Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

31. Mars 2010

TUTTUGU ŢÚSUND ÁRSVERK VINNAST

Birtist í Fréttablaðinu 30.03.10.
Fréttabladid hausAtvinnuleysi er böl. Ég tek það því alvarlega þegar mér er borið á brýn að hafa stuðlað að auknu atvinnuleysi. Einmitt það gerir Magnús Orri Schram alþingismaður í skrifum sínum í Fréttablaðinu nýlega. Við sem stuðluðum að því að Icesave-samningarnir fóru inn í nýtt ferli, erum sögð hafa með frestun málalykta, valdið gríðarlegum kostnaði sem smám saman sé að koma í ljós: "Lægri laun, hærri vextir, miklu meiri niðurskurður, lægra gengi og a.m.k. 3.300 atvinnulausir er bara ein birtingarmynd þessa kostnaðar." Þetta fullyrðir Magnús Orri...

27. Mars 2010

EKKI EINN Á BÁTI

...Spyrja þarf hvort ekki sé  heppilegra að ná fram yfirlýstum  markmiðum með Endurhæfingarsjóði á hagkvæmari og réttlátari hátt með því að styrkja það sem fyrir er,með því að setja  meiri peninga í Grensás og Reykjalund og aðrar stofnanir sem sinna endurhæfingu. Sjúkra- og styrktarsjóðir verkalýðsfélaganna hafi síðan það hlutverk að styðja við bakið á einstaklingunum og veita kerfinu aðhald. Þeir eiga ekki að verða kerfið.  Baráttan um velferðina má ekki hafna í farvegi eiginhagsmuna. Árni Páll Árnason, félagsmálaráherra hefur lýst yfir áhyggjum yfir því að verið sé að koma á tvöföldu kerfi. Hann er ekki einn á báti. Ég hygg að hann fari hér fyrir meirihlutavilja í þjóðfélaginu.

25. Mars 2010

HVAR ER SÓMAKENNDIN PÁLL?


Árni Guðmundsson, háskólakennari og fyrrum æskulýðsfrömuður í Hafnarfirði, kom með ágæta ábendingu á heimasíðu sinni eftir að ég talaði fyrir frumvarpi mínu og Þuríðar Backmans um áfengisauglýsingar. Hann benti á að RÚV hefði slegið því upp að ég vildi banna áfengisauglýsingar þegar veruleikinn væri sá að þær væru bannaðar .... Í Ríkisútvarpinu er áfengissauglýsingabannið virt að vettugi nær daglega. Líka í Kastljósinu. Það er svolítið kindugt því Kastljósið hefur áður sýnt að það vill vera sérlega sómakært þegar áfengi er annars vegar. Um það gat ég sérstaklega í framsöguræðu minni og beindi þeirri spurningu til útvarpsstjóra hvar sómakenndin væri nú. Hvort ekki væri ráð að sýna hana í verki og framfylgja lögum sem kveða á um að áhorfendum sé hlíft við áreitni...

23. Mars 2010

EINKUNNAGJÖF INDRIĐA


Indriði H. Þorláksson, sem komið hefur að Icesave samningaviðræðunum, hefur nú hafið ritun greinaflokks á Smugunni (smugan.is) þar sem hann reifar sjónarmið sín. Fyrsta greinin hefur þegar birst og er hún harðorð í garð þeirra sem gagnrýnt hafa samningsferlið og fá þeir ofanígjöf af hans hálfu; taldir vera haldnir minnimáttarkennd, þjóðernishroka, heimsfrelsunaráráttu, kveinstöfum og vesældarþráhyggju svo eitthvað sé nefnt. Eins og þessi listi ber með sér er að finna í einkunnarbók Indriða H Þorlákssonar mergjuð hugtök og í sumum tilvikum skemmtileg nýyrði. Við því er ekkert að segja að ...

19. Mars 2010

GÖMLU FÖTIN KEISARANS?


...Htt er svo annað mál að íslenska peningakerfið hrundi með hrikalegum afleiðingum fyrir efnahagslífið í heild sinni. Mikilvægt er að menn sjái orsakasamhengið í réttu ljósi. Ég skal játa að fræðimenn við háskólana og pennaliprir talnaspekúlantar hafa stundum sett fram staðhæfingar um þetta málefni sem ég hef átt erfitt með að átta mig á. Ekki hef ég orðið var við mikla sjálfsgagnrýni á þessum bæjum og ekki  séð andæft staðhæfingum um að frestun á Icesave hafi leitt til taps upp á 75 milljarða á mánuði hverjum - 900 milljarða á ári! -  einsog einn hagspekingur hefur haldið fram...

16. Mars 2010

BÓNUSAR Í BÖNKUM: ĆTLA MENN EKKERT AĐ LĆRA?


Þjóðverjar hyggjast banna bónus greiðslur í bönkum og setja hámark á launagreiðslur í bönkum. Sarkozy Frakklandsforseti hefur látið banna bónusgreiðslur í bönkum sem hafa þurft á aðstoð ríkisins að halda. Meira að segja breskir íhaldsmenn hafa gagnrýnt hugmyndina um bónusgreiðslur í bönkum. Sumir telja að bónusgreiðslur séu grundvöllur spillingar í bankastarfsemi. Sannast sagna ætlaði ég ekki að trúa mínum eigin augum þegar  fréttir bárust af því að -bankarnir væru í þann veginn að koma á að nýju „bónuskerfi" innan sinna múra. Í gær ...

12. Mars 2010

ŢEGAR MENN RÍSA Á FĆTUR


...Gagnrýni forseta Íslands, nú síðast í garð Norðurlandanna, hefur hreyft við valdakerfinu á jákvæðan hátt og yfirlýsingar Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, nú síðustu dagana hafa verið úr munni manns sem stendur uppréttur...Það er svo okkar norðurslóðakarla og kvenna að velta því fyrir okkur af hverju það eru einmitt þjóðirnar í Færeyjum og Noregi sem standa með okkur og láta sig framtíð okkar varða. Fjárhagsstuðningur er vissulega mikilsverður en ekki er hin almenna velvild síðri. Hjálparhönd verður ekki metin til fjár þegar menn eru aðþrengdir og í nauðvörn. Höfum það...

11. Mars 2010

SMUGAN.IS: ÚR HRINGIĐU UMRĆĐUNNAR


Viðtal á smugan.is 10.03.10.
....Harðlínuafstaða og flokkspólitískir hagsmunir eru ekki lausnamiðaður kokteill. Hvað við getum beðið lengi, þá minni ég á að þrautseigja og úthald er það sem mestu máli skiptir til að ná árangri. Þarna eru gríðarlegir hagsmunir í húfi.  Tugir og hundruð milljarða hanga á spýtunni . Það er einsog sumir haldi að þetta sé fyrst og fremst  akademískt viðfangsefni sem komi veruleikanum nánast ekkert við, í besta falli laustengt við hann. Það vill hins vegar svo til að við erum að tala um nákvæmlega sömu krónurnar og menn í opinberri þjónustu taka upp úr launaumslaginu sínu. Því meira sem greitt er fyrir Icesave, þeim mun minna er til skiptanna í heilbrigðiskerfinu, skólunum og fyrir fatlaða. Stundum hef ég spurt sjálfan mig hvort ...

9. Mars 2010

METNAĐARLAUS?


Vefmiðillinn pressan.is vekur athygli á skrifum Karls Th. Birgissonar, ritstjóra tímaritsins Herðubreiðar um Icesave og aðkomu okkar nokkurra að því máli; fólks sem á það sammerkt að hafa viljað endurskoðun á þeim skilmálum sem Alþingi fékk undirritaða til umfjöllunar síðastliðið sumar. Við fáum ekki háa einkunn, erum sögð engar tillögur hafa haft fram að færa (sem er ósatt!), og það sem alvarlegra er, við erum sögð vilja „einangra landið" en þar með „kjósum" við „enn frekari samdrátt og atvinnuleysi, félagslegar hörmungar og veikingu velferðarþjónustunnar..."
Síðan talar ritstjórinn um meintan tilkostnað af töfinni á Icesave, nokkuð sem fróðlegt væri að ...

2. Mars 2010

SMUGUNNI ÓSKAĐ HEILLA


Vefmiðillinn www.smugan.is   hefur nú verið opnuð að nýju undir ritstjórn Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur. Hún er án nokkurs vafa einn kröftugasti fréttamaður landsins, býr yfir mikilli reynslu og nýtur virðingar í stétt fréttamanna. Til marks um það er að hún hefur verið kjörin til að vera í forsvari stéttarinnar sem formaður Blaðamannafélags Íslands. Lofar ráðning Þóru Kristínar góðu um framtíð Smugunnar.
Um fréttamiðil sinn segir Þóra Kristín m.a...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLĆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIĐ VONBRIGĐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGĐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓĐ KVEĐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta