdraganda þeirra. Þegar samningar höfðu náðst lagði fjármálaráðherra að nýju fram frumvarp sem byggðist á þeim. Að sjálfsögðu studdi ég frumvarpið enda hafði ég gegnt hlutverki aðalasamningamanns BSRB. En ekki voru öll kurl komin til grafar því meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar vildi gera þá breytingu á frumvarpinu að þar yrði sett inn ákvæði þess efnis að lífeyrissjóðirnir yrðu lögþvingaðir til að fjárfesta jafnan ...

14. Febrúar 2012

MISNOTUĐ FRÉTTASTOFA

TV RUV...Sjónvarpið segist strangt til tekið ekki hafa sagt neitt rangt. Sjónvarpið virðist ekki skilja að hið ámælisverða er að raða staðreyndum þannig saman að út komi ósönn og afskræmd mynd. Kannski er þetta skilningsleysi. Ég vona það. Hin tilhugsunin er verri þótt ég því miður hallist að henni; að verið sé að nota fréttastofuna til sverta mannorð fólks. Það er dapurlegt til þess að hugsa að einstakir menn á fréttastofu Sjónvarpsins skuli komast upp með að misnota vinnustað sinn með þessum hætti....

13. Febrúar 2012

FÁDĆMA ÓHEIĐARLEIKI FRÉTTASTOFU SJÓNVARPS

SJONVARPID GIF... Hvers vegna skyldi ég gera svona mikið úr þessu máli? Það er vegna þess að mér finnst það vera grafalvarlegt þegar dregin er upp mynd í fréttum beinlínis til að afvegaleiða fólk og gefa ranglega til kynna að einstaklingur sé ómerkur orða sinna. Fréttastofu Ríkisútvarpsins vil ég geta treyst. Ég hef nú hins vegar kynnst óheiðarleika á fréttastofu Sjónvarpsins og verð að játa að það er óþægileg tilfinning að sitja fyrir framan Sjónvarpið og hlusta á fréttir af flóknum málum, en treysta illa því sem þar er sagt...

10. Febrúar 2012

SÁTTALEIĐ TIL FARSĆLDAR

Birtist í Morgunblaðinu 09.02.12.
MBL  - Logo...Með stóraukinni sáttameðferð er vonin að draga enn frekar úr tíðni mála sem rata til dómstóla og að þeim geti sem allra flestum lokið með sátt. Í sumum tilfellum gengur sáttin ekki upp og geta þar búið ólíkir þættir að baki. Þá þarf að úrskurða með einhverjum hætti þannig að friður ríki í lífi barnsins...

9. Febrúar 2012

VELFERĐ BARNA Í FORSJÁRDEILUM

Birtist í Fréttablaðinu 08.02.12.
Fréttabladid haus...Lögð yrði lagaleg skylda á herðar foreldra sem deila um forsjá og umgengni að fara í gegnum skipulegt ferli, sem yrði sniðið að því að ná samkomulagi. Ég tel þessa leið miklu betri fyrir barn, að reynt sé að ná samkomulagi og sátt í stað þess að lögmenn beggja aðila reyni að sýna fram á vankanta hins foreldrisins frammi fyrir dómara...

9. Febrúar 2012

SÖGULAUSIR FRÉTTAMENN

RUFF-LOGO...Fréttastofa Sjónvarps taldi sig geta sýnt fram á það í kvöld að sú staðhæfing mín væri röng að ég hefði ekki stutt ákvæði lífeyrislaga sem kváðu á um að lífeyrissjóðir ættu jafnan að leita eftir hámarksávöxtun í fjárfestingum sínum. Ég hefði nefnilega stutt  lagabálk sem hafði að geyma ákvæði þessa efnis á sínum tíma. Aðeins ....En nú aftur að frétt Sjónvarpsins. Kannski á ekki að álasa fólki fyrir að kunna ekki skil á þessum sögulegu staðreyndum. Samt finnst mér sögulaust skilningsleysi fréttastofunnar vera mjög ámælisvert,  einsog það birtist okkur í kvöld. Vera kann að stundum komi slíkt skilningsleysi ekki að sök en þegar verið er að hafa æruna af mönnum er varla til of mikils mælst að biðja fréttamiðla að setja menn í verkin sem hafa lágmarksþekkingu á viðfangsefni sínu, og hafa faglegan metnað, og standa heiðarlega að verki...

6. Febrúar 2012

ÁFANGI Á LANGRI VEGFERĐ

Radstefna - kynferdisbrot IRR
...Erlent fræðafólk sem sótti ráðstefnuna tók í sama streng og tjáði mér  að samtal sem þetta væri forsenda þess að efla meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu. Fulltrúi innanríkisráðherra og forseti Lagadeildar Háskóla Íslands staðfesta þetta samfélagssamtal  með gein sinni í dag. Fyrir ári síðan tók ég undir þær raddir sem sögðu að á skorti að „kerfin töluðu saman" í málefnum sem lúta að kynferðisbrotum. Ekki voru allir alls staðar sáttir við slíkar staðhæfingar og að ráðuneytið skyldi taka frumkvæði að þessari umræðu. Þær raddir hafa þagnað og samtalið er hafið. Það er gleðilegt því með slíku samtali eyðast fordómar og misskilningur og nýr veruleiki verður til...

4. Febrúar 2012

DÓMUR UPP KVEĐINN?

Lif -lsr
...Þetta og sitthvað annað kom upp í hugann þegar Sjónvarpið kvað upp sinn myndræna dóm í fréttum kvöldsins þar sem sýnt var tap LSR með tilvísan í stjórnarformennsku mína á árinu 2007. Fréttaflutningur Sjónvarpsins þótti mér sannast sagna ekki upp á marga fiska og á það við um ýmsa aðra fjölmiðla sem sagt hafa frá umræddri skýrslu. Staðhæft er að LSR hafi tapað mest allra íslenskra lífeyrissjóða í hruninu. Þetta er rangt. Hlutfallslega var tap LSR svipað og meðaltap allra lífeyrissjóða eins og það er reiknað í skýrslunni, minna en þeirrasem mestu töpuðu, meira en þeirra sem minnst töpuðu. Ef notaðar eru...

1. Febrúar 2012

ESB, IPA, BHM OG BSRB

Birtist í Fréttablaðinu 31.01.12.
Fréttabladid haus...Heildarsamtök opinberra starfsmanna, BSRB og  BHM ályktuðu eftir umræðu á Alþingi þar sem ég var spurður um IPA styrki í óundirbúnum fyrirspurnum og lét þá ofangreind ummæli falla, bæði um IPA og einnig í lokin, í framhjáhlaupi, um meinta gleði fundaferðalanga. Fróðlegt væri að heyra álit þessara samtaka á IPA styrkjunum, og þá einnig og ekki síður, hvort samtökin telja að fyrirvarar í aðildarviðræðum varðandi almannaþjónustuna og réttindi launafólks séu viðunandi, hvort við stöndum betur eða ver að vígi til varnar almannaþjónustunni í viðræðum við Alþjóðaviðskiptastofnunina innan eða utan ESB og fleira mætti telja sem fellur sérstaklega undir svið þessara samtaka. Fram hefur komið að bæði BHM og BSRB eru harmi slegin vegna yfirlýsinga minna og sáu ástæðu til...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EĐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLĆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIĐLAR SKOĐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIĐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRĆĐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta