Annađ
29. Desember 2011
OFAN Í KASSANA!
18. Desember 2011
ELDMÓĐUR OG VISKA

...Og þá að þætti Hönnu G. Sigurðardóttur. Hann fjallaði um ræðumennsku fyrr og nú. Víða var leitað fanga, rætt við uppfræðara í ræðumennsku, vitnað í gamlar ræður og spilaðir bútar. Þar á meðal ræður tveggja manna sem mér þóttu afbragðsgóðar og í reynd vera ágæt andleg vítamínsprauta í skammdeginu. Önnur var áramótaávarp Andrésar Björnssonar, fyrrum útvarpsstjóra, á gamlárskvöld árið 1970. Hin var barátturæða Magnúsar Björns Ólafssonar, blaðamanns á Austurvelli, 24 janúar 2009, í hámarki Búsáhaldabyltingarinnar. Báðar ræðurnar voru afbragðsgóðar, sem áður segir, hvor með sínu sniði...
13. Desember 2011
HVATNING TIL DV

9. Desember 2011
„ÓŢARFLEGA MEIĐANDI"?

Í gærkvöldi var mér borin stefna á heimili mitt frá Hells Angels og einum forsprakka þeirra hér á landi þar sem samtökin annars vegar og einstaklingurinn hins vegar krefja mig um samtals fjórar milljónir króna, tvær milljónir króna - hvor um sig - í skaðabætur fyrir ummæli sem þeir telja vera „ósönn og óþarflega meiðandi." Eftirfarandi er úr stefnunni...
1. Desember 2011
AĐ LÁTA MANN NJÓTA SANNMĆLIS

...Það breytir því ekki að enginn maður hefur beitt sér af meira afli og meiri innri sannfæringu en einmitt hann gegn styrkveitingum frá ESB. Það á við um málflutning hans í þingflokki VG og í öðrum stofnunum flokksins, á fundum ríkisstjórnar og hvað varðar stofnanir sem undir hans ráðuneyti heyra. Á milli orða og athafna hefur verið fullt samræmi - meira að segja svo mjög að mörgum hefur þótt nóg um! Í frásögn af atkvæðagreiðslu um fjárlög þótti hins vegar greinilega vera færi að veikja Jón Bjarnason, grafa undan trúverðugleika hans. Ég skrifa þennan litla pistil til að segja eftirfarandi...
1. Desember 2011
HEIĐURSMERKI HRÓSHÓPSINS
Sannast sagna hafði ég gaman af - og þótti heiður af því - að taka á móti heiðursmerki Hróshópsins sem kemur fram í nafni Búsáhaldabyltingarinnar og hrósar fyrir það sem hópurinn telur vel gert. Í stífum norðannæðingi fyrir framan Stjórnarráðið í gær, rétt fyrir ríkisstjórnarfund, var nælt í mig merki og mér færður blómvöndur. Tilefnið var að sýna samstöðu gegn því að Ísland verði selt „fyrir stundargróða". Stundum hafa mér hlotanst viðurkeningar en heiðursmerki Hróshóps Búsáhaldarbyltingarinnar þótti mér einna vænst um. Ávarp fylgir hér með en það var lesið upp í hífandi rokinu við Stjórnarrráðið...
28. Nóvember 2011
AĐ KOMA AUĐLINDUM ŢJÓĐARINNAR Í SKJÓL

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, alþingiskona, hefur tekið lofsvert frumkvæði með framlagningu þingmáls sem ryður brautina fyrir endurskoðun laga um eignarhald á landi. Hún vill að skorður verði reistar við stórfelldum uppkaupum á landi og vill í því sambandi horfa til sérstöðu vegna umhverfisþátta: „Víðernin eiga að vera í almannaeign," segir hún. Guðfríður Lilja vill jafnframt horfa til þess að fjársterkir einstaklingar, hverrrar þjóðar sem þeir eru, sölsi ekki undir sig margar jarðeignir og stór landsvæði. Hún segir málið ekki snúast um uppruna manna en hins vegar sé þýðingarmikið að halda víðernum í almannaeign og yfirráðum yfir landi og auðlindum innan samfélagsins. Það sé kjarni málsins. Þetta sé í samræmi við viðleitni margra þjóða og ekki síður ástæða til fyrir okkur sem búum við veika auðlindalöggjöf að ...
24. Nóvember 2011
SAMRÁĐSVETTVANGUR TRÚFÉLAGA FAGNAR FIMM ÁRA AFMĆLI

Fimm ár eru liðin frá því settur var á laggirnar samráðsvettvangur trúfélaga í Íslandi en aðild að honum eiga 13 trúfélög á Íslandi, allta frá Ásatrúarfélaginu til þjóðkirkjunnar. Haldið var upp á afmælið í Ráðhúsi Reykjavíkur með dagskrá þar flutt voru erindi og ávörp, sungin trúarljóð og kveðnar rímur.
Eftirfarandi er ávarp mitt á afmælisfagnaðinum...
24. Nóvember 2011
EVRÓPURÁĐIĐ OG RÉTTINDI BARNA

...Þessi sáttmáli á sér nokkurra ára sögu. Upphafið var reyndar á ráðstefnu á sama stað og nú, í Mónakó, en þar var stefnan mótuð árið 2006. Árið eftir var gengið frá sáttmála utan um þessi stefnumið í Lanzarote á Spáni og er hann því iðulega nefndur Lanzarote-sáttmálinn. Fyrir Íslands hönd var skrifað undir 4. febrúar 2008 og hefur síðan verið unnið að því að fullgilda sáttmálann með viðeigandi lagabreytingum. Ég hef nú kynnt í ríkisstjórn frumvarp sem sem styrkir réttarstöðu barna gagnvart ofbeldi í samræmi við sáttmálann. Er þar meðal annars kveðið á um ...
24. Nóvember 2011
TĆKNIN OG LÝĐRĆĐIĐ

Á fimmtudag og föstudag í síðustu viku sótti ég mjög áhugaverða ráðstefnu í Poznan í Póllandi um rafræna stjórnsýslu. Ráðstefnan var á vegum Evrópusambandsins með aðkomu EFTA-ríkjanna. Auk mín tóku þátt í ráðstefnnni fyrir Íslands hönd sérfræðingar frá Forsætisráðuneyti, Fjármálaráðuneyti og Efnahags- og viðskiptaráðuneyti og frá Þjóðskrá Íslands og Tryggingastofnun. Í þessum hópi var Guðbjörg Sigurðardóttir sem haldið hefur utan um málaflokkinn af hálfu Stjórnnarráðsins en ásæðan fyrir minni setu á ráðstefnunni er sú að málefni upplýsingasamfélagsins eru nú að færast undir Innanríkisráðuneytið. Á ráðstefnunni kom fram að...
19. Nóvember 2011
HVAĐ EF?
Ég er víst ekki unglingur lengur og kannski orðið heldur langt um liðið síðan þá. En þegar ég ræddi um það atriði sýningarinnar sem mest áhrif hafði á mig þá kom í ljós að einmitt sama atriði virðist ná augum og eyrum fjölmargra unglinga, nefnilega myndræn umfjöllun um áhrif eiturlyfjaneyslu á heilann - um hvernig vímuefni draga úr getu okkar til að framkalla sjálf þau efni sem gera okkur hamingjusöm...
16. Nóvember 2011
GEGN EINELTI: HÉR MÁ SKRIFA UNDIR...

Einelti er þjóðfélagsmein. Mjög alvarlegt mein. Hvar þarf átakið að fara fram svo það megi verða upprætt? Svarið er þetta: Alls staðar. Á heimilinu, í skólanum, á vinnustaðnum, í æskulýðssamtökunum, íþróttafélaginu og verkalýðsfélaginu. Kenna þarf börnum frá æsku að líta á önnur börn sem jafningja og innræta þeim það besta úr siðfræðiboðskap allra alda: Komdu eins fram við önnur börn og þú vilt að þau geri við þig; taktu þá sem þú veist að eiga undir högg að sækja í félagslegu tilliti inn í vinahópinn þinn!
Og munum að ekki er það alltaf svo að hópurinn leggist á hinn veika, eins og hýenur á veikburða dýr. Stundum tekur grimm múghyggjan stefnuna á hinn sterka, ofsækir hann og brýtur hann niður...
11. Nóvember 2011
EKKI SVO GÓĐIR HÁLSAR

...Íbúar á sunnanverðum Vestjörðum andmæltu tillögum mínum um að sett yrði í forgang að stórbæta fjallavegina um Hjallaháls og Ódrjúgsháls í stað þess að leggja veg um Teigsskóg eða leita annarra lausna á láglendi. Fjallaleiðin þótti mér - og þykir enn fýsilegasti kostur, ef menn á annað borð setja í forgang að hraða úrbótum eins mikið og verða má og ná árangri með sem minnstum kostnaði! Benti ég á að Vegagerðinni hefði tekist bærilega í glímunni við fjallvegi víða á landinu og minnti á Bólstaðahlíðarbrekku, Bröttubrekku og fleiri vegi sem liggja hærra en fyrrnefndir hálsar á Vestfjörðum. En hvað um það, þetta vilja íbúarnir ekki. Alls ekki! Það fékk ég að vita hjá sveitarstjórnarmönnum á samráðsfundum síðsumars og síðan á fjölmennum íbúafundum í Bjarkarlundi og á Patreksfirði. Á sama tíma fékk ég að vita að umhverfisverndarfólk myndi ekki sætta sig við veg um Teigsskóg í Þorskafirði sem margir hafa viljað fara....
8. Nóvember 2011
FRUMKVĆĐI HELGU BJARKAR
...Auk Helgu Bjarkar koma upp í hugann til dæmis Ingibjörg Helga Baldursdóttir, grunnskólakennnari og móðir drengs sem fyrirfór sér eftir einelti og Stefán Karl Stefánsson, leikari, sem steig fram og greindi frá reynslu sinni af einelti. Ég nefni einnig Þorlák H. Helgason, framkvæmdastjóra Olwesusarverkefnisins á Íslandi og einn brautryðjenda þeirrar nálgunar. Ég nefni Barnaheill sem hafa stutt ungmenni til að stíga fram og verða öðrum gott fordæmi. Ég nefni fjölmiðla sem hafa verið ötulir að vekja athygli okkar á málfninu. Að öðrum ólöstuðum hefur mér virst DV vera sérstaklega vakandi en þar hafa um allnokkurt skeið birst greinar og viðtöl um þetta þjóðfélagsmein. Einna mest megum við þakka því baráttufólki sem ...
4. Nóvember 2011
SIĐMENNT: ALDREI GENGIĐ Á RÉTT ANNARRA
Óskir Siðmenntar hafa ekki með neinu móti gengið á rétt annarra til að velja sér trú, trúarbrögð eða trúleysi. Þvert á móti hafa ábendingarnar verið á þá lund að jafna stöðu félaga og þannig einstaklinga sem kjósa sér mismunandi vettvang fyrir mannrækt, tilvistarspurningar og andlega þekkingarleit. Ég nefni þetta hér því að nú er til umsagnar á vefsvæði Innanríkisráðuneytisins frumvarp sem jafnar stöðu lífsskoðunarfélaga og trúfélaga. Í framhaldinu verður frumvarpið lagt fram á Alþingi og er það mín von að...
2. Nóvember 2011
KVEĐJA TIL LANDHELGISGĆSLUNNAR

