Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

14. Maí 2012

HANN NJÓTI SANNMĆLIS!

Jóhann Ársælsson 2... „Það á ekki að vinna gegn starfsmöguleikum fyrrverandi þingmanna að þeir hafi setið á Alþingi...", segir DV undir mynd af nýskipuðum stjórnarformanni Íbúðalánasjóðs, Jóhanni Ársælssyni.  Látið er fylgja syndaregistur stjórnmálanna. Þarna er mótsögn í verki. Af þessu tilefni langar mig að segja tvennt. Það er ekki óeðlilegt að ráðherra með lýðræðislegt umboð skipi stjórnarformann í félagslegum sjóði sem rímar við þau viðhorf sem stjórnvöld vilja í heiðri hafa. Allt öðru máli gegnir þegar ráðið er til almennra embættisstarfa í stjórnsýslunni. Í öðru lagi langar mig til að leggja í umræðupúkkið reynslu mína af störfum  Jóhanns  Ársælssonar...

11. Maí 2012

UMRĆĐA VAKIN Í ÖSKJU, SLEGIN AF Á EYJU!

askja II radstefna...Á vefritnu Eyjunni er fjallað um ávarpsorð mín í Öskju í gær og þeim gerð ágæt skil. Neðanmáls við þá umfjöllun taka síðan álitsgjafar við og gefa skoðunum mínum og máflutningi einkunn, þar á meðal nokkrir Stjórnlagaráðsfulltrúar. Einn þeirra spyr hvers vegna ég hafi ekki verið gerður að heiðursfélaga í Sjálfstæðisflokknum! Það er Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla Íslands, sem á það framlag til umræðunnar. Eiríkur Bergmann, háskólakennari á Bifröst, er álíka málefnalegur og segir: „Ögmundur vill greinilega halda völdunum í eigin hendi, og vina sinna í valdastólum." Ekki hef ég fengið botn í hvað hér gæti verið átt við. Ég er ýmsu vanur úr opinberri umræðu um margvísleg efni en einhverra hluta vegna þóttu mér þessi viðbrögð þessara tveggja Stjórnlagaráðsmanna og kennara vera ...

6. Maí 2012

LANDVINNINGAR?

Huang Nubo
...Reglan um húsbændur og hjú hefur aldrei verið geðfelld og á ekki að vera við lýði í víðernum Íslands. Meðal annars þess vegna eru mínar efasemdir um kaup Kínverja á Grímsstöðum. Gildir einu hvort um er að ræða sjálfstæðan auðkýfing eða ríkisrekinn. Hið fyrra er þó illskárra. Alla vega þegar stórveldi á í hlut með strengina á hendi - aðætla má. Íslensk stjórnvöld eiga hins vegar ekki að hafa nein afskipti af málinu, segja  íslenskir fulltrúar hinna erlendu fjárfesta. Talsmaður þeirra sagði í Sjónvarpsfréttum í kvöld að slík afskipti flokkuðust undir geðþóttavald! En til hvers ...

4. Maí 2012

HRÓSAR HAPPI - EN OF SNEMMA?

herðubreið 1
...Auðjöfurinn Huang Nubo sem er í forsvari fyrir kínversku fjárfestingasamsteypuna sem vill fá afnotarétt yfir Grímsstöðum á Fjöllum til að reisa þar 20 þúsund fermetra hótelhúsnæði  og gera flugvöll á svæðinu til að fljúga með túrista til að njóta einsemdarinnar í Herðubreiðarlindum, hrósar nú happi yfir því að innanríkisráðherra Íslands sé ekki í færum (lengur) til að eyðileggja áform sín. Erlend ríki fylgjast með þessum tilraunum Kínverja að fá fótfestu á Íslandi. Þau líta flugvallardraumana öðrum augum en íslenskir sveitarstjórnarmenn við samningaborð Núbós. Þar hafa menn stórveldahagsmuni í huga, líka þegar menn segjast vilja kíkja upp í hinintunglin, eða voru það...

1. Maí 2012

Á SĆLUVIKU Á SAUĐÁRKRÓKI

Ræða í Sauðárkrókskirkju 30. 04.12.
skagafj.1Mágkona mín var í sveit í Skagafirði upp úr miðri öldinni sem leið og á þaðan góðar minningar. Ein minning hennar er mér svo aftur eftirminnileg; orðin mín minning. Það var þegar hún fór í sveitina á vorin. Í rútunni voru skagfirsk börn og unglingar á leið heim eftir skólavist utan heimahaganna. Þá gerðist það jafnan að þegar komið var þar í Vatnsskarðinu sem Skagafjörðurinn opnast í öllum sínum mikilfengleik, að rútan brast í grát. Þau voru kominn heim....

26. Apríl 2012

GEGN GLĆPUM - MEĐ MANNRÉTTINDUM

Birtist á Smugunni 25.04.12.
SMUGAN logo...Skýrt er tekið fram að rannsóknarheimildir myndi ekki grunn til eftirlits með hvers kyns grasrótarhópum eða pólitískum samtökum. Heimildirnar eru bundnar við skýrt ákvæði í almennum hegningarlögum þar sem fjallað er um skipulögð brotasamtök en þau eru skilgreind sem félagsskapur þriggja eða fleiri manna sem hefur það að meginmarkmiði  að fremja glæpi með skipulegum hætti, í ávinnignsskyni. Undir þessa skilgreiningu er ekki hægt að fella grasrótarhópa.
Af umsögnum við þingmálin tvö má sjá að víða er vilji til að opna á víðtækar heimildir. Þannig segir Ákærendaféalg Íslands að forvirkar ...

25. Apríl 2012

DÓMSTÓLALEIĐ: TIL UPPRIFJUNAR

Birtist í Fréttablaðinu 24.04.12.
FrettablaðiðÞessa dagana heyrist sagt að annað hvort hafi menn viljað samningaleið eða dómstólaleið í Icesave; verið samningamenn eða dómstólamenn! Og nú hafi þeir sem vildu dómstólaleiðina fengið sínu framgengt!  Þannig var þetta náttúrlega ekki. Icesave skuldbindingarnar átti að greiða úr þrotabúi Landsbankans eða eftir atvikum úr Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta. En eins og við vitum varð reyndin sú, að til að skapa traust á eigin fjármálakerfi, greiddu Bretar og Hollendingar upp tap innistæðueigenda innan sinna landamæra. Síðan reyndu bresk og hollensk stjórnvöld að þröngva okkur til samninga um endurgreiðslur með ríflegum vöxtum að viðbættum tilkostnaði þeirra við samningaumleitanir! Rökrétt svar Íslendinga var eftirfarandi...

20. Apríl 2012

AF RÁĐHERRAFUNDI EVRÓPURÁĐSINS

Ráðstefna OJ april 2012
...Stórfróðlegt var að sitja tveggja daga ráðherrafund Evrópurráðsins (fimmtudag og föstudag) í Brighton á Suður-Englandi. Umræðuefnið var Mannréttindadómstóllinn, sem starfar á vegum Evrópuráðsins, hlutverk hans og framtíð. Staðarvalið ræðst af því að Bretar fara nú með formennsku í Evrópuráðinu. Það var því breski dómsmálaráherrann, Kenneth Clarke, sem flutti opnunarræðu á fundinum og sló þá strax tón sem allir höfðu búist við: Líklega væri Evrópudómstóllinn að taka sér of mikið fyrir hendur! Þetta er í samræmi við umkvartanir Breta sem í nokkrum tilvikum hafa þurft að þola að Mannréttindadómstóllinn kveði upp dóma sem eru ekki í samræmi við óskir breskra stjórnvalda. Nýjasta dæmið var reyndar í fréttum á meðan ráðstefnan stóð og snertir mann að nafni ...

16. Apríl 2012

VÖNDUM UMRĆĐUNA UM RANNSÓKNARHEIMILDIR

Birtist í helgarblaði DV 13.-15.12.
DV -...Með þessu drögum við skýra línu milli félagasamtaka annars vegar og glæpahópa hins vegar, enda deili ég þeirri skoðum með Andrej Hunko að það er ólíðandi að setja grasrótarsamtök sjálfkrafa undir sama hatt og glæpasamtök, með þeim hætti sem gert hefur verið um alla Evrópu og víðar...

15. Apríl 2012

ESB, LANDSDÓMUR, LÍFEYRISMÁL OG EIGNARRÉTTUR

VB OJ viðtal
Úr viðtali við Viðskiptablaðið 12.04.12.
„Þar fyrir utan tel ég mjög mikilvægt fyrir okkur gagnvart ESB að leiða málið til lykta sem fyrst. Samkvæmt könnunum er meirihluti landsmanna andvígur aðild og þeim virðist fjölga í stofnanaveldi samfélagsins sem eru á móti aðild, nú síðast Samtök iðnaðarins. Þá eigum við að draga lærdóm af því sem henti Norðmenn á 10. áratugnum. Eftir að hafa setið við samningaborðið í hálft annað ár og eftir að öll aðildarríki ESB höfðu samþykkt umsókn Noregs gengu þeir til kosninga haustið 1994. Ríkisstjórn Noregs hafði sagt já en þjóðin sagði nei. ESB ríkjum fannst þau hafa verið dregin á asnaeyrum...

14. Apríl 2012

EKKI VIĐ UTANRÍKISRÁĐHERRA AĐ SAKAST!

OSS - SKARP esb
... Þegar ég tek undir með þeim sjónarmiðum sem þarna koma fram er ég í reynd að lýsa því yfir að viðbrögð utanríkisráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, sem eru í samræmi við þetta séu rétt... . Hvað hinn lagatæknilega þátt varðar er brugðist við samkvæmt ráðleggingum verjenda Íslands og samdóma mati þess breiða teymis sem þeir styðjast við. Eftir stendur hitt, hvernig Íslendingar ætli að bregðast við þeirri pólitísku ákvörðun Evrópusabandsins að blanda sér í málaferlin. Í mínum huga er verkefnið augljóst...

11. Apríl 2012

VLJA ÍSLENDINGA Á HNÉN

Island ESBI
Framkvæmdastjórn ESB ryðst nú inn í málaferlin gegn Íslendingum út af Icesave. Þetta mun vera einsdæmi. Okkur þótti nóg um þegar Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, ákvað að draga okkur fyrir dóm til að reyna að gera íslenska skattgreiðendur ábyrga fyrir innlánareikningum Icesave. Nokkuð sem margir bjuggust við að Bretar eða Hollendingar kynnu að gera en varla Noregur og Liechtenstein, sem ásamt okkur eiga aðild að ESA.... En hvað vakir fyrir Evrópusambandinu? Er ESB ef til vill að reyna að slíta viðræðunum við Ísland? Eða er það kannski þannig - sem ég held að sé líklegra - að því aðeins vilji ESB okkur inn í sambandið að...

9. Apríl 2012

ŢORSTEINI ŢAKKAĐAR ...

Liljur vallarins
.... Þorsteini Jónssyni tókst það ætlunarverk sitt með miklum ágætum. Samspil manns og náttúru, vangaveltur hins trúaða og trúlausa. Allt var á sínum stað þar sem hver söng með sínu nefi en útkoman engu að síður merkilega samstæð þegar upp var gert. Frábær myndataka, listilega vel gerðar klippingar, allt skilaði þetta sér inn í vitundina sem heildstæður veruleiki. Kannski var hinn trúlausi trúaðastur af öllum - á sinn hátt. Ekki var ég frá því. Á eftir sýningunni fór fram umræða á milli höfundar myndarinnar og áhorfenda og undir lokin á henni var presturinn einnig mættur til leiks, nýlokinn við prestverk dagsins. Einhverjir þeirra sem fram komu í myndinni voru...

7. Apríl 2012

ŢAR VAKNA DÝPSTU SPURNINGARNAR

sera GK...Þessi predikun held ég að hljóti að verða þeim sem á hlýddu eftirminninleg. Hún er vekjandi ákall til samtímans en í senn er hún trúarleg og heimspekileg greining þar sem predikarinn sækir liðstyrk til andans fólks, lífs og liðins, ljóðskálda og rithöfunda. Tekist er á við grunvallarspurningar í mannlegri vitund, hvernig það sem virðist vera mótsögn kunni þrátt fyrir allt að mynda eina heild...Ég hvet alla  til að lesa predikun séra Gunnars Kristjánssonar, sem ég birti hér að neðan, og gildir þá einu hvort lesandinn er kristinnar trúar, annarrar trúar eða trúlaus, enda kjarninn í boðskap predikunarinnar að sýna fram á að hann - kjarninn - snýst „hvorki um stofnun né bókstaf." ...Margt er þarna vel sagt og á erindi til okkar samtíma, hvort sem það er um frelsið og hvað geri manninn frjálsan, virðingu manneskjunnar, og þá lærdóma sem draga þarf af reynslu mannins því „sá sem horfist ekki í augu við fortíðina neyðist til að endurtaka hana"...

6. Apríl 2012

AUĐLINDIR OG ALMANNAHAGUR

Birtist í Fréttablaðinu 05.04.12.
Fréttabladid haus...Ef fyrirtæki verða uppvís að því að hlunnfara samfélag sitt þá hlýtur samfélagið að finna heiðarlegri aðila til að fara með fjöregg sín! Í mínum huga er þetta augljóst. En hvers vegna þessi hörðu viðbrögð? Heiðarlegur útgerðarmaður til margra ára sagði við mig að ástæðan væri sú að allir þeir sem gerðust sekir um skattamisferli og brot á gjaldeyrislögum, hækkuðu fisk í hafi til að hlunnfara sjómenn og samfélag eða færu á annan hátt framhjá lögum gerðu sér grein fyrir þeirri ógn sem þeim stafaði af öllum hugmyndum sem byggðust á þeirri staðreynd að kvóti er ekki eign; að hægt er að svipta menn honum gangi þeir á rétt hins eiginlega eiganda, íslensku þjóðarinnar....

2. Apríl 2012

BENT Á HIĐ AUGLJÓSA

Silfrið
.... Skylt þessu er atriði sem einnig kom til umræðu í þættinum í gær, var að nýta beri ákvæði í lögum um öfuga sönnunarbyrði varðandi eignir einstaklinga sem uppvísir hafa orðið af glæpum í ávinningsskyni. Í stað þess að láta sitja við það eitt að dæma slíka aðila til sektar eða fangelsisvistar verði eignir þeirra gerðar upptækar nema þeir geti sýnt fram á að þeir hafi aflað þeirra með lögmætum hætti. Þetta er farið að gera í sífellt ríkari mæli víðs vegar um heim og mikilvægt að mínu mati að við gerum slíkt hið sama. Þannig gangi einstaklingur sem ...

27. Mars 2012

KRÖFTUG UMRĆĐA UM FJÁRHĆTTUSPIL

Spilahegð-spilafíkn 21.03.12
Í vikunni sem leið efndi Innanríkisráðuneytið til umræðu um happdrætti og fjárhættuspil í tilefni af nýútgefnu riti um könnun á spilahegðum Íslendinga. Í formála ritsins sagði ég í fyrirsögn: „Velferð spilafíkla verði okkar leiðarljós." Í þessum orðum er fólginn kjarni og inntak þeirrar vinnu sem nú fer fram á vegum Innanríkisráðuneytisins við endurskoðun á lögum og reglugerðum sem gilda um starfsemi sem stuðlar að spilafíkn og er þar með háskaleg þúsundum Íslendinga. Formálinn að ritinu fylgir hér...

16. Mars 2012

Í LANDI GRĆNLENDINGA

OJ - Nuuk
...Ég lagði áherslu á mikilvægi samstarfs Íslands og Grænlands. Tiltók einnig Færeyjar, Skotland og Noreg, ríkin á Norðurslóðum í okkar heimshluta. Mikilvægt væri að þessi lönd, sem öll standa utan Evrópusambandsins, að Skotlandi undanskildu, huguðu sameiginlega að hagsmunum sínum og horfðu norður á bóginn. Í ljós kom að Brussel-valdið hefur séð allt þetta fyrir og er farið að veita ríkulegum styrkjum til Grænlands, rúmlega átta milljörðum árlega, að því er okkur var tjáð. Við Grænlendinga ræddi ég líka um mikilvægi þess að halda vel utan um auðlindirnar. Það þyrftu...

10. Mars 2012

VESALINGAR ŢÁ OG NÚ

Vesalingarnir - Hugo
Áhugavert er að fylgjast með framvindu Landsdómsmáls.  Og þá ekki síst fréttaflutningi og vangaveltum í fjölmiðlum.  Spurt er hvort, ákærður, Geir H. Haarde, hefði ekki getað gripið til ráðstafana til að minnka bankana eða koma þeim úr landi. Þetta þykir nú sjálfsögð spurning. Eða öllu heldur ákæra, ákæra í sakamáli. Hróðugir henda fjölmiðlungar sumir gaman að því að á fjölum Þjóðleikshússins sé nú verið að sýna Vesalingana, Les Miserables, eftir Hugo. Það sé vel við hæfi því í næsta húsi sé Landsdómur að störfum. En er það ekki rétt munað að það hafi verið ...

8. Mars 2012

MEĐ MÓTORHJÓLIĐ AĐ ÁHUGAMÁLI

Mótorhjol
... Einn glæpahópanna, sem hefur verið hvað mest til umræðu, notar mótorhjól sem eitt ef sínum kennitáknum. En þótt þessir menn séu á mótorhjólum er ekki þar með sagt að allt mótorhjólafólk sé af sama sauðahúsi. Þvert á móti þá hefur fjöldi fólks ástríðufullan áhuga á mótorhjólum og hefur bundist samtökum við sína líka um þetta áhugamál. Þannig eru margir mótorhjólaklúbbar í landinu. Þeir sem fylla þeirra raðir vilja ekkert af hrottum og glæpamönnum vita og svíður sárt að vera ruglað saman við misindismenn. Mér var sagt af einum slíkum klúbbi sem var að...

7. Mars 2012

TRÚFRELSI

pallborð 030712 - trúfrelsi
Ávarpsorð á morgunfundi innanríkisráðuneytisins um trúfrelsi
Woody Allen sagði einhvern tíman: "Ég hef alltaf vitað að það er eitthvað þarna úti sem vakir yfir okkur. Því miður reyndist það vera ríkisstjórnin."Það eru auðvitað ekki allir sem trúa á ríkisstjórnina og það er sem betur fer leyfilegt, ekkert síður en að leyfilegt er að greina á um hve gáfulegt það yfirleitt er  að trúa eða trúa ekki á ríkisstjórnir. Við vitum heldur ekki hvort það er betra að eyða lífi sínu í að trúa á Guð og komast svo að því í lokin að hann er ekki til, eða hitt að eyða lífi sínu í að trúa á Guð og komast svo að því að Hann er til. En hvað er að trúa á Guð? Er fullyrðingin eða spurningin kannski vitlaust orðuð? Gæti verið að ...

27. Febrúar 2012

ŢVĆLAST HAGSMUNIR ÍSLANDS FYRIR?

Jon og Ossur
:... „Ég veit hins vegar að þetta er málamiðlun á milli tveggja póla. Þetta er millileið á milli þeirra sem vilja að Alþingi samþykki að slíta viðræðunum þegar í stað - þennan rétt áskildu menn sér við atkvæðagreiðsluna vorið 2009 - og hinna sem vilja klára endanlegan samning jafnvel þótt það kæmi til með að dragast einhver ár eftir því hvernig lægi á mönnum í Reykjavík og Brussel. Um þessar tvær leiðir verður aldrei breið sátt. Ég tel að leiða eigi viðræðurnar til efnislegrar niðurstöðu eftir því sem kostur er innan þess tímaramma sem við ákveðum. Síðan kjósum við." Þetta er bútur úr viðtali sem mbl.is átti við mig í gær en úrdráttur biritst síðan í Morgunblaðinu í dag. Þar var líka að finna viðbrögð Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, sem ...

25. Febrúar 2012

DAGSETJUM VIĐRĆĐULOK!

EU - ESB !
...Lagt er til að viðræðum við ESB verði hraðað. Dagsetning ákveðin fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu í síðasta lagi undir lok þessa kjörtímabils. Samninganefndum okkar og ESB verði gerð grein fyrir því að þetta afmarki þann tímaramma
sem þær hafi til að fá efnislegar niðurstöður í þeim málaflokkum sem helst varða okkar hag. Verði niðurstaðan sú að þjóðin hafni því að ganga í Evrópusambandið á þeim efnislegu forsendum sem þá liggja fyrir er sjálfhætt að ganga frá aðildarsamningi. Ef þjóðin hins vegar er hlynnt inngöngu yrði það verk klárað....

22. Febrúar 2012

LÍFEYRISKERFIĐ ŢARF AĐ ENDURMETA

Birtist í Fréttablaðinu 21.02.12.
Fréttabladid haus...En svo að það sé sagt alveg skýrt: Nýtt kerfi á ekki að byggja á afturvirkri skerðingu fyrri kerfa. Um þau samdi fólk og verður að geta gengið að þeim rétti vísum sem það iðulega fórnaði kauphækkunum til að öðlast. Það breytir því ekki að lífeyriskerfin verða að koma til endurksoðunar inn í framtíðina og ber að fagna þeirri umræðu sem nú er hafin í þessa veru...

21. Febrúar 2012

FRAMTÍĐ LÍFEYRISKERFISINS

Birtist í Morgunblaðinu 20.02.12.
MBL  - Logo...Verkalýðssamtök hafa fundið sig í þeirri  kostulegu stöðu að krefjast annars vegar hárrar ávöxtunar og hvetja síðan til mótmæla á einkavæddum stofnunum þar sem kjörum er haldið niðri og þjónustu að sama skapi, til að fá sem mestan arð....Ef líferissjóðirnir eiga að nýtast samfélaginu vel til uppbyggingar verða ríki og sveitarfélög að annast milligöngu með fjárfestingar. ...

21. Febrúar 2012

LÍFEYRISKERFIĐ ŢARF AĐ STOKKA UPP

Birtist í DV 20.02.12.
DV -...Sjálfur hef ég sannfæringu fyrir því að okkar smáa hagkerfi rísi ekki undir því fyrirkomulagi sem við höfum smíðað og að við verðum að endurskoða sjálfan grunninn. Í því sambandi er vert að íhuga að smæð hagkerfis okkar er ekki einn áhrifavaldur. Þessa dagana erum við að verða vitni að fallvaltleika á kauphallarmörkuðum víðs vegar um heiminn....

15. Febrúar 2012

GOTCHA!

Birtist í Morgunblaðinu 14.02.12
MBL  - Logo...Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar vildi gera þá breytingu á frumvarpinu að hámarksávöxtun yrði leiðarljósið en ekki örugg og samfélagslega ábyrg fjárfesting eins og ég hafði viljað...

15. Febrúar 2012

LYGABRIGSL FRÉTTASTOFU

Birtist í Fréttablaðinu 14.02.12
Fréttabladid haus...Þennan varnarsigur tel ég einn merkasta sigurinn sem vannst í kjarabaráttunni á vettvangi opinberra starfsmanna á undanförnum tveimur áratugum. Mætti hafa mörg orð um þessi átök og aðdraganda þeirra. Þegar samningar höfðu náðst lagði fjármálaráðherra að nýju fram frumvarp sem byggðist á þeim. Að sjálfsögðu studdi ég frumvarpið enda hafði ég gegnt hlutverki aðalasamningamanns BSRB. En ekki voru öll kurl komin til grafar því meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar vildi gera þá breytingu á frumvarpinu að þar yrði sett inn ákvæði þess efnis að lífeyrissjóðirnir yrðu lögþvingaðir til að fjárfesta jafnan ...

14. Febrúar 2012

MISNOTUĐ FRÉTTASTOFA

TV RUV...Sjónvarpið segist strangt til tekið ekki hafa sagt neitt rangt. Sjónvarpið virðist ekki skilja að hið ámælisverða er að raða staðreyndum þannig saman að út komi ósönn og afskræmd mynd. Kannski er þetta skilningsleysi. Ég vona það. Hin tilhugsunin er verri þótt ég því miður hallist að henni; að verið sé að nota fréttastofuna til sverta mannorð fólks. Það er dapurlegt til þess að hugsa að einstakir menn á fréttastofu Sjónvarpsins skuli komast upp með að misnota vinnustað sinn með þessum hætti....

13. Febrúar 2012

FÁDĆMA ÓHEIĐARLEIKI FRÉTTASTOFU SJÓNVARPS

SJONVARPID GIF... Hvers vegna skyldi ég gera svona mikið úr þessu máli? Það er vegna þess að mér finnst það vera grafalvarlegt þegar dregin er upp mynd í fréttum beinlínis til að afvegaleiða fólk og gefa ranglega til kynna að einstaklingur sé ómerkur orða sinna. Fréttastofu Ríkisútvarpsins vil ég geta treyst. Ég hef nú hins vegar kynnst óheiðarleika á fréttastofu Sjónvarpsins og verð að játa að það er óþægileg tilfinning að sitja fyrir framan Sjónvarpið og hlusta á fréttir af flóknum málum, en treysta illa því sem þar er sagt...

10. Febrúar 2012

SÁTTALEIĐ TIL FARSĆLDAR

Birtist í Morgunblaðinu 09.02.12.
MBL  - Logo...Með stóraukinni sáttameðferð er vonin að draga enn frekar úr tíðni mála sem rata til dómstóla og að þeim geti sem allra flestum lokið með sátt. Í sumum tilfellum gengur sáttin ekki upp og geta þar búið ólíkir þættir að baki. Þá þarf að úrskurða með einhverjum hætti þannig að friður ríki í lífi barnsins...

9. Febrúar 2012

VELFERĐ BARNA Í FORSJÁRDEILUM

Birtist í Fréttablaðinu 08.02.12.
Fréttabladid haus...Lögð yrði lagaleg skylda á herðar foreldra sem deila um forsjá og umgengni að fara í gegnum skipulegt ferli, sem yrði sniðið að því að ná samkomulagi. Ég tel þessa leið miklu betri fyrir barn, að reynt sé að ná samkomulagi og sátt í stað þess að lögmenn beggja aðila reyni að sýna fram á vankanta hins foreldrisins frammi fyrir dómara...

9. Febrúar 2012

SÖGULAUSIR FRÉTTAMENN

RUFF-LOGO...Fréttastofa Sjónvarps taldi sig geta sýnt fram á það í kvöld að sú staðhæfing mín væri röng að ég hefði ekki stutt ákvæði lífeyrislaga sem kváðu á um að lífeyrissjóðir ættu jafnan að leita eftir hámarksávöxtun í fjárfestingum sínum. Ég hefði nefnilega stutt  lagabálk sem hafði að geyma ákvæði þessa efnis á sínum tíma. Aðeins ....En nú aftur að frétt Sjónvarpsins. Kannski á ekki að álasa fólki fyrir að kunna ekki skil á þessum sögulegu staðreyndum. Samt finnst mér sögulaust skilningsleysi fréttastofunnar vera mjög ámælisvert,  einsog það birtist okkur í kvöld. Vera kann að stundum komi slíkt skilningsleysi ekki að sök en þegar verið er að hafa æruna af mönnum er varla til of mikils mælst að biðja fréttamiðla að setja menn í verkin sem hafa lágmarksþekkingu á viðfangsefni sínu, og hafa faglegan metnað, og standa heiðarlega að verki...

6. Febrúar 2012

ÁFANGI Á LANGRI VEGFERĐ

Radstefna - kynferdisbrot IRR
...Erlent fræðafólk sem sótti ráðstefnuna tók í sama streng og tjáði mér  að samtal sem þetta væri forsenda þess að efla meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu. Fulltrúi innanríkisráðherra og forseti Lagadeildar Háskóla Íslands staðfesta þetta samfélagssamtal  með gein sinni í dag. Fyrir ári síðan tók ég undir þær raddir sem sögðu að á skorti að „kerfin töluðu saman" í málefnum sem lúta að kynferðisbrotum. Ekki voru allir alls staðar sáttir við slíkar staðhæfingar og að ráðuneytið skyldi taka frumkvæði að þessari umræðu. Þær raddir hafa þagnað og samtalið er hafið. Það er gleðilegt því með slíku samtali eyðast fordómar og misskilningur og nýr veruleiki verður til...

4. Febrúar 2012

DÓMUR UPP KVEĐINN?

Lif -lsr
...Þetta og sitthvað annað kom upp í hugann þegar Sjónvarpið kvað upp sinn myndræna dóm í fréttum kvöldsins þar sem sýnt var tap LSR með tilvísan í stjórnarformennsku mína á árinu 2007. Fréttaflutningur Sjónvarpsins þótti mér sannast sagna ekki upp á marga fiska og á það við um ýmsa aðra fjölmiðla sem sagt hafa frá umræddri skýrslu. Staðhæft er að LSR hafi tapað mest allra íslenskra lífeyrissjóða í hruninu. Þetta er rangt. Hlutfallslega var tap LSR svipað og meðaltap allra lífeyrissjóða eins og það er reiknað í skýrslunni, minna en þeirrasem mestu töpuðu, meira en þeirra sem minnst töpuðu. Ef notaðar eru...

1. Febrúar 2012

ESB, IPA, BHM OG BSRB

Birtist í Fréttablaðinu 31.01.12.
Fréttabladid haus...Heildarsamtök opinberra starfsmanna, BSRB og  BHM ályktuðu eftir umræðu á Alþingi þar sem ég var spurður um IPA styrki í óundirbúnum fyrirspurnum og lét þá ofangreind ummæli falla, bæði um IPA og einnig í lokin, í framhjáhlaupi, um meinta gleði fundaferðalanga. Fróðlegt væri að heyra álit þessara samtaka á IPA styrkjunum, og þá einnig og ekki síður, hvort samtökin telja að fyrirvarar í aðildarviðræðum varðandi almannaþjónustuna og réttindi launafólks séu viðunandi, hvort við stöndum betur eða ver að vígi til varnar almannaþjónustunni í viðræðum við Alþjóðaviðskiptastofnunina innan eða utan ESB og fleira mætti telja sem fellur sérstaklega undir svið þessara samtaka. Fram hefur komið að bæði BHM og BSRB eru harmi slegin vegna yfirlýsinga minna og sáu ástæðu til...

20. Janúar 2012

UMRĆĐA, EKKI AFNETUIN

Birtist í Fréttablaðinu 19.01.12.
Fréttabladid haus ...Vanþekkingu er eytt með fræðslu og umræðu en henni er viðhaldið með afneitun og þögn. Okkur öllum ber skylda til að hoppa ekki á vagn þess síðarnefnda, þótt það kunni að virðast einfaldara og þægilegra til skamms tíma.
Á ráðstefnu Evrópuráðsins var kallað eftir samtali við réttarkerfi, heilbrigðiskerfi og félagskerfi um kynferðislegt ofbeldi. Markmiðið er að ekkert barn þurfi að upplifa það sem ungmennin lýstu...

19. Janúar 2012

MISTÖK Á AĐ LEIĐRÉTTA

Birtist í Fréttablaðinu 18.0212.
Fréttabladid haus...Það er athyglisvert að ýmsir sem komu að stjórnmálum í aðdraganda hrunsins hvísla því nú í eyru okkar að fráleitt sé að stöðva þessa málsókn: Það þurfi nefnilega að gera málin upp! Með þessum réttarhöldum er í mínum huga ekki verið að gera eitt eða neitt upp. Það kann hins vegar að vera að með þessum málatilbúnaði gerist hið gagnstæða, við látum afvegaleiðast í uppgjöri við fjármálakerfið og pólitísk afskipti af því og einkavæðingu á verðmætum samfélagseignum, þar sem einstaklingar högnuðust persónulega. Ekkert af þessu á við um Geir H. Haarde. Hann framfylgdi hins vegar pólitískri kreddu sem bjó í haginn fyrir hina raunverulegu svindlara...

18. Janúar 2012

ÁKĆRAN GEGN GEIR

Alþingi-landsdomur
...Margir líta á réttarhöldin yfir Geir sem uppgjör við hrunpólitík frjálshyggjunnar. Því fer fjarri. Málshöfðunin gengur einvörðungu út á meint brot - að uppistöðu til andvaraleysi - í átta mánuði árið 2008. Eftirfarandi eru ákæruefnin að viðurlagðri fjársekt og tveggja ára fangelsi. ...Ég minnist þess að koma á kosningafundi vorið 2007 þar sem þetta var aðalbrandarinn, mikið hlegið. En nú á að dæma Geir Haarde einan fyrir þennan aulahlátur! Hvort skyldi nú skipta meira máli að kveða upp fangelsisdóm yfir Geir H. Haarde vegna þessa vanmats á stöðu bankanna sem hann átti sammerkt með flestum íslenskum stjórnmálamönnum, fjölmiðlafólki og álitsgjöfum eða...

