Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

14. September 2009

NÚ HLUSTUM VIĐ Á LĆKNA


...Þetta var upphaf forsíðufréttar Morgunblaðsins síðastliðinn fimmtudag. Þar var einnig vitnað til upplýsinga frá Lýðheilsustöð m.a. um dauðsföll af völdum reykinga. Upp í hugann komu bílarnir tveir, sundurtættir hvor andspænis öðrum ofan á gámi eða einhveju slíku, sem blasa við sjónum þegar ekið er upp á Hellisheiðina. Stórum stöfum segir frá hve mörg dauðaslys hafi orðið í umferðinni það sem af er ári. Nú stendur talan í tíu. Yfirleittt endar talan á milli tuttugu og þrjátíu. Dauðatalan vegna reykinga er nokkru hærri. Hún er fjögur hundruð - 400  - yfir árið! Sigríður Ólína Haraldsdóttir segir í fyrrnefndri Morgunblaðsfrétt að oftar en ekki verði sjúklingar undrandi þegar þeim er greint frá því að...

13. September 2009

Í ANDA MÓĐUR THERESU?


Nú er ár liðið frá því bandaríska/fjölþjóðlega fjármálafyrirtækið Lehman Brothers varð gjaldþrota. Í snarhasti voru milljarðar fluttir frá London vestur um haf - til að bjarga verðmætum "heim". Í London var skrifstofum lokað og þúsundir misstu vinnu sína í höfuðborg Bretlands. Nokkrum dögum síðar hrundu útibú Landsbankans í Bretlandi - eða öllu heldur þeim var hrundið. Breska stjórnin ákvað að frysta allar eigur Landsbankans með hryðjuverkalögum. Hvers vegna hryðjuverkalög á Ísland ...

10. September 2009

AĐ VERĐSKULDA VÖLD


...Maður hefði ætlað nú eftir hrunið að slíkir aðilar temdu sér hógværð í málflutningi. Af viðtali við Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, í Sjónvarpsfréttum í kvöld að dæma, hafa þessir aðilar ekkert lært. Hannes var stóryrtur í garð ríkisstjórnarinnar fyrir "að draga lappirnar" í endurreisnarstarfinu. Á hvern hátt skyldu stjórnvöldin draga lappirnar að mati SA? Þau vilja ekki, að sögn aðstoðarframkvæmdastjórans, að stóriðjustefnunni verði áfram hrundið fram af sama offorsi og til þessa (með geigvænlegri skuldsetningu orkufyrirtækjanna), þau vilji ekki hleypa erlendum fjárfestum í orkuiðnaðinn og þau vilji ekki virkja Þjórsá! Allt þetta vill Hannes ólmur að gert verði í snarhasti. Álíka ólmur er hann - og félagar hans í atvinnurekendasambandinu - og þeir voru áður fyrr að...

6. September 2009

STIGLITZ Í SILFRINU


Í dag verður Joseph Stiglitz í Silfri Egils. Þetta þykir mér vera góð byrjun á vetrinum hjá Agli! Stiglitz fékk Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 2001. Hann er fyrrum aðalhagfræðingur Alþjóðabankans en nú prófessor við Columbiaháskóla í New York. Stiglitz var á sínum tíma einn helsti efnahagsráðgjafi Bills Clintons forseta Bandaríkjanna. Stiglitz er kunnur fyrir gagnrýna hugsun og hefur umfjöllun hans um stefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Aljþóðabankans í málefnum skuldsettra ríkja vakið athygli - þó ekki alltaf hrifningu ráðandi afla. Eitt er óhætt að fullyrða: Á Joseph Stiglitz er hlustað. Það verður og gert í ...

4. September 2009

SNÚUM VÖRN Í SÓKN


...Ekki svo að skilja að fyrr á tíð hafi heilbrigðisstarfsfólk ekki búið við miklu erfiðari aðstæður en nú. Það sem gerir hins vegar stöðuna verri núna er krafan um að vinda ofan af og draga saman. Það er erfitt. Ákvarðanir sem leiða til lakari þjónustu eða uppsagna eru - og eiga að vera - erfiðar. Verkefnið er hins vegar að reyna í lengstu lög að koma í veg fyrir að einmitt þetta gerist. Nú er það svo að ekkert kerfi er svo gott að það megi ekki bæta það og öll kerfi - þar á meðal heilbrigðiskerfið - eiga að vera í stöðugri endurskoðun. Orðið hagræðing er stundum - og reyndar oftast  - notað sem feluorð fyrir niðurskurð. Það á ekki að gera. Ef hins vegar hægt er að snúa niðurskurði yfir í...

3. September 2009

OECD, NIĐURSKURĐUR OG AĐILAR VINNUMARKAĐAR


...En það eru heilbrigðismálin sem standa mér næst. Þar lýsir OECD því yfir að hægt sé að skera niður um fimmtung án þess að skerða þjónustu! Við þurfum ekki annað en líta til Spánar til að finna fordæmi, segja skýrsluhöfundar. Það sem gera þurfi sé að opna kerfið betur fyrir einkavæðingu og taka upp notendagjöld í ríkari mæli. Á mannamáli þýðir þetta að hækka eigi sjúklingaskatta. Prófessor í hagfræði sagði í Spegli RÚV í kvöld að almennt væri andstaða gegn hugmyndum OECD innan heilbrigðiskerfisins. Þetta þótti mér afvegaleiðandi yfirlýsing ...Mér heyrðist ég heyra í fulltrúum aðlja vinnumarkaðar tjá sig um skýrsluna og að hagfræðingur ASÍ hafi andmælt hugmyndunum sem snúa að heilbrigðiskefinu. Fróðlegt verður að fylgjast með fulltrúum samtaka launafólks þegar næsta niðurskurðarhrina í anda OECD og AGS  byrjar í veflerðarkerfinu. Ekki hafa mér virst þeir bera mikinn kvíðboga fyrir niðurskurðinum til þessa og vísa ég þá í ...

1. September 2009

Í BESTA FALLI LÁNŢEGAR


Í gær var mér kynnt nýtt hugtak á íslenskri tungu: lánþegi. Kannski er hugtakið alls ekki nýtt. En í þeirri merkingu sem mér var kynnt orðið er það nýlunda. Alla vega ekki ýkja gamalt. Hugtakið í hinni nýju merkingu átti við þegar Landsbanki og Búnaðarbanki voru "seldir". Þá var lánað fyrir sölunni og það sem síðan á annað borð var greitt, var borgað með arðinum af hinum keypta banka. Nú stendur til að hópur fjármangara sem kalla sig Magma Energy, kaupi sig inn í orkugeirann á Reykjanesi. Fyrst í stað var því haldið fram að með þessum kaupum kæmi nýtt erlent fjármagn inn í landið. Nú kemur á daginn að ráðgert er að útborgun Magma sé aðeins 30% af kaupverðinu. Keypt er á hálfprís því svo lágt er krónan metin eins og sakir standa: 50% afsláttur þar. Þau 70% sem eftir standa eru lánuð!....

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta