Annađ
29. Júlí 2009
SAMHELDNI SVEITANNA OG TORFI Á TORFALĆK
...Þarna hitti ég margan góðan frændann og frænkuna, og samstarfsfólk fyrr og nú. Torfi Jónsson var blár á litinn í pólitík, eins og blátt bindið á Sturlu Böðvarssyni, Pálma á Akri og fleirum góðum og gegnum íhaldsmönnum sem kvöddu sinn gamla samherja. En þarna var líka Framsókn og að sjálfsögðu VG með sjálfan Jón Bjarnason, þingmann kjördæmisins, ráðherra landbúnaðar og - með frænku okkar Torfa, eiginkonu sína, Ingibjörgu Sólveigu Kolka, sér við hönd. Svona er Ísland! Öll saman!! ...Nú þarf Ísland á samheldni að halda. Ekki hlýðinni ógagnrýninni samheldni heldur hnarrreistri og sjálfstæðri! Jarðarför við úfinn Húnaflóann í dag minnir á hve frjór jarðvegurinn er á Íslandi fyrir því að standa saman á þennan hátt. Samheldni íslensku sveitanna getur kennt okkur margt...
29. Júlí 2009
DÓMGREINDARSKORTUR
Birtist í Fréttablaðinu 28.07.09.
...Ef við Íslendingar komumst ekki út úr vandræðum okkar á eigin forsendum þá eigum við ekki framtíð sem sjálfstæð og fullvalda þjóð. Ég er hins vegar um það sannfærður að sem þjóð eigum við fram undan bjarta framtíð. En þá er líka grundvallaratriði að við látum ekki telja úr okkur kjarkinn. ...Leiðarahöfundur Fréttablaðsins er á öðru máli. Hann staðnæmist við heimasíðu mína með miklum meiningum. Á þessa sömu heimasíðu barst mér nýlega bréf þar sem sú hugmynd er reifuð að Íslendingar líti sér nær; horfi til samstarfs við Grænlendinga, Færeyinga, Skota og Norðmenn ...
28. Júlí 2009
UM SIĐFERĐI BRETA

...Vegna þessarar tregðu stjórnvalda hafa fjölmargir eftirlaunaþegar þurft að búa við mikla fátækt og stjórnvöld hagnast ennfremur á drætti þar sem margir rétthafar deyja á meðan beðið er. Siðferðislega er hegðun stjórnvalda ámælisverð, ekki síst sú ákvörðun að hlíta ekki dómsniðurstöðum. Siðferði Breta virðist því meira vera
til sýnis en brúks....
24. Júlí 2009
SAMNINGAR, DÓMSTÓLAR OG GREIN 11

...Í þessari tilskipunargrein felst að þar sem Ísland er ábyrgt fyrir tryggingakerfinu og ábyrgist þess vegna fyrstu greiðslurnar - lágmarksgreiðslurnar - þá beri Íslandi fyrstu fjármunirnir sem inn koma. Þetta virðist mér vera rökrétt og sanngjarnt. Eftir stendur að lögspekingar og aðrir spekingar deila um túlkun laganna. Hollendingar og Bretar segja að við höfum mismunað í þágu Íslendinga með neyðarlögunum frá því í október. Við bendum á að Bretar hafi mismunað í þágu eigin þegna með hryðjuverkalögunum og auk þess stórskaðað hagsmuni Íslands. Hvað gera menn þá í lýðræðislegu réttarríki? Menn eiga um tvennt að velja...Hvor kosturinn sem fyrir valinu verður - fyrirvarar Alþingis eða höfnun - mun ekki kæta gömlu nýlenduherrana í Hag og Lundúnum. Þeir eiga þá þann kost að ...
21. Júlí 2009
HRĆĐUMST EKKI HÓTANIR

...Ég hef styrkst í þessari afstöðu. Við sjáum það sífellt betur á hve ósvífinn hátt er sótt að íslenskum almenningi. Sífellt er gefið í skyn að allt verði betra eftir því sem við lútum lægra. Þetta er mikil villuhugsun. Þótt íslenskir fjármálamenn hafi farið illa að ráði sínu á þjóðin ekki að þurfa að vera á hnjánum. Við eigum ekki að hræðast hótanir og megum aldrei láta stjórnast af ótta og óðagoti, hvað þá að hið gamalkveðna, "þetta reddast" stýri för. Nú er þörf á raunsæi og yfirvegun þar sem hagsmunir almennings eru í fyrirrúmi....
19. Júlí 2009
... EN HANN HELDUR MEĐ ÍSLANDI
Er ekki undarlegt að ráðherra sem er á móti aðild að Evrópusambandinu komi að aðildarviðræðum við ESB í mikilvægum málaflokkum? Á þessa leið var spurningin sem Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fékk á sig í hádegsifréttum RÚV í dag. Tilefni fréttarinnar var stórundarlegt viðtal við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi formann Samfylkingarinnar, í sjónvarpsfréttum þar sem hún sagði að sérstaklega þyrfti að fylgjast með Jóni Bjarnasyni í viðræðum við ESB því hann væri andstæðingur aðildar! Jón Bjarnason sagði réttilega að fráleitt væri að ...
12. Júlí 2009
Á ALŢINGI FYRIR TÍU ÁRUM

...Oft hef ég heyrt sagt að enginn hafi séð þetta fyrir. Það er vissulega rétt að sennilega hefur enginn haft hugarflug til að sjá fyrir að hrunið yrði eins rosalegt og raun varð á. Hins vegar voru uppi varnaðarorð frá upphafi - allt frá þeim tíma þegar hringekjan var að fara í gang fyrir alvöru. Þessu til áréttingar rifja ég hér upp - nánast af handahófi - ræðu sem flutt var á Alþingi fyrir áratug þegar bankarnir voru hrifsaðir úr höndum þjóðarinnar til að fela þá í hendur svokölluðum "kjölfestufjárfestm." Á þessum tíma - fyrir áratug - var hringekjan að fara í gang fyrir alvöru. Á Alþingi var vísað til þess að þjóðin væri "...farin að fá á tilfinninguna að hún búi í spilavíti..." Þetta reyndist því miður meira en tilfinningin ein....
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