17. Janúar 2012

VIĐ GERĐUM RANGT

Birtist í Morgunblaðinu 17.01.12.
MBL- HAUSINN...Í mínum huga er pólitískt uppgjör við hrunið margfalt stærra og mikilvægara en svo að það fari fram með málsókn á hendur örfáum einstaklingum fyrir mjög þröngt afmarkaðar yfirsjónir þeirra í aðdragandanum. Pólitísk ábyrgð á hruninu er margþætt og teygir sig alllangt aftur í tímann. Fyrir þessu var gerð ítarleg grein í Rannsóknarskýrslum Alþingis. Þær skýrslur voru vel unnar þótt langt sé frá því að þær hafi verið óaðfinnanlegar og má þar nefna að varðandi hina pólitísku ábyrgð tel ég marga hafa sloppið furðu vel frá borði. Afglöp margra stjórnmálamanna voru ævintýraleg og teflt á tæpasta vað í ýmsum efnum. Eftir á verður myndin ljós, sem mörgum var ...

6. Janúar 2012

TÍMASKEKKJA Í SPEGLI

Timans spegill...Nú er það í sjálfu sér ágætt að vera sagður vilja hafa allt sitt á hreinu, mannorð og samvisku tandurhreina. Málið vandast þegar látið er í veðri vaka að hrænlætisástin sé nánast manísk, sé í reynd óbilgirni og ósveigjanleiki, nokkuð sem í stjórnmálum geri fólk óstjórntækt. Þetta er gamalkunnur tónn sem þau okkar þekkja, sem verið hafa upp á kant við tíðarandann. Það sem Sigrún Davíðsdóttir, fréttaskýrandi, áttar sig hins vegar ekki á, er að hún er með rangt fólk í sigti þegar spurt er um tregðu til málamiðlana í þá átt sem almenn viðhorf í þjóðfélaginu liggja...

4. Janúar 2012

SPURNING JÓNS JÓNS JÓNSSONAR

FOSSINN
...Spurningin hefur hins vegar margar víddir og svarið er ekki alveg einfalt. Þannig hljóta stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar að spyrja sig hvort undir öllum kringumstæðum sé rétt að hanga á völdunum. Í mínum huga er svarið engan veginn einhlítt, það er háð aðstæðum í tíma og rúmi. Sjálfur hef ég alla tíð haft sterka fyrirvara gagnvart hrárri valdapólitík og tel því mikilvægt að halda stöðugt að okkur gagnrýnum spurningum um völd og áhrif. Sem betur fer hefur stjórnmálaflokkum oft tekist bærilega að láta orð sín og athafnir ríma og vera trúir hugsjónum sínum. Mörg dæmi eru líka um pólitískar hrakfarir þegar leiðarljósið hefur verið það eitt að halda um valdatauma...

3. Janúar 2012

EVA JOLY OG BARÁTTAN GEGN SPILLINGU

EVA JOLY OG JON TORIS
Margt gott var sagt í þætti sem Sjónvarpið sýndi  um störf Evu Joly og félaga í baráttu gegn spillingu. Jón Þórisson, samstarfsmaður Evu hér á landi, sagði frá íslenska Hruninu og skýrði spillinguna sem því tengdist á markvissan og ljósan hátt. Að sama skapi voru lýsandi yfirlýsingar margra annarra sem fram komu í þættinum. Nígeríumaður varpaði ljósi spillingarsögu Nígeríu og skýrði hvernig gráðugt alþjóðaauðvald mergsygi auðlindir landsins. Það sem til almennings rynni, færi í neyslu. Þess væri - á sögulegan mælikvarða -skammt að bíða að auðlindirnar væru þurrausnar án nokkurrar fyrirhyggju um uppbyggingu til frambúðar. Hugarfarið þarf að breytast, sagði...

2. Janúar 2012

NÝTT ÁR HAFIĐ

Hvað boðar blessuð nýárssól
...Því á áramótum eru iðulega teknar mikilvægar ákvarðanir. Um þessi áramót bar hæst á góma í mínu nærumhverfi ráðherraskipti í ríkisstjórn. Jón Bjarnason vék af vettvangi  - þessum vettvangi. Það var niðurstaða sem mér var ekki að skapi. Jón Bjarnason hefur hins vegar ekki horfið af hinum pólitíska vettvangi. Mér segir hugur að ekki eigi hann eftir að verða þögull á Alþingi og innan VG, en hann hefur mælst til þess við samherja sína á þeim bæ... Til að innsigla áramótin og minna mig í senn á fortíð og framtíð, afhenti Elín Björg Jónsdóttir, formaður, BSRB, mér áritaða dagbók, sem er sömu gerðar og ...


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EĐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLĆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIĐLAR SKOĐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIĐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRĆĐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta