Annađ
29. Ágúst 2009
SLAGURINN STENDUR UM AUĐLINDIR

...Frásögn Tolstoys af örlögum Fidji-búa er umhugsunarverð og gott innlegg í umræðu um hlutskipti Íslands og samskipti okkar þessa dagana við gömlu nýlenduveldin í Evrópusambandinu, Bretland og Holland. Bæði þessi ríki fóru með ótrúlegu ofbeldi, morðum, ránum og gripdeildum víðs vegar um heiminn á nítjándu öldinni og einnig þeirri tuttugustu. Á þeirri öld sem nú er runnin upp hafa þessi ríki, þó einkum Bretland verið reiðubúin að beita miskunnarlausu hervaldi til að tryggja kapitalistunum sínum yfirráð yfir auðlindum, nú síðast í Írak. Allt þetta er gott fyrir okkur að hafa í huga: Að slagurinn stendur um auðlindir og að einskis er svifist...
17. Ágúst 2009
HÁRRÉTT HJÁ ŢORLEIFI

...Í útvarpsviðtali í morgun sagði Þorleifur Gunnlaugsson að hvarvetna í heiminum þar sem orkugeirinn hefði verið einkavæddur hefði það leitt til fákeppni og hækkaðs orkuðverðs. Þetta er hárrétt. Hvers vegna í ósköpunum á þá að selja orkufyrirtækin frá okkur og það á gjafaprís? Var það vegna þess að reynslan af því að færa bankana í hendur einkaðilum hafi verið svo góð? Svo gott að láta þá í hendur kjölfestufjárfesta - muniði? Standa lög til þessa? Ef svo er þá þarf að breyta lögum sagði Þorleifur Gunnlaugsson. Gott Þorleifur - ég er í þínu liði. Ég held að þjóðin sé nánast öll í þínu liði. Það þarf að stöðva þetta rugl. Ég nota það orð af kurteisisástæðum. Þorleifur á...
17. Ágúst 2009
„ŢURFUM HREINA SAMVISKU"

Viðtal í helgarblaði DV 14.08.09
...Hluti af hruni undangenginna ára var fólginn í því að afdrifaríkar ákvarðanir voru oft teknar í snarhasti. Væri tekinn tími til ákvarðanatöku var talað um verkfælni og ákvarðanafælni. Útrásarvíkingunum var aftur á móti hampað fyrir að vera snöggir að komast að niðurstöðu. En flýtinum fylgir líka hugsunarleysi og skortur á fyrirhyggju. Ráðist var í fjárfestingar og skuldbindingar sem síðan stóðust ekki. Ég hef verið stjórnarmaður í lífeyrissjóði þar sem teknar voru afdrifaríkar ákvarðanir. Við reyndum að hafa allan vara á, leituðum upplýsinga og ráðgjafar og það henti á þeim bænum eins og öðrum að teknar voru ákvarðanir sem ekki reyndust skynsamlegar. Ég hef heitið sjálfum mér því að þegar ég tek ákvarðanir sem skuldbinda annað fólk leiti ég af mér allan vafa. Icesave-málið er ekkert venjulegt þingmál. Við erum að tala um skuldbindingar vegna bankahruns sem eru...
11. Ágúst 2009
UPPGJÖF FRÉTTABLAĐSINS
Birtist í Fréttablaðinu 10.08.
...En það krefst úthalds að gefast ekki upp, loka augunum; segja að við séum búin að fyrirgera öllum rétti okkar og verðum að leggja allt traust á AGS. Staðreyndin er sú að enn höfum við ekki gengist í ríkisábyrgðina þótt sumir hafi verið til þess albúnir að undirgangast hana án þess að gera minnstu tilraun til að kynna sér samninginn! Okkur ber skylda til að tryggja okkur eins vel og hægt er inn í framtíðina. Ef við leikum af okkur þá þurfum við að hafa styrk til að endurmeta stöðuna - svo lengi sem það er hægt....
...En það krefst úthalds að gefast ekki upp, loka augunum; segja að við séum búin að fyrirgera öllum rétti okkar og verðum að leggja allt traust á AGS. Staðreyndin er sú að enn höfum við ekki gengist í ríkisábyrgðina þótt sumir hafi verið til þess albúnir að undirgangast hana án þess að gera minnstu tilraun til að kynna sér samninginn! Okkur ber skylda til að tryggja okkur eins vel og hægt er inn í framtíðina. Ef við leikum af okkur þá þurfum við að hafa styrk til að endurmeta stöðuna - svo lengi sem það er hægt....
7. Ágúst 2009
63 - 0
...Fram hefur komið að sjálfur get ég ekki fellt mig við að veita ríkisábyrgð á Icesave á þeim forsendum sem fyrir liggja. Svo er enn. Hvort hægt er að setja fyrirvara við ríkisábyrgðina er nú til umræðu á Alþingi. Ég tek heilshugar þátt í þeirri umræðu og fagna því að fulltrúar allra stjórnmálaflokka hafa lýst vilja til að koma að þeirri vinnu. Saman eigum við síðan að ræða okkur að niðurstöðu. Inn í þá umræðu þarf að flétta ígrundað mat á því hversu hyggileg þessi fyrirvaraleið yfirleitt er. Að þessu verki á í engu að flana. Framtíðin er í húfi. Allt veltur á vönduðum vinnubrögðum. Ekki ætla ég að gera lítið úr stundarhagsmunum Íslendinga. En fyrst og fremst snýst þetta mál þó um framtíðina...
6. Ágúst 2009
BARINN ŢRĆLL Á RAUĐSMÝRI
Birtist í DV 05.08.09.
...En hvers vegna rifja upp hlutskipti Bjarts í Sumarhúsum? Jú, það gerir Jóhann Hauksson, blaðamaður, í grein í DV í síðustu viku. Að vísu er heimilsfang Bjarts ekki lengur Sumarhús heldur Grímshagi en það er heimilisfang undirritaðs. Grein Jóhanns heitir Bjartur í Grímshaga og fjallar um þá menn sem ekki átta sig á sínum vitjunartíma. Og nú sé ekki rétti tíminn að styggja alla góðu vinina okkar í Evrópusambandinu - því þar sé framtíðina að finna. Bjartur í Grímshaga átti sig greinilega ekki á þessu og...En ég tel jafnframt að Íslendingar eigi aðeins að undirgangast þá skilmála gagnvart öðrum ríkjum sem eru réttmætir og sem ætla má að við getum risið undir og staðið við. Annað er ómerkilegt og ekki sæmandi fullvalda þjóð með sjálfsvirðingu...
...En hvers vegna rifja upp hlutskipti Bjarts í Sumarhúsum? Jú, það gerir Jóhann Hauksson, blaðamaður, í grein í DV í síðustu viku. Að vísu er heimilsfang Bjarts ekki lengur Sumarhús heldur Grímshagi en það er heimilisfang undirritaðs. Grein Jóhanns heitir Bjartur í Grímshaga og fjallar um þá menn sem ekki átta sig á sínum vitjunartíma. Og nú sé ekki rétti tíminn að styggja alla góðu vinina okkar í Evrópusambandinu - því þar sé framtíðina að finna. Bjartur í Grímshaga átti sig greinilega ekki á þessu og...En ég tel jafnframt að Íslendingar eigi aðeins að undirgangast þá skilmála gagnvart öðrum ríkjum sem eru réttmætir og sem ætla má að við getum risið undir og staðið við. Annað er ómerkilegt og ekki sæmandi fullvalda þjóð með sjálfsvirðingu...
3. Ágúst 2009
DÓMSDAGUR?

.... fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, sagði í fréttum um helgina að "gjafaþjóðirnar" (donors) hikuðu við að rétta Íslendingum hjálparhönd vegna tregðu okkar að undirgangast Icesave skuldbindingarnar. Smám saman er það að renna upp fyrir "gjafaþjóðunum" að Alþingi mun ekki samþykkja Icesavedrögin án þess að settir verði fyrirvarar við þau. Ella yrðu þau að öllum líkindum felld. Í hverju er svo aðstoð hinna "gjöfulu" vinaþjóða fólgin? Ekki gefa þær okkur peninga svo mikið er víst. Aðstoðin er fólgin í því að lána Íslendingum fjármuni, samkvæmt forskrift AGS, sem nema rúmum 5 milljörðum Bandaríkjadala til að koma upp gjaldeyrisforða. Það er nokkuð vel í lagt fyrir rúmlega 300 þúsund manna þjóð. Ekki síst þegar litið er til þess að hreinn vaxtakostnaður af svo risavöxnum forða ... nemi að minnsta kosti 18 ,7 milljörðum króna árlega! Það þarf að skera talsvert niður á sjúkrahúsum Íslands til að ná þeirri upphæð...
3. Ágúst 2009
BURT MEĐ BANKALEYND

...Nú er komið á daginn hve ótrúlega ósvífnir þeir voru í viðskiptum sín í milli í harðsvíraðri samtryggingu og krossfjárfestingum; hvernig þeir skákuðu milljarðatugum til og frá á taflborði eiginhagsmuna; og hvernig þeir síðan undir það síðasta settu fjármuni í ríkisskuldabréf þegar þeim þótti hætta á að peningarnir væru ekki nægilega tryggir í bönkunum sem þeim - "kjölfestufjárfestunum" - höfðu verið fengnir í hendur af þáverandi stjórnvöldum. Hvers vegna ríkisskuldabréfum? Jú, ríkisskuldabréfin eru þar tryggilegast á ábyrgð okkar, almennings! Um hvað snýst slagurinn um bankaleynd núna? Hann snýst um rétt okkar - þessa sama almennings - til að sjá hvernig farið var með okkur. Þarf að segja meira? Þetta er siðleysi af hæstu gráðu. Ekki er nóg með að búið sé að setja bankana á hausinn heldur...
1. Ágúst 2009
LJÓSALAMPAR OG JOHN STUART MILL
Birtist í DV 31. 07. 2009
Almennt séð vil ég eins lítið af boðum og bönnum og mögulegt er að komast af með. Ég er nefnilega sammála þeirri grundvallarhugsun sem breski heimsspekingurinn John Stuart Mill setti fram í riti sínum Frelsinu, sem kom út á Bretlandi upp úr miðri 19. öldinni og hefur síðan verið fólki um heiminn allan góð lesning. Þar á meðal mér. Í Frelsinu segir á þann veg að enginn maður hafi rétt á því að hlutast til um málefni annars einstaklings nema að sýnt sé að sá einstaklingur skaði aðra með breytni sinni. Þetta er vinnureglan þótt útfærslan kunni að taka á sig ýmsar myndir. Þannig má spyrja hvenær maður skaði mann og hvenær ekki: Einstaklingur hefur rétt til að hlutast til um það að annar reyki ekki nærri honum því vitað er óbeinar reykingar eru skaðlegar. En þótt reykingar bitni mest á þeim sem reykir þá er það ekki bara hans prívatmál...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