Í nýlegri skoðanakönnun um viðhorf til opinberra stofnana kom fram að Landhelgisgæslan nýtur meiri virðingar og trausts en allar aðrar stofnanir. Hvers vegna skyldi það vera? Eitt svar er augljóst: Við höfum séð til starfa Landhelgisgæslunnar og vitum hve vel hún stendur sig. Ég held þó að væntumþykjan eigi sér dýpri rætur. Landhelgisgæslan snertir nefnilega taug sem tengir okkur öll saman. Við móttöku varðskipsins Þórs í síðustu viku sagði ég að Landhelgisgæslan væri samgróin íslenskri þjóðarsál. Ef ég reyni að skýra þetta nánar vandast málið. En einhverra hluta vegna vita allir við hvað er átt! Það er mergurinn málsins.Upp í hugann kemur...
29. Október 2011
GEYSIR OG GÓĐ BRETLANDSTENGSL

Á fundum mínum með breskum þingmönnum bæði úr Íslandsnefndinni og utan hennar í vikunni sem leið, ræddum við m.a. Icesave deilur. Ekki varð ég var við annað en mikinn velvilja í garð Íslendinga og er það reyndar mín tilfinning að það sé smám saman að renna upp fyrir breskum stjórnmálamönnum hve mikla ósanngirni þeir sýndu Íslendingum í aðdraganda hrunsins og áttu með beitingu hryðjuverkalaganna sinn þátt í að atburðarásin varð sú sem við þekkjum. Þetta sögðu bresku þingmennirnir í sumar og Fabian Hamilton þingmaður frá Leeds og mikill Íslandsvinur lá ekki á þessum skoðunum sínum við íslenska fjölmiðla í sumar. Allt þetta var ítrekað ...
28. Október 2011
SAME OLD TORIES?

En sem dæmi um mikilvægi þess að fara að ábendingu Brendans Martins og gefa gaum að mögulegri stefnubreytingu stjórnmálaflokka þótti mér mjög merkilegt að heyra í samtölum við þingmenn í Westminster hve mikil vinna fer nú fram innan Verkamannaflokksins breska við að endurmeta efnahagsstefnu flokksins frá grunni. Um þetta fékk ég mjög gagnlega yfirferð í heimsókn minni í breska þingið í síðustu viku þar sem ég átti þess kost að ræða við fjölda þingmanna úr stjórnarliði og stjórnarandstöðu...
26. Október 2011
SÍUNGUR DENIS HEALEY

Það er nokkur aldursmunur á þeim Einari Árnasyni, ráðgjafa í innanríkisráðuneytinu, og Denis Healey, lávarði, fyrrum fjármálaráðherra Bretlands, og eins helsta stjórnmálaskörungs síðari hluta tuttugustu aldarinnar þar í landi. Annar fæddur 1917, og því níutíu og fjögurra ára, hinn fæddur 1956, og því 55 ára. Tæplega fjórir áratugir skilja þá að. En vináttu þeirra naut ég þegar Einar kynnti hinn virðulega öldung fyrir mér á heimili hans í Sussex í vikunni sem leið. Já, virðulegur vissulega, en ekki í þeim skilningi að hann taki sjálfan sig hátíðlega, því léttur er hann í lund og gerir óspart grín að sjálfum sér...
26. Október 2011
SMÁMÁL?

Vefmiðlinum Eyjunni er, eftir því sem ég best veit, ritstýrt af Karli Th. Birgissyni. Hann svarar í gær gagnrýni minni og ásökunum um alvarlegar rangtúlkanir og blekkingar á þann hátt að ég hafi „misst jafnvægið" út af „smámáli". Þetta kom mér eilítið á óvart því ég hafði talið að jafnvel Karl Th. Birgisson myndi ekki grípa til röksemda af þessu tagi - til þeirra þekkti hann of vel....Við sem viljum geta tekið fjölmiðla alvarlega lítum ekki á það sem „smámál" þegar sannleikurinn er afbakaður og fólk haft fyrir rangri sök. Einmitt það gerði Eyjan ...
25. Október 2011
MATREIĐSLA AĐ HĆTTI EYJUNNAR
Vefur Innanríkisráðuneytisins birti svör við spurningum Ríkisútvarpsins vegna ferðar minnar á ráðstefnu í Mexíkó. Fréttamiðillinn eyjan.is tók málið upp og matreiddi með sínum hætti. Allt skyldi með í uppskriftina. Í matreiðslunni urðu utanferðir mínar á rúmu ári að utanferðum mínum á tæpu ári. Ferða- og upphihladskostnaður tveggja manna varð í fyrirsögn að ferða- og uppihaldskostnaði eins manns - eins og ég hefði verið einn á ferð. Ferð sem tók rúma viku varð að fimm dögum þegar reikna átti kostnað fyrir hvern dag fyrir mig einan! Þannig varð fimm hundruð þúsund króna ferð að milljón króna-ferð!! Hvernig væri að...
25. Október 2011
RÍKISÚTVARPIĐ KOMIĐ Á RANNSÓKNARBUXUR?

...Ég geri ekki heldur athugasemd við að Ríkisútvarpið skuli hefja rannsóknarfréttamennsku sína á mér. Einhvers staðar þarf að byrja. Fróðlegt verður að fylgjast með framhaldinu. Hvernig væri að gefa nú skýrslu um ferðir starfsmanna Ríikisútvarpsins? Þannig mætti sýna einlægan vilja í verki. Hvernig væri að Óðinn fréttastjóri gerði grein fyrir sjálfum sér og sinna starfsmanna á undanförnu ári? Páll útvarpsstjóri mætti einnig gefa okkur skýrslu um sig og sína skrifstofu. Þetta er sagt í fullri alvöru. Síðan væri verðugt rannsóknarefni að kanna ferðkostnað vegna...
18. Október 2011
ŢINGMÁL Í BEINNI...

Eflaust finnast meirra spennandi útsendingar á veraldarvefnum en af fundi Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis sem fram fór í dag. Engu að síður voru umræðurnar áhugaverðar á köflum en Innaríkisráðuneytið sat fyrir svörum og kynnti þingmál komandi vetrar sem undir þessa þingnefnd heyra. Má nefna að umræður spunnust um frumvarp til barnalaga, framtíð dómstóla, skipan lögreglumála og áfengisauglýsingar. Kínverjinn Nubo kom við sögu, jafnræði lífsskoðunarfélaga og trúfélaga, spilakassar og sitthvað annað sem snertir mannréttindi, dómsmál og trúmál. Með beinum útsendingum sem þessum er Alþingi að...
7. Október 2011
SÁTT ŢARF AĐ RÍKJA UM RÉTTARKERFIĐ

Eitt umdeildasta sakamál í íslenskri réttarsögu er án efa svokallað Geirfinns- og Guðmundarmál. Í vikunni bárust mér 1.190 udirskriftir með hvatningu um að málið yrði tekið upp að nýju. Um leið var rekinn endahnútur á áralanga báráttu fyrir því að þessu umdeilda máli yrði hreyft því í dag var skýrt frá því að sérstakur starfshópur myndi nú hefja könnun á vinnubrögðum við rannsókn á málinu. Þetta er mikilvægt skref og markar ákveðin tímamót því um réttarkerfið þarf að rikja sátt...
30. September 2011
SAMGÖNGUŢING Í MEXÍKÓ

...Ánægjulegt var að sjá hve vel við komum út í alþjóðlegu samhengi hvað þetta varðar og hve mikilvægt það er að við birtum þessa jákvæðu mynd af íslenskri verk- og tækniþekkingu á alþjóðavettvangi. Margt hef ég lært á því að sitja þessa ráðstefnu og hlýða á erindi og umræður. Þannig var áhugavert seminar um fjármögnun og eftirlit sem Hreinn Harladsson stýrði. Fulltrúi Alþjóðabankans flutti þar erindi ásamt fleirum og kom meðal annars fram i erindi hans að á árabilinu 2000 til 2010 hefði 56 milljörðum Bandaríkjadala verið varið í lánveitingar til vegaframkvæmda á vegum Alþjóðabankans. Síðan rakti þessi fulltrúi Alþjóðabankans hver hefðu orðið afdrif rúmlega fimm hundruð ...
21. September 2011
SAMRĆĐA BETRI EN SAMRĆĐULEYSI

Gott er til þess að vita að blóðið rennur enn í Íslendingum eins og fram kom á fundum mínum í Bjarkarlundi og á Patreksfirði í Vesturbyggð í gær. Ekkert hef ég við það að athuga að menn gangi af fundi til að leggja áherslu á að málin þurfi ekki frekari umræðu og að þeirra afstaða hafi ekki haggast og muni ekki haggast! Ef þetta er afstaða manna þá er ekkert við það að athuga að hún komi fram með afgerandi hætti.. Í þessari umræðu þarf að hafa í huga að heimurinn stendur ekki óhaggaður. Hafa þarf hliðsjón af breytingum sem eiga sér stað og eru að eiga sér stað. Ég hef sett málin upp með þessum hætti:...
18. September 2011
TREGĐULÖGMÁLIN OG LÝĐRĆĐIĐ

...Enginn á kröfu á samstöðu samráðherra sinna við eigin baráttumál ef aðrir ráðherrar hafa sannfæringu fyrir öðru. Við atkvæðagreiðslu á Alþingi eru þeir fyrst og fremst þingmenn. Þannig á þetta að vera, að hver og einn láti eigin sannfæringu sína ráða. ... Það hefur lengi verið mín sannfæring að í stjórnarmeirihluta eigi það viðhorf að vera ríkjandi, og þykja eðlilegt, að við atkvæðagreiðslu kunni einstakir þinngmenn og ráðherrar að hafa skiptar skoðanir. Ríkisstjórn á ekki að standa og falla með samræmingu í öllum málum. Ekki svo að skilja að almennt sé litið á afdrif lýðræðisins í nýrri sveitarstjórnarlöggjöf sem úrslitaatriði. Sjálfum þykir mér þetta þó vera stórt mál. Og sannast sagna kom það mér nokkuð á óvart hve eindregið Alþingi var á því að setja inn takmarkanir ...
13. September 2011
VELKOMIN Á LÝĐRĆĐISRÁĐSTEFNU

Miðvikudaginn 14. september, býður Innanríkisráðuneytið til ráðstefnu um lýðræði í samvinnu við Reykjavíkurborg og samtökin Initiative and Referendum Institute Europe. Ráðstefnan verður haldin í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og hefst klukkan 10:15. Ráðstefnan er öllum opin... Borgarstjórinn í Reykjavík og forseti Íslands flytja ávarp í byrjun eftir að kvennakór Jóhönnu Þórhallsdóttur syngur nokkur lög tengd málefninu. Mínar hugleiðingar á þessari ráðstefnu tengjast gamalkunnu stefi sem John Lennon söng um á sínum tíma, Power to the People, Valdið til fólksins. Mjög áhugavert verður að heyra Svisslendinginn Bruno Kaufmann...
2. September 2011
VÖRSLUSVIPTINGAR OG RÉTTARRÍKIĐ

...Hitt er þó öllu alvarlegra og það eru aðdróttanir formanns Lögmannafélags Íslands um að hækkanir á dómsmálagjöldum réttlæti að fara framhjá lögum í innheimtuaðgerðum. Þessi lógík er handrukkurum og ofbeldismönnum eflaust að skapi, en ekki okkur hinum sem viljum heldur að ágreiningsmál séu leyst með aðstoð réttarvörslukerfsins. Með rökfræði Brynjars mætti hins vegar afnema réttarríkið í heild sinni, enda fylgir því umtalsverður kostnaður sem við berum öll saman, óháð því hvort við þurfum nokkurn tímann að leita til dómstóla. Brynjar velur - og er það væntanlega með ráðum gert - að skauta alfarið framhjá þeirri staðreynd að vörslusviptingarmenn hafa ekki heimild til að beita valdi, sama hversu hagkvæmt þeim kann að þykja það gagnvart ...
1. September 2011
ÖFUGMĆLI STJÓRNMÁLANNA

...Karl Th. Birgisson, segist vera svo skyni skroppinn að hann skilji alls ekki málflutning minn og spyr hvort mér finnist útlenskir kapítalistar verri en íslenskir. Vissulega er það rétt að ekki hefur það alltaf reynst vera svo. Þess vegna hef ég lagt áherslu á það í mínu starfi á vettvangi stjórnmálanna að styrkja almannarétt en ekki einkaeignarrétt þegar auðlindir eru annars vegar... Hins vegar dáist ég að Íslendingnum Karli Th. Birgissyni, sem sér engan mun á Íslendingum og Kínverjum. Tvær frjálsbornar og jafnstæðar þjóðir sem geti vel komið fram hvor við aðra, sem jafningjar. Frjálshyggjuhugsjónir Karls Th. Birgissonar eru á heimsmælikvarða, þótt þær séu ...
28. Ágúst 2011
TÍMI TIL AĐ HUGSA... AF YFIRVEGUN!

...þá er það svo að löggjafinn á Íslandi sá ástæðu til að setja skorður við að færa eignarhald á íslensku landi til útlanda. Við þurfum að spyrja hvort sá fyrirvari sé úreltur. Mér finnst ekki svo vera. Nú stöndum við frammi fyrir því að kínverskur auðmaður vill kaupa 3 hundruð ferkílómetra af Íslandi. Þetta þarf að ræða, en ekki kyngja ómeltu. Væri okkur sama þótt landið allt yrði selt? Hvað þýðir það fyrir utan það sem augljóst er og gerðist í auðmannabólunni, að verð á jörðum fór upp í þær hæðir að aðeins peningafólk gat keypt? Það leiðir okkur að atriði númer tvö; nefnilega að eignarhald á landi skiptir máli. Á það erum við minnt nú þegar talað er um að friðlýsa Gjástykki. Þá segir talsmaður Reykjahlíðar ehf ...
25. Ágúst 2011
HEGGUR SÁ ER HLÍFA SKYLDI

...En mikið er ógert. Allar stofnanir, allar starfsstéttir og eintaklingar þurfa að horfa inn á við því öll myndum við þagnarmúrinn með einum eða öðrum hætti; múr sem okkur ber siðferðileg skylda til að rjúfa.
Mér þótti áhrifarík frásögn drengs af hrottalegu heimilsofbeldi sem fyrir fáeinum dögum birtist víða á vefnum og þar með talið á vefsíðunni bleikt.is. Þar lýsir drengurinn því hvernig skjólið sem heimili á að vera breyttist í vígvöll. En ekki nóg um það, heldur fann hann ekki skjól í skólanum. Það voru ekki einungis nemendur sem veittust að niðurbrotnum drengnum heldur líka sá sem ...
23. Ágúst 2011
SAMSTAĐA UM FANGELSI

....Nýlega skrifaði ég blaðagrein til varnar alútboði. Í alútboði eru allir verkþættir boðnir út í einum pakka, hönnun, teikning , smíði, allur pakkinn eins og það heitir. Þetta getur haft sína kosti, verið leið til að ná kostnaði niður og miðstýra verkinu í samræmdan verkfarveg á frumstigi. Arkitektafélagi Íslands var hins vegar ekki skemmt. Arkitektar sögðust vilja samkeppni um teikningar og hönnun sérstaklega. Alútboð væri hamlandi fyrir litlar og meðalstórar stofur. Í alútboði væru þær iðulega settar undir hælinn á stórverktökum. Og þar sem arkitektar væru sú stétt sem verst hefði orðið úti í hruninu, mætti spyrja hvers þeir ættu eiginlega að gjalda. Ég sannfærðist og breytti afstöðu minni. Hafði reyndar verið að ... Nýja fangelsið á Hólmsheiði á að taka til starfa innan þriggja ára. Um það var góð samstaða í ríkisstjórn.
19. Ágúst 2011
UM FRELSI OG GĆĐI ÁKVARĐANA
17. Ágúst 2011
FRÉTTAUMFJÖLLUN TIL UMHUGSUNAR
...Fangelsismálin eru ofarlega á baugi og lái ég ekki fjölmiðlum að búast við fréttum af þeim eftir hvern ríkisstjórnarfund sem haldinn er enda ríkisstjórnin búin að lýsa því yfir að málið verði frágengið í þessum mánuði. Þarna eru fjölmiðlar að sinna eðlilegum skyldum sínum. Ekki reyndist málið komið á það stig í gær að það yrði afgreitt. Hlaup mín af ríkisstjórnarfundi voru vegna þess að fundurinn hafði dregist á langinn og ég orðinn of seinn annað! Hélt ég sannast sagna að fréttamenn þekktu mig af öðru en að forðast að standa fyrir mínu máli. Þetta verður mér hins vegar umhugsunarefni um fréttaumfjöllun í landinu. Þannig reifar Ríkissjónvarpið í gærkvöldi...
7. Ágúst 2011
AĐ ŢEKKJA AFLEIĐINGAR GJÖRĐA SINNA

...Þannig er þessu að sjálfsögðu einnig farið annars staðar í kerfinu. Undir mitt ráðuneyti - þar sem ég ber ábyrgð - heyrir dómskerfið og löggæslan, samgöngukerfið og margvísleg önnur starfsemi. Sumt er þetta nátengt ríkinu, annað síður, til dæmis Þjóðkirkjan. Hún er engu að síður látin lúta niðurskurði ekki síður en...Reyndar hefur lenskan hér á landi í allt of ríkum mæli verið sú að loka augunum og vilja ekkert vita. Þannig hafa ríkisstjórn og Alþingi skorið niður og síðan er augunum lokað. Óábyrgast er þegar gengið er á hlut framtíðarinnar. Þannig gerist það enn að stjórnmálamenn stíga fram til að slá sjálfa sig til riddara, krefjast risafjárfestinga sem þeir ætla síðan öðrum að...
3. Ágúst 2011
SEINHEPPINI Á FRÉTTABLAĐI

...Niðurstaðan hefur jafnan orðið sú eftir skoðun á málinu að þetta sé óhagkvæmt og muni reynast dýrara þegar upp er staðið, a) vegna nauðsynlegra og umfangsmikilla breytinga á húsnæðinu, b) vegna rekstrarkostnaðar sem er það sem máli skiptir til framtíðar horft. Ný fangelsisbygging, sem þegar er að grunni til úthugsu (grunnhugmyndin er komin á blað og bíður útfærslu arkitekta), er hugsuð með þetta í huga, ákjósanlegar aðstæður fyrir starfsmenn og fanga og sem minnstan rekstrarkostnað. Síðan er náttúrlega einn veikleiki í frétt Fréttablaðsins...
30. Júlí 2011
HVAĐ GAFST ŢÚ?

...En aftur að Hugo, sem alla tíð hefur verið í uppáaldi hjá mér eða síðan ég heyrði hann einhvern tímann fjalla um vinnusálfræði og samskipti á vinnustað. Sjónarhorn hans var skarpt og frumlegt. Þessir eiginleikar komu fram í fyrrnefndu viðtali í Fréttatímanum. Sérstaklega fannst mér snjallt það sem hann hafði að segja um gjafir. Hugo vill ekki spyrja börn hvað þau hafi fengið í jólagjöf - einsog okkur flestum er tamt að spyrja - heldur snýr hann dæminu við...
29. Júlí 2011
NEYTENDAVERND EĐA RÉTTTRÚNAĐUR?

...Er leikurinn til þess gerður að fullnægja kröfum um samkeppni að forminu til eða er hugmyndin að skapa fyrirkomulag sem raunverulega þjónar neytendum og lækkar verð til þeirra. Gamla lagið þar sem framleiðandinn merkti vöruna - hverja einustu pakkningu - gaf smásöluversluninni kost á að veita afslátt frá uppsettu verið - m.ö.o. samkeppni til lækkunar frá verði framleiðandans. Allar upplýsingar aðgengilegar án fyrirhafnar. Samkeppnin núna er hins vegar blindandi og þykir mér hún fremur bera vott um rétttrúnað á form en raunverulega neytendavernd. Er ég kannski að ...
26. Júlí 2011
MÁLEFNI HĆLISLEITENDA: EYĐUM MISSKILNINGI OG MISTÖKUM
22. Júlí 2011
STJÓRNLAGARÁĐ OG LÝĐRĆĐIĐ: GRÍN EĐA ALVARA?

...Á liðnum mánuðum höfum við annað veifið séð í skrifum, ættuðum úr forræðishyggjupennum, að þjóðinni sé „ekki treystandi" þegar skattar og fjármál eru annars vegar. Nú bætast þarna ofan á „þjóðréttarlegar skuldbindingar." Þegar EES samningurinn var til umræðu á sínum tíma töldu margir að í samningnum fælist stjórnarkrárbrot; viss ákvæði hans væru skerðing á löggjafarvaldi Alþingis og íslensku dómsvaldi. Ef Stjórnlagaráð fær sínu framgengt verður þetta ekki vandamál í framtíðinni þar sem stjórnarskráin myndi beinlínis banna þjóðinni að kjósa um málefni sem snúa að þjóðréttarskuldbindingum. Er íslenska þjóðin þá ekki að banna sjálfri sér að segja sig úr EES? Hún væri altént að banna sjálfri sér að hafa afskipti af fullveldisafsali innan ESB ef ...
20. Júlí 2011
VESTFJARĐAHEIMSÓKN: FRÓĐLEG OG UPPLÝSANDI

...Enn naut ég náttúrufegurðar og gistrisni en nú var komið nýtt til sögunnar: Áhugi á samgöngumálum, ástandi vega, flugvalla; augun á hverri holu og nibbu upp úr vegi...Víða sáust merki um skemmtilega sprotastarfsemi. Nefni ég þar sem dæmi hótel Ráðagerði á Patreksfirði...Þá var gaman að koma í Sjóræningjahúsið á Patreksfirði ...Þar var áður vélsmiðja en er nú smám saman að umbreytast í tónleikamiðstöð og matsölustað sem tekur á móti hópum. Þar snæddi ég ásamt ferðafélögum gómsæta og afar vel matreidda bleikju í skemmtilega hráu umhverfi gömlu vélsmiðjunnar. Við ornuðum okkur við eldinn af vörubrettum sem gaman var að sjá verða að ösku á gríðarmikilu eldstæði. Mér sýndist brettin vera merkt Evrópusambandinu. Nóg brenni, góður matur og ...
18. Júlí 2011
KJARNINN ŢARF AĐ VERA TIL STAĐAR

...Var vel við hæfi að þeir fyrstu sem fóru yfir brúna til að opna hana formlega voru brúarsmiðirnir, hjálparsveitarmenn og fulltrúar löggæslu sem sameiginlega stóðu þessa vakt.Hvað varðar hina erlendu heri og þekkingu þeirra þá er ég sannfærður um að þeir myndu leita í smiðju Íslendinga þyrftu þeir að glíma við jökulfljót. Ætli doktor í Markarfljóti, eins og vegmálastjórinn okkar hefði ekki meiri þekkingu á þessum málum en þeir sem ekkert til þessara náttúruafla þekkja? Ég fletti að gamni mínu upp...
14. Júlí 2011
INNANLANDSFLUGVÖLLUR Í REYKJAVÍK
11. Júlí 2011
VEGAGERĐIN: VEL SMURĐ VÉL

...Í dag sendi innanríkisráðuneytið frá sér fréttatilkynningu þar sem meðal annars er svarað ómaklegri gagnrýni á hendur Vegagerðinni. Sú gagnrýni er hins vegar undantekningin frá reglunni því í mín eyru ljúka flestir - og allir sem til þekkja - upp lofsorði á framgöngu Vegagerðarinnar. Ýmsir vildu sjá gröfur að verki frá fyrstu mínúntu. Miklu meira er hins vegar um vert að framkvæmdaaðilar leggi skipulega niður fyrir sér hvernig vinna eigi verkið og síðan sé framkvæmt. Þá rís brú sem heldur. Öfug röð er ekki vænleg til árangurs...
4. Júlí 2011
ŢUNGU HÖGGIN REYNDUST VINDHÖGG

...Nú bregður svo við að Kristján L. Möller vill lítið við þessa forsögu kannast og mætti halda að hann væri að koma ferskur og án sögu og ábyrgðar að þessum málum. Þannig talar hann um aðgerðarleysi mitt þegar hann sjálfur átti í hlut og tekur undir ábyrgðarlaust tal manna á borð við Jón Gunnarsson alþingismann, sem sagði á Bylgjunni í þættinum Reykjavík síðdegis fimmtudaginn 30. júní 2011 meðal annars eftirfarandi: ,,Og ég segi sko á meðan við erum ekki búin að ákveða hvernig við ætlum að haga þessari gjaldtöku í framtíðinni, sem þarf að endurskoða, þá skulum við taka þessi lán og hefja framkvæmdir. Svo getum við gefið okkur þessi ár sem við höfum þá til þess að ákveða skattlagningarstefnu sem svo verður að endurskoða á þessum tíma"...
3. Júlí 2011
ICESAVE: ŢETTA VAR RANGT!

Fabian Hamilton, þingmaður breska Verkamannaflokksins talaði tæpitungulaust í sjónvarpsfréttum á föstudag. Hann kvað bresku stjórnina hafa gengið fram af óbilgirni gagnvart Íslendingum í Icesave deilunni. Nefndi hann hryðjuverkalögin sérstaklega og einnig það grundvallaratriði að þröngva íslenskum almenningi að axla byrðar einakbanka vegna ákvarðana sem bankarnir hefðu tekið á sínum eigin forsendum. Íslenska þjóðin hefur nú talað skýrt í þessu máli og ég var henni sammála, sagði þingmaðurinn breski í fréttaviðtali.
Fabian Hamilton var hér á landi í heimsókn ásamt ...
1. Júlí 2011
DÓMSTÓLAR, EVRÓPUSAMBANDIĐ OG LÝĐRĆĐIĐ

...Á þennan heim erum við Íslendingar minntir þessa dagana þegar fulltrúar Efta-dómstólsins segja okkur nú í hverjum fréttatímanum á fætur öðrum að til standi að kanna hvort það standist lög og regluverk hins Evrópska efnahagssvæðis að almeninngur sem á orkufyrirtækin á Íslandi hefði haft rétt á því að veita fjármagni úr opinberum sjóðum inn í fyrirtæki sín. Áhöld séu um að þetta standist markaðslögmál Evrópusambandsins! Lýðræðið - vilji almennigs - er þannig dreginn í efa. Ég spyr: Hvert erum við eiginlega að halda? Hvað afmælisbarnið varðar - embætti Ríkissaksóknara þá - hefur það ekki farið varhluta af ...
27. Júní 2011
HÚRRA FYRIR JÓNASI

Jónas Engilbertsson hefur ekið strætisvagni í Reykjavík í rétt 40 ár. Af þessu tilefni hefur hann verið heiðraður af Strætó bs og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, auk þess sem ég sem ráðherra samgöngumála sá ástæðu til að taka sérstaklega á móti honum á Hlemmi að lokinni akstursferð sem markar 40 ára samfelldan strætó akstur...
24. Júní 2011
SPURNING UM EFTIRSPURN

Nýlega sat ég fund dómsmálaráðherra Norðurlandanna. Þar var fjallað um þau málefni sem helst brenna á löggæslu og dómsmálayfirvöldum í hverju landi....Með öðrum orðum, verkefnið væri að gera ungu fólki grein fyrir að glæpaheimurinn væri ekki eftirsóknarverður. Í umræðunni sem þarna spannst var sagt frá hliðstæðri könnun annars staðar frá. Þar var fjallað um orsakir þess að fólk ánetjaðist samtökum ofbeldisfullra ofsatrúarmanna. Vísað var til þess í könnuninni að í Kosovo á Balkanskaga hefðu ofsatrúarsamtök sent umtalsvert fjármagn til að ...
21. Júní 2011
GUNNAR BIRGISSON, VERKTAKARNIR OG VEGATOLLARNIR
Birtist í Morgunblaðinu 20.06.11.
... Auk þess skal minnt á að það eru lítil búhyggindi að láta núverandi vélakost stýra hraða framkvæmda. Þegar flýtiframkvæmdum væri lokið þyrfti síðan nýja innspýtingu. Nær væri að vinna áfram að samgöngubótum á framkvæmdahraða sem er í samræmi við greiðslugetu okkar sem einstaklinga (sbr. vegatolla) og sem samfélags (samanber skatta) til langs tíma. Það sem nú er frábrugðið í vinnubrögðum eins og þau tíðkuðust í aðdraganda hrunsins er að nú tala menn opinskátt um tvær leiðir til fjármögnunar, skattahækkanir eða vegatolla. Áður var einfaldlega sagt: Við borgum þetta seinna - einhvern veginn.
17. Júní 2011
GLEĐILEGA ŢJÓĐHÁTÍĐ!

Í dag halda Íslendingar þjóðhátíð en að þessu sinni voru sögulegar víddir hátíðahaldanna meiri en endranær. Nú minntust menn þess að tvö hundruð ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar og eitt hundrað ár frá því Háskóli Íslands tók til starfa, en lög um stofnun skólans höfðu verið sett árið 1909. Karl Sigurbjörnsson, biskup, lagði út af lífshlaupi og sögulegri arfleifð Jóns Sigurðssonar...Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fjallaði einnig um Jón Sigurðsson í ræðu á fæðingarstað hans, Hrafnseyri við Arnarfjörð. Einnig forsetinn fjallaði um Jón Sigurðsson ...
11. Júní 2011
UM BÖNN OG BANNFĆRINGU
9. Júní 2011
SKÝRARI RANNSÓKNARHEIMILDIR OG AUKIĐ AĐHALD
Birtist á vefritinu Smugunni 08.06.11.
...Stefnt er að því að sameina þessar eftirlitsskyldur þannig að árlega fái allsherjarnefnd skýrslu um rannsóknaraðferðir lögreglu, hversu oft þeim var beitt og gegn hvaða brotum. Með þessu móti er lögreglu veitt aukið aðhald, sem aftur skilar sér í því að áframhaldandi traust ríkir um störf hennar...
5. Júní 2011
BAKHJARLAR SJÓMANNA

Sjómönnum eru sendar bestu kveðjur í tilefni Sjómannadagsins. Það var ánægjulegt og hátíðlegt að vera viðstaddur hátíðlega athöfn við minningaröldurnar í Fossvogskirkjugarði í Reykjavík í morgun. Áhöfn norska varðskipsins Sortland stóð heiðursvörð ásamt starfsmönnum Landhelgisgæslunnar, lagður var krans til minningar um þá sjómenn sem hafa farist á sjó. Viðstaddir voru... Síðdegis ávarpaði Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra útifundi í Reykjavík þar sem hann lýsti því yfir að svo lengi sem hann fengi ráðið myndu Íslendingar ekki láta fiskimiðin af hendi, hvorki til ríkjasambanda né fyrirtækja. Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði ávarpaði einnig fundinn þar sem hann...
2. Júní 2011
NÝIR OG NAUĐSYNLEGIR SENDIHERRAR
29. Maí 2011
EIGNARRÉTTINDI EĐA MANNRÉTTINDI?

Merkileg umræða er að dragast upp á pólitískan himininn, ekki bara hér á landi heldur í Evrópu og víðar um lönd í kjölfar fjármálakreppu sem bankar uppá. Þessi umræða snýst um forgangsröðun þegar þrengir að. Hvor á að njóta forgangs innistæðueigandinn eða öryrkinn? Eða með öðrum orðum, á að forgangsraða í þágu eignarréttinda eða mannréttinda?...Trúin á heilagleika einkaeignarréttarins hefur oft valdið mér miklum heilabrotum. Þannig minnist ég þess þegar deilur stóðu sem hæst fyrir fáeinum árum um stofnfé sparisjóðanna sem stofnfjáreigendur vildu sumir hverjir gjarnan maka krókinn á. Um stofnféð giltu ...
24. Maí 2011
ĆĐRULEYSI OG YFIRVEGUN

Það var fróðlegt að heimsækja þau svæði sem verst hafa orðið úti vegna eldgossins í Vatnajökli en í dag fór ég í kynnisför þangað ásamt forsætisráðherra og ráðuneytisfólki í innanríkisráðuneyti. Það var ríkislögreglustjóri, sem hefur forræði yfir almnnavörnum, sem skipulagði ferðina ásamt sínu samstarfsfólki.Við heimsóttum aðgerðarmiðstöðvarnar á Hellu og Kirkjubæjarklaustri og áttum þar fundi með fulltrúum þeirra aðila sem koma að björgunarstarfi á vettvangi. Það var traustvekjandi að sjá og finna hve vel ...
19. Maí 2011
VÍTT SJÓNARHORN Í MANNRÉTTINDABARÁTTU EĐA...

...Hið alvarlega í þessu eru lögbrotin í sínu félagslega samhengi. þannig skoðuð eru þau hreinlega „tilræði við lýðræðið" einsog ég orðaði það í yfirlýingu á vef Innanríkisráðuneytisins sem var birt samhliða skýrslu ríkislögreglustjóra um málið. Skýrslan var unnin í framhaldi af fyrirspurnum mínum til embættisins um hvort íslensk lögregluyfirvöld hafi haft vitneskju um veru breska lögreglumannsins hér á landi í tengslum við mótmæli gegn Kárahnjúkavirkjun árin 2005 og 2006. Er því svarað á þann veg að ekki hafi komið fram upplýsingar sem geri kleift að skera úr um hvort Kennedy hafi verið hér á landi í samvinnu eða með vitund lögreglunnar. Hins vegar kemur einnig fram - og er það ekki síður mikilvægt - að íslensk lögregla hafi fengið upplýsingar erlendis frá um mótmælin á Kárahnjúkum, án þess þó að ...
13. Maí 2011
SAMKENND Í HÖRPU

Við áttum það sameiginlegt við Grímur Thomsen að finnast óþægilegt að stíga inn í Roskilde kirkju - dómkirkuna dönsku suður af Kaupmannahöfn.... Alltaf þessi tilfinning um misnotkun, valdníðslu og yfirgang....Sama kom upp í hugann þegar ég kom í Hörpuna í kvöld ...Hinu vil ég ekki leyna að ég hreifst af Hörpu og því sem þar fór fram innandyra. Ég held ég muni aldrei gleyma þessari stund í Hörpunni og var þá áhrifaríkast þegar risakór og margir allra bestu söngvarar þjóðarinnar sungu þjóðsönginn okkar. Salur og svalir tóku undir...
10. Maí 2011
ÍSLAND OG AĐKOMUFÓLK

...Á hinn bóginn er einnig á flótta undan einræðis- og ofbeldisstjórnum enn fleira fólk sem hefur þurft að sæta ofsóknum, kúgunum og í sumum tilvikum pyntingum í heimalöndum sínum. Þetta fólk ber okkur skylda til að skjóta skjólshúsi yfir og það sem meira er, taka opnum örmum.
Þarna þarf að greina á milli. Það getur verið vandasdamt verk og stundum óþægilega tímafrekt. Unnið er að því að stytta þennan tíma en það breytir því ekki að þetta verk þarf engu að síður að vinna.
Ég hef boðað endurmat á stefnu okkar...
5. Maí 2011
AFREKSVERK ÖRYRKJABANDALAGSINS
Ávarp á hálfrar aldar afmæli ÖBÍ 5. maí 2011...Ég sat um daginn fund með fulltrúum frá notendastýrði þjónustu og eftir því sem ég hlustaði meira hugsaði ég: Ef ég byggi við alvarlega hreyfihömlun eða fötlun og þyrfti að reiða mig á aðra þá myndi ég vilja láta tala mínu máli á þann hátt sem þarna var gert. „Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður...." Nálgunin var sú að skýra það fyrir mér að þetta snérist ekki bara um frelsi og sjálfsforræði þeirra einstaklinga sem í hlut eiga heldur að samfélaginu öllu. Mér var gert skiljanlegt án þess að þau orð væru beinlínis notuð að vildi samfélagið skilgreina sig sem mannréttindaþjóðfélag þá yrði það að ...
3. Maí 2011
SIĐBÓTARKRAFAN

Ávarp í Hátíðarsal Háskóla Íslands í upphafi Prestastefnu
...Þannig er ég sannfærður um að íslenskt stjórnmálalíf stendur á krossgötum ekkert síður en kirkjan telur sig gera. Á vettvangi stjórnmálanna þykir mér margt benda til þess að stofnanakerfið - það er að segja stjórnmálaflokkarnir - muni meira og minna riðlast á nýrri lýðræðisöld. Fólk kann áfram að vilja skipa sér í fylkingar og flokka og eflaust að einhverju marki heyra stofnunum til, en sú samstaða sem fólk kemur til með að vilja sjá, mun snúa að markmiðum og að boðskap en ekki stofnunum. Það verður með öðrum orðum ekki spurt um stuðning við flokk heldur við stefnu og við hugsjón. Fólk mun spyrja ..
1. Maí 2011
Á 1. MAÍ MEĐ LÖGREGLUMÖNNUM Í NESKIRKJU

...Í stað þess að setja þak á hámarkslaun, eða gólf undir lægstu laun, ættum við að bindast fastmælum um að hæstu laun verði aldrei hærri en þreföld lægstu laun. Kjarabætur eins hefðu þannig áhrif á kjarabætur annars....Þó gerum við meiri kröfur til lögreglunnar en allra annarra. Því lögreglunni felum við vald umfram alla aðra og slíkt vald er alltaf vandmeðfarið. Líka valdið sem til er stofnað í góðum tilgangi, vald til að berjast gegn ofbeldi og vernda samfélagið. Vald kallar því á aðhald. Því meiri heimildir sem lögreglu eru veittar þeim mun meira eftirlit þarf lögreglan sjálf að þola...
28. Apríl 2011
RAUNHAGKERFI?

Okkur sem ekki erum í „raunhagkerfinu" brá í brún þegar formaður bankaráðs Landsbankans - sem er í eigu þóðarinnar - sagði í fréttum RÚV í kvöld að bankastjóri bankans væri ekki með eins há laun og bankastjórar annarra banka og stórfyrirtækja í „raunhagkerfinu". Nýlega vorum við upplýst um að viðkomandi stjórar eru með himinháar tekjur - langt umfram það sem sanngjarnt má heita. Þetta gerði það að verkum að Landsbankinn væri ekki ...
27. Apríl 2011
INGÓLFUR MARGEIRSSON KVADDUR

Birtist í DV 20.04.11.
Í pólitíkinni stóð Ingólfur Margeirsson staðfastur í kratismanum. Almennt frekar í nöp við pólitíkina þar til vinstri og Íhaldið vildi hann ekki. Þeir sem trufluðu siglingu jafnaðarmannaskútunnar áttu ekki upp á pallborðið hjá vini mínum. Ekki heldur undirritaður ef því var að skipta. Þá fékk ég að finna til tevatnsins. En sama hvað Ingó skammaði mig fyrir villukenningar, truflaði það aldrei vináttu okkar. Hún átti dýpri rætur en svo. Við Ingólfur Margeirsson höfum verið ...
25. Apríl 2011
ANDRÉS BJÖRNSSON: UM HORNSTEINA LÝĐRĆĐIS
Á páskadagsmorgun var endurtekinn á Rás 1 í Ríkisútvarpinu þáttur Gunnars Stefánssonar um Andrés Björnsson, fyrrum útvarpsstjóra og menningarmann. Þátturinn, sem fyrst var fluttur á páskadagsmorgun árið 1999, var vel gerður eins og annað sem frá Gunnari Stefánssyni kemur...Í þættinum um Andrés Björnsson er að finna dæmi um ljóðaupplestur hans sem bjó yfir mjög óvenjulegri dýpt og næmni. Þar voru einnig ræðubrot, á meðal annars úr áramótahugvekjum Andrésar. Undir lok þáttarins var kafli úr áramótahugvekju Andrésar, frá árslokum 1984...
24. Apríl 2011
GLEĐILEGA PÁSKAHÁTÍĐ
...Með öðrum orðum horfið verði frá hinu sameiginlega þjóðarfríi og innleidd þess háttar vaktaskipti að aldrei hægist á neinni starfsemi. Í þá átt hefur tilhneigingin verið á undanförnum árum. Þannig var föstudagurinn langi nánast friðhelgur dagur. Mér þótti það vera spor aftur á bak þegar sú friðhelgi var rofin með lagasetningu fyrir fáeinum árum. Stórfjölskyldan missti þar með hluta af mannskapnum út til þjónustustarfa á þessum degi. En hvað um það. Hvort sem þið eruð...
22. Apríl 2011
NÓG TIL AF GUMMÍSKÓM OG RÖRTÖNGUM
...Ákall Valgarðs fyrir grunngildum sem auðga andann en ganga þvert á efnishyggju samtímans, var sannfærandi. Efnishyggju „stórkapítalsimans" kallaði hann „hámarksafurðarstefnuna" og tefldi gegn henni húmanisma sem hann nefndi hina „frjóu lífsnautnastefnu". Þar sótti hann hugtök og ínspírasjón í listaskáldið góða,Jónas Hallgrímsson...Margt annað var vel sagt í þessum þætti og margt sem mikilvægt er að hugleiða af mikilli alvöru: Þannig berum við sömu erfðaefni og upplag okkar frá náttúrunnar hendi er nákvæmlega sama og villimanna og grimmdarseggja fortíðar. Villimenn fortíðarinnar, sagði Valgarður, eru nákvæmlega sömu gerðar og við hvað erfðaefnin snertir. Það sem við helst þurfum á að halda sé að...
21. Apríl 2011
INNIHALDIĐ Í LAGI
... Sá sem kom þannig með ferska vinda inn í umræðuna um skipulagsmál hafði aflað sér þekkingar á stað sem ekki var af verri endanunum...Það er dapurlegt hve margir með ágætar prófgráður upp á vasann koma aldrei neinu á framfæri við sína samtíð - ná aldrei að nýta það sem þeir hafa lært - og kannski lærðu þeir aldrei neitt sérstaklega mikið þrátt fyrir gráðurnar. En á þeim hefur framangreindur fjölmiðill engan áhuga enda ekki um að ræða stjórnmálamenn á pólitískum dauðalista...
21. Apríl 2011
GLEĐILEGT SUMAR!

Sumardagurin fyrsti er í minni dagbók skátamessa í Hallgrímskirkju, boltar handa krökkunum, heitt súkkulaði og tilhlökkun yfir komandi sumri. Þetta síðasta var inntakið í ræðu Layfeyjar Haraldsdóttur, nema og skáta í Ægisbúum, í skátaguðsþjónustunni í dag. Laufey sagði að í sínum huga væri „aðeins einn tilgangur með sumardeginum fyrsta" og hann væri „að vekja tilhlökkun, löngun eftir komandi sumri." Hún sagði...
16. Apríl 2011
LISTAMAĐUR UM LISTAMANN

Sá í gærkvöldi annan hluta myndar Erlendar Sveinssonar, Draumurinn um veginn, pílagrímsganga Thors Vilhjálmssonar eftir norðurhluta Pýrenaeaskagans í átt að Santiago de Compostela, vestast á Norður Spáni. Þeir Erlendur og Thor ríma vel. Thor magnþrunginn heimspekingur, orðjöfur, eins og Erlendur kallaði hann í ávarpsorðum sínum til frumsýningargesta. Erlendur með sögu heimspeki og trúar inngróna...
14. Apríl 2011
ÁSMUNDUR EINAR
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, ákvað í gær að segja sig úr þingflokki VG og hverfa frá stuðningi við ríkisstjórnina. Mér er mikil eftisjá að Ásmundi Einari úr þingflokknum og að sjálfsögðu er ég honum ósammála um afstöðuna til ríkisstjórnarinnar eins og fram kom í mínu máli við umræðu um vantrauststillögu Sjálfstæðisflokksins í gær. Í sjálfu sér þarf engum að koma á óvart ákvörðun Ásmundar Einars því hann hefur um langan tíma verið þungorður í garð ríkisstjórnarinnar og gagnrýnt sinn eigin flokk, VG, fyrir að bregðast hugsjónum sínum. Þar hefur Ásmundur Einar einkum staðnæmst við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu...
10. Apríl 2011
GAGNRÝNIN ĆTTI AĐ BEINAST AĐ ŢJÓĐINNI, EKKI FORSETANUM

Niðurstaða liggur fyrir úr þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave. Sú niðurstaða er afdráttarlaus. Upp úr stendur tvennt.
Í fyrsta lagi er það staðreynd að umræðan um Icesave hefur aldrei verið eins á dýptina og í aðdraganda kosninganna. Þetta þýðir að þjóðaratkvæðagreiðsla er vel til þess fallin að varpa ljósi á flókin mál. Í annan stað er augljóst að þjóðaratkvæðagreiðsla er komin til að vera, slíkur var áhuginn og síðan þátttaka í kosningunni. Ég er ekki í vafa um að beint lýðræði er aðferð 21. aldarinnar. Gagnrýni í garð forseta Íslands vegna ákvörðunar hans...
9. Apríl 2011
VIĐ STEINGRÍMUR
...Staðreyndin er sú að við Steingrímur J. Sigfússon höfum verið nánir félagar svo lengi sem ég man eftir mér í pólitíkinni. Og fyrir kynni okkar þar var okkur vel til vina á fréttastofu Sjónvarps, í þann mund sem Steingrímur var að hefja innreið sína í pólitíkina og ég í verkalýðspólitíkina. Þetta var upp úr 1980. Á langri vegferð höfum við að sönnu orðið ósammála um einstök mál - mjög heiftarlega um Icesave - því er ekkert að leyna. En miklu oftar höfum við verið fullkomlega samstiga og eru góðar minningar af góðu samstarfi miklu fleiri en þær sem eru miður góðar. En í þessu máli var félaga mínum lítið gefið um mína framgöngu sumarið og haustið 2009 og framá árið 2010 og mér ekki sérlega skemmt yfir framgöngu ríkisstjórnarinnar. Síðan tók málið breytingum sem kunnugt er og aftur náðum við saman...
6. Apríl 2011
ŢYRFTUM ÖLL AĐ VERA FRÁ TRÉKYLLISVÍK

Það var hressandi að koma til Ísafjarðar á ríkisstjórnarfund en lengi höfðum við haft á prjónunum að halda fund á Vestfjörðum. Í tengslum við ríkisstjórnarfundinn var efnt til funda þar sem okkur var kynnt starfsemi í atvinnu-, menningar- og menntamálum. Þá var haldin sameiginleg ráðstefna ríkisstjórnar og vestfirskra sveitarstjórnarmanna um málefni sem á þessum landshluta brenna. Þar loga svo sannarlega eldarnir í þeim skilnigi að fólki hefur fækkað og þrengst hefur að sveitarfélögunum í seinni tíð. Margt hefur þarna vegið þungt en þyngst án efa að missa heimildir til fiskveiða til annarra landshluta.
31. Mars 2011
INNANRÍKISRÁĐUNEYTIĐ: RÍKISBORGARARÉTTUR EKKI SÖLUVARA
...Í þinginu hefur verið litið svo á að geþóttaákvarðanir eigi alls ekki að gilda og að ef Alþingi er ósátt við reglurnar eigi að breyta þeim. Nú hafa nokkrir auðmenn sóst eftir íslenskum ríkisborgararétti og lofa umboðsmenn þeirra gulli og grænum skógum öðlist þeir réttinn. Á þetta reyndi síðastliðið haust og var málaleitan þessara aðila hafnað í Innanríkisráðuneytinu og vísað í þær lagareglur sem í gildi eru. Þessi afstaða var ítrekuð í dag. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að ríkisfang eigi ekki undir neinum kringumstæðum að vera söluvara og að ....
30. Mars 2011
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR BLÍVUR
...En þessi utandagskrárumræða var frábrugðin fyrri umræðum að því leyti að sífellt fleiri virðast vera að sannfærast um að hyggilegt sé að halda flugvellinum í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Gömlu hrunhugmyndirnar um að malbika Skerjafjörðin og flytja flugvöllinn þangað út eða flytja hann á Hólmsheiðina eiga ekki lengur hljómgrunn. Annað hvort hljóti það að vera Reykjavík eða Keflavík. Fyrir Reykvíkinga er það mikið hagsmunamál að halda í flugvöllinn og þá ekki síður það landsbyggðarfólk sem oft leggur leið sína til borgarinnar til að erinda í stjórnsýslunni eða í tengslum við atvinnurekstur. Fasteignaspekúlantar eru ekki eins ágengir nú og á bólutímanum að komast í ...
28. Mars 2011
NORĐFJARĐARGÖNG: EKKI HVORT, HELDUR HVENĆR
...Allt þetta mælir með göngum. Þannig að þau koma. Spurningin er bara hvenær. Þar eru engu hægt að lofa enn sem komið er vegna fjárþurrðar ríkissjóðs. Þessu gerði ég grein fyrir á fundinum...Um mikilvægi jarðganga á þessum stað þarf ekki að sannfæra mig frekar. Þar er ég samherji Norðfirðinga. En það er líka ástæðan fyrir því að ég læt ekki hafa mig út í gylliboð og ósannindi um eitthvað sem ég veit að gengur ekki upp að óbreyttu. Með slíkum málflutningi er engum greiði gerður. Þvert á móti. Enda er ég sannfærður um að ...
20. Mars 2011
„VIĐ VORUM RĆND"

...Svona má ráðherra dómsmála ekki tala, sagði Gestur Jónsson við þessu. Önnur eins ummæli hefðu lent fyrir mannréttindadómstól og gætu eyðilagt og ógilt málarekstur! Ég auglýsi eftir þeim málum sem hér er vísað til og vil ég gjarnan í framhaldinu ræða málefnið frekar. Mín yfirlýsing var almenns eðlis en ekki tilvísun í einstök mál. Á þessu er grundvallarmunur sem ég hefði haldið að minn gamli vinur og samstarfsmaður til áratuga, lögspekingurinn og hæstaréttarlögmaðurinn, Gestur Jónsson, áttaði sig á. Eða getur verið að vilji standi til að færa okkur í áttina að réttarkefi sem byggir ekki á því að finna út hvað rétt er, heldur hvort ...
18. Mars 2011
UM RÉTTARKERFI OG LÝĐRĆĐI

Í dag efndu embætti Ríkissaksóknara og Ákærendafélagið til ráðstefnu um dómstóla og ákæruvald. Sem innanríkisráðherra flutti ég inngangserindi á ráðstefnunni þar sem ég á meðal annars fjallaði um þrískiptingu valdsins, dómsvaldsins og hins tvískipta lýðræðisvalds, framkvæmdavalds og löggjafarvalds. Taldi ég á skorta í þjóðfélagsumræðunni að réttarkerfið og þeir sem þar störfuðu hefðu á því skilning að lýðrðislegum viljia ætti að sýna viðringu ekki síður en dómsvaldinu....
11. Mars 2011
GJÖFULL SAMFERĐARMAĐUR KVADDUR

...Í dag fór útför Thors fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík og var yfir henni reisn og frumleiki - mjög í anda skáldsins. Það var mín tilfinning; allt frá því Steindór Andersen kvæðamaður hóf upp raust sína og kvað hetjuljóð Þóris Jökuls frá 13. öld í upphafi athafnarinnar. Ljóðið er sterkt og í flutningi Steindórs í Dómkirkjunni, við útför Thors Vilhjálmssonar í ofanálag, hreinlega magnað! ...Sigurður Pálsson, skáld, gerði þessa stund ógleymanlega - ef ekki ódauðlega - því svo sterk var hugvekja hans um Thor Vilhjálmsson: Magnað listaverk...
10. Mars 2011
EF AĐEINS ÍSLENDINGAR HEFĐU...

Alistair Darling, fyrrverandi fjármálaráðherra Breta, kvartar í sjónvarpsviðtali sáran yfir framgöngu íslenskra stjórnvalda haustið 2008. Svo var að skilja að allt hefði farið vel ef aðeins Íslendingar hefðu verið ögn meðvitaðri um vanda bankakerfsins og heiðarlegri gagnvart Bretum - nema hvort tveggja væri. Þá hefðu Bretar sýnt Íslendingum fullan skilning! Í ljósi þessa er skrýtið að þegar síðan á reyndi - Bretar höfðu beitt okkur hryðjuverkalögum og öðrum þvingunum - skyldu þeir ekki sýna Íslendingum minnsta vott af skilningi heldur reisa kröfur um að sjálfir högnuðust þeir á Icesave- vandræðum Íslendinga með...
8. Mars 2011
FJÖLMIĐLAR Í KASTLJÓSI

...Í pistli hér á síðunni ræddi ég um hlut fjölmiðla og tilhneigingu hjá þeim sumum að hefja ofbeldismenn upp til skýjanna með því að taka í dekurviðtöl menn sem hafa fé af fólki með því að beita það kúgun og limlestingum. Nefndi ég enga fjölmilða á nafn í því sambandi. Ég leyfði mér hins vegar að minnast á fréttapistil á Pressunni ...Ýmsir fjölmiðlar hafa tekið málið upp bæði hvað varðar rannsóknarheimildir lögreglu og þau dæmi sem ég tiltók. Sumir hafa reynt að kynna sér málin, öðrum dugar að dæma fyrirfram. Ég hef fengið mikil og kröftug og afar jákvæð viðbrögð og varð mér hugsað til þess þegar ég las framlag lesenda Eyjunnar hve mjög lesendahópur hennar virðist - með undantekningum þó - frábrugðinn þeim hópi sem ég heyri frá...Ég er einfaldlega að vekja til umræðu á meðal fjölmiðlafólks um ábyrgð fjölmiðla þegar ofbeldi er annars vegar...
8. Mars 2011
MEĐ FRESLI - GEGN OFBELDI
7. Mars 2011
ÁBYRGĐ FJÖLMIĐLA

...Ef slík viðtöl eru ekki mjög gagnrýnin og með skýrum fyrirvörum þá er verið að gefa mönnum sem af ásetningi stunda glæpsamlega starfsemi, tækifæri til að villa á sér heimildir. Þetta er ekki góð fréttamennska; á meira að segja ekkert skylt við hana. Þetta er blekkingarleikur og með þessu móti gerast menn samsekir um að falsa veruleikann. Nákvæmlega þetta ástunda samtök á borð við Hells Angels; skapa falsímynd af sjálfum sér útávið á meðan ofbeldi er stundað í felum. Þegar fjölmiðlar birta fegrunarviðtöl við ofbeldismenn finnst mér ástæða til að staldra við. Ekkert síður en þegar birtar eru fréttir sem varla verða túlkaðar öðru vísi en sem beinar ofbeldishótanir. Ekki veit ég til dæmis hvað vakti fyrir Pressunni að birta eftirfarandi...
6. Mars 2011
SKÝR SKILABOĐ GEGN OFBELDI
6. Mars 2011
ÁTAK GEGN OFBELDI
4. Mars 2011
VIRĐUM GRUNDVALLARREGLUR
Birtist í Fréttablaðinu 03.03.11.
...Á Íslandi er efnahagskreppa og þegar til lengri tíma er litið höfum við einnig búið við pólitíska kreppu sem birtist í vantrú á stjórnmálum. Til eru þeir sem telja að jaðri við stjórnarskrárkeppu og vísa ég þar í harða gagnrýni á ákvarðanir sem forseti Íslands hefur tekið í krafti stjórnarskrárákvæða um þjóðaratkvæði. Ég er ekki í hópi þeirra sem gagnrýna ákvarðanir forsetans hvað þetta snertir, enda eindreginn fylgismaður þjóðaratkvæðagreiðslu og vil hafa sem flesta öryggisventla til að ...
3. Mars 2011
SKÝR SKILABOĐ TIL OFBELDISMANNA!

Á fréttamannafundi sem Innanríkisráðuneytið boðaði til í dag ásamt ríkislögreglustjóra, lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, lögreglustjóra Suðurnesja og tollstjóranum í Reykjavík kom fram skýr ásetningur um að nú skyldi forgangsraðað í baráttu gegn ofbeldishópum. Samkvæmt óyggjandi upplýsingum lögreglunnar eru hópar ofbeldismanna að festa sig í sessi á Íslandi; þeir séu að rotta sig saman hver gegn örðum því allir vilja þeir sitja einir að illa fengnum auð sínum: Afrakstri af eiturlyfjasölu, mansali og fjárkúgun. Á fréttamannafundinum í dag kom fram...
3. Mars 2011
ENDURNÝJAĐ TRAUST Í LANDSKJÖRSTJÓRN
2. Mars 2011
BURT MEĐ GLĆPAHÓPA!

Í dag fór fram mjög góð umræða á Alþingi um leiðir til að sporna gegn glæpahópum sem nú reyna að brjóta sér leið inn í íslenskt samfélag. Ólöf Nordal, Sjálfstæðisflokki, hóf umræðuna og fullltrúar allra flokka tóku þátt, þar á meðal utanríkisráherra, Össur Skarphéðinsson og Siv Friðleifsdóttir þingkona, sem hefur verið kröftug í umræðu um þetta málefni og nýlega sett fram þingmál um auknar rannsóknarheimildir lögreglu. Undir þau sjónarmið tók ég við umræðuna en lagði áherslu á að jafnframt því sem rannsóknarheimildir lögreglu yrðu víkkaðar þannig að þær næðu til hópa en ekki einvörðungu einstaklinga, yrði eftir sem áður byggt á dómsúrskurðum... Tilefni umræðunnar í dag eru varnaðarorð lögreglu og fréttir um að glæpahópurinn Hells Angles á Íslandi sé að fá inngöngu í alþjóðasamtökin. Fulltrúum þessara samtaka hefur margoft verið meinað að koma inn í landið og ....
26. Febrúar 2011
ORĐ SKULU STANDA

Þegar Hæstiréttur kvað upp úrskurð sinn sem ógilti kosningar til stjórnlagaþings, þá gagnrýndi ég réttinn harðlega. En ég tók fram að úrskurði hans bæri að hlíta til hins ítrasta. Það þýðir á mannamáli að engar fjallabaksleiðir megi fara til að komast framhjá niðurstöðu Hæstaréttar. Að mínu mati er skipan stjórnlagaráðs með sömu einstaklingum og kosnir voru til stjórnlagaþings tilraun til einmitt þessa. Verði þetta niðurstaða Alþingis þá næst hún fram án míns stuðnings. Í dag ...
24. Febrúar 2011
MISSKILNINGUR UM VOPNAFLUTNINGA LEIĐRÉTTUR

Síðustu daga hefur verið staðhæft í fréttum nokkurra fjölmiðla að Innanríkisráðuneytið hafi blessað hergagnaflutninga á vegum íslenskra flugfélaga til Afganistans. Í kjölfarið hafa friðarsinnar sent frá sér mótmæli gegn þessum meintu flutningum. Hið rétta er að engar slíkar heimildir hafa verið veittar. Aftur á móti er það rétt að á vegum íslenskra flugfélaga eru af og til flutt vopn eða önnur hergögn á milli staða. Á vefmiðlinum smugan.is er ég ...
22. Febrúar 2011
ER ŢJÓĐIN TRAUSTSINS VERĐ?

Furðulegar yfirlýsingar berast frá Alþingi um að þingmenn treysti þjóðinni eða treysti henni ekki. Þetta er fullkomlega óinteressant. Í mínum huga kemur þjóðinni ekkert við hvort einstakir þingmenn treysta henni eða ekki. ...Þingmenn mega aldrei gleyma því að þeir eru fyrst og fremst starfsmenn þjóðarinnar - handlangarar en ekki handhafar valds án skilyrða....En þeir sem harðast tala gegn þessari skipan spyrji sjálfa sig: Var það til ills að vísa Icesave til þjóðarinnar í byrjun árs 2010 með hliðsjón af viðhorfum í þjóðfélaginu þá og hvernig málið stórbatnaði í kjölfarið? ... Vandinn á Íslandi í aðdraganda hrunsins var sá að stöðugt var verið að þröngva upp á þjóðina lausnum og niðurstöðum, án umræðu og án þess að þjóðin væri spurð leyfis ... Þá er ýmislegt brýnna en að þrengja að málskotsrétti forseta Íslands...
19. Febrúar 2011
RÉTTUR TIL VATNS OFAR EIGNARRÉTTI

...Auðvitað er það fásinna að einstaklingur geti átt - prívat og persónulega - dýrmætar auðlindir á borð við Gvendarbrunnana, eða vatn undan Ingólfsfjalli, Esjunni eða Snæfellsjökli. Slík hugsun er nánast eins fráleit og þrælahald var á sínum tíma. Ef eignarrétturinn hefði verið algildur og óafturkræfur - eins og sumir tala um eignarrétt á vatni - þá sætu Bandaríkjamenn uppi með þrælahald. Þræll var jú eign húsbónda síns. En auðvitað hlaut skilningur manna á mannréttindum að ryðja þessum fáránleika úr vegi. Það mun einnig gerast með vatnið. Þess vegna þarf að setja í stjórnarskrá Íslands að...
16. Febrúar 2011
EIGNARRÉTTUR Á KOSTNAĐ MANNRÉTTINDA?

...Einkaeignarrétturinn á líka góða og áhrifamikla vini. Til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var upphaflega stofnað til að verja einkaeignarréttinn, ekki almannahagsmuni, og hefur AGS verið trúr hlutverki sínu einsog við þekkjum. Evrópusambandið hefur jafnt og þétt fært sig í þessa áttina ... Hinn 28. janúar efndu Mannréttindastofnun HÍ, lagadeild HR og Mannréttindaskrifstofa Íslands, í samstarfi við Evrópusambandið, til umræðu um svokallaða réttindaskrá ESB, sem er ætlað að treysta enn frekar mannréttindi þeirra sem innan sambandsins búa. Vakti ég þá máls á þessu sjónarhorni...
15. Febrúar 2011
Á FAGMENNSKA ERFITT UPPDRÁTTAR Á FJÖLMIĐLUM?

...Eyjan gerir því skóna að Ingimar Karl Helgason, fréttamaður á Stöð 2 hafi verið látinn gjalda skoðana sinna þegar honum var sagt upp störfum fyrir fáeinum dögum. Ég hef ekki heyrt Stöð 2 andmæla þessu. Ingimar Karl var eftir því sem ég best veit, vandaður fréttamaður sem kappkostaði að allar hliðar mála kæmu fram. .. Lára Hanna Einarsdóttir var látin hætta sem pistlahöfundur á RÚV. Skýrningin var ósannfærandi. Henni var gefið að sök að hafa birt pistla sína á vefritinu smugan.is! Lára Hanna er án efa einn kröftugasti þjóðfélagsrýnir sem fram hefur komið á vettvangi fjölmiðla í seinni tíð....
27. Janúar 2011
ÉG HVET ALLA AĐ KYNNA SÉR MÁLAVÖXTU!

...Ég leyfi mér að hvetja alla til að kynna sér þessi mál vel og þar með einnig úrskurð Hæstaréttar. Einhvers staðar sagði ég að mér þætti Hæstiréttur byggja úrskurð sinn á þröngri túlkun á lagabókstaf. Um þessi ummæli mín hef ég vaxandi efasemdir því mér sýnist úrskurður Hæstaréttar byggja á almennu mati en ekki þröngri lagatúlkun. Hef ég lýst undrun á úrskurði Hæsttaréttar og fært fyrir því rök með tilvísan í landslög. Það breytir því ekki að úrskurðinum ber að hlíta. Sá undarlegi skilningur var uppi hjá ýmsum sem tjáðu sig um málið á Alþingi í dag að ekki mætti finna að niðurstöðu Hæstaréttar og rökræða hana! Ef þessi skilningur yrði uppi værum við að fjarlægjast réttarríkið og réttinn til tjáningarfrelsis. Málefnalegri gagnrýni á úrskurð Hæstaréttar má ekki rugla saman við hitt að farið sé að úrskurðinum...
24. Janúar 2011
UM AĐFÖR AĐ HEILBRIGĐISKERFI, MAGMA OG FLEIRA

...Tilefnið af viðtalinu við Rúnar Vilhjálmsson er fréttaumfjöllun um tvö ný einkasjúkrahús sem nú eru í burðarliðnum, gamla hersjúkraúsið á Keflavíkurflugvelli, nú nýuppgert fyrir tilstilli fjárfestingarsjóðsins Kadeco og annað í Mosfellsbæ. Hér á síðunni hafa komið fram ströng varnaðarorð og hafa stjórnvöld verið sökuð um að standa ekki nógu vel valktina um almannahag...Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrgðisráðherra Framsóknarflokki, spyr í Morgunblaðsgrein hvort reykskynjari stjórnvalda sé ekki í lagi hvað snertir yfirvofandi hættu á einkavæðingu heilbrigðiskerfisins og að við þar með stefnum inn í tvöfalt kerfi. Þetta var gott og mjög þarft innlegg frá Ingibjörgu Pálmadóttur! Gott líka hjá Stöð 2 að sýna þessu máli áhuga nú síðustu daga. Það er mikilvægt að ...
22. Janúar 2011
Á KVEĐJUSTUND

"Hún átti því ekki sannleikann, en hitt þráði hún, að sannleikurinn mætti eiga hana og því var hans sífellt leitað." Þetta sagði séra Þórir svo réttilega í minningarorðum sínum og komst þannig að sjálfum kjarnanum í hugsun móður minnar. Ólafur B. Andrésson, orðaði þetta líka vel í minningargrein sinni þegar hann sagði að Guðrún Ö. Stephensen hefði ekki verið kona stórasannleika heldur hafi hún verið kona nálgana. Hún var hvorki kona kreddu né isma og þegar Björn Patrick frændi minn sagði hana hafa verið trúaða konu þá bætti hann við að aldrei minntist hann þess að hafa heyrt hana ræða trúmál. Hennar trú var trúin á hið góða og á...
18. Janúar 2011
STYRKJUM ÁS STYRKTARFÉLAG!

...Það er einmitt þetta síðastnefnda sem mig langar til að vekja athygli á, því á morgun klukkan 15 fer fram útför móður minnar, Guðrúnar Ö. Stephensen frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Það væri mjög kærkomið og í hennar anda að þeir sem vildu minnast hennar gerðu það með stuðningi við þá mikilvægu starfsemi sem fram fer á vegum Áss styrktarfélags. Á heimasíðu Áss styrktarfélags er reitur þar sem komast má inn á ...
18. Janúar 2011
MEINT TREGĐA INNANRÍKISRÁĐUNEYTISINS
14. Janúar 2011
AD HOMINEM

Á latínu er til hugtak sem margir eflaust þekkja, ad hominem eða argumentum ad hominem. Þetta er notað þegar rökræða beinist að persónu þess sem heldur fram málstað fremur en málstaðnum sjálfum. Í pistli hér á síðunni, Er verið að biðja um þögn? , fjallaði ég um fjölmiðla og tilhneigingu þeirra til að gera einmitt þetta, að beina athygli að málflytjanda en ekki málstað. Þótti mér þessi afstaða einkenna gagnrýnisleysi og yfriborðsmennsku sem var einkennandi í aðdraganda hrunsins. Sjálfur hef ég oft fengið að kynnast þessu. En viti menn, það sem helst hann varast vann, varð þó að koma yfir hann... Í umfjöllun minni vísaði ég máli mínu til ...
Frá lesendum
13. Maí 2012
HEIMILI EĐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLĆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
7. Maí 2012
FJÖLMIĐLAR SKOĐI
Jóhannes Gr. Jónsson
7. Maí 2012
VIĐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRĆĐU
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












