Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

27. Júní 2009

ŢÖRF Á YFIRVEGUN


...Nú þurfum við að hugsa af yfirvegun. Ég trúi ekki öðru en að ná megi þverpólitískri samstöðu um framhaldið. Enginn má gefa sér fyrirfram niðurstöðuna. Eitt er víst: Við þurfum að leggjast í mikinn áróður fyrir Íslands hönd út í hinum stóra heimi. Við þurfum að segja að þjóðin sé reið og leið yfir því sem gerst hefur; að við viljum greiða það sem okkur ber; virða þjóðréttarlegar skuldbindingar okkar; fá aðstoð við að ná í fjármuni sem skotið hefur verið undan þannig að þeir sem misst hafa innistæður sínar fái þær greiddar. Við eigum einnig að segja að við ætlum að gæta að félagslegu réttlæti; að við ætlum ekki að láta sektarkennd þjóðarinnar snúast upp í þá andhverfu að reikningur vegna tapaðrar innstæðu í London eða Amsterdam verði sendur til innheimtu á göngudeildum Landspítala Íslands næstu áratugina...

26. Júní 2009

„HANN ER KOMMÚNISTI"


...Í fyrsta lagi kemur fram hjá fulltrúa Salt Investment að búið hafi verið "að ganga frá öllum endum" við fyrirtækið, þegar ég kom í heilbrigðisráðuneytið fyrr á þessu ári. Þetta eru athyglisverðar fréttir í ljósi þess að forveri minn í embætti þrætti jafnan fyrir að þessi hefði verið raunin. Það hefði enda verið umdeilanlegt ef ráðherra heilbrigðismála, sem óbeint er tengdur eigendum Bláa lónsins hefði verið að skipuleggja heilbrigðisstarfsemi á vegum fyrirtækis sem Lónið er hluthafi í. Hitt sem er til umhugsunar er hverja kynningu ég hef fengið hjá umboðsmönnum Otto Nordhus, sem Morgunblaðið segir norskan stofnanda "einkarekna heilbrigiðfyrirtækisins Nordhus Medical." Þetta fyrirtæki er að hasla sér völl í viðskiptum með heilbrigðisþjónustu...

24. Júní 2009

HĆĐST AĐ LÝĐRĆĐINU


Ekki held ég að á annað hundrað starfsmenn stofnana heilbrigðisráðuneytisins skrifi upp á boðskap Staksteina Morgunblaðsins í dag. Þar hæðist ritstjóri blaðsins að lýðræðislegum vinnubrögðum í heilbrigðisráðuneytinu við endurskipulaginngu og fjárlagagerð. Á fundinum voru frjóar og gjöfular umræður og ríkur vilji til að skoða starfsemi á vegum ráðuneytisins á gagnrýninn hátt með það fyrir augum að stuðla að markvissari vinnubrögðum og sem bestri nýtingu fjármuna. Allir vildu gagnsæ og lýðræðilsega vinnubrögð. Ekki tilskipunaraðferðafræði...Menn vita sem er að það vinnulag hefur ekki bara skilað okkur efnahagshruni. Í opinberri stjórnsýslu hefur uppskeran verið óánægja og árangursleysi. Líka við fjárlagagerð, gagnstætt því sem Morgunblaðið ætlar. Þannig skilar Sjálfstæðisflokkurinn...

21. Júní 2009

Í BOĐI BSRB


...Að þessu sinni er það Ingiberg Magnússon sem sýnir verk sín. Þóra Einarsdóttir, óperusöngkona, söng sig inn í hjörtu allra viðstaddra við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Þær voru klappaðar upp og fengu mikið lof. Það gerði líka Einar Már Guðmundsson, rithöfundur sem fór á kostum, mælti ljóð af munni fram, las úr verkum sínum, og talaði við samkomugestina. Í næstu viku kemur út ný bók eftir Einar Má sem heitir Hvítbók. Mér kæmi ekki á óvart að flestir viðstaddra hafi hugsað til þess að ná í hana volga ... Að lokinni dagskrá bauð BSRB upp á veitingar sem voru listilega framreiddar af Stefaníu Óttarsdóttur...

19. Júní 2009

MENNING Í MUNAĐARNESI


Laugardaginn 20. júní  verður efnt til hefðbundinnar Menningarhátíðar BSRB í Munaðarnesi. Tilefnið er opnun málverkasýningar Ingibergs Magnússonar. Við opnunina mun Einar Már Guðmundsson, rithöfundur,  lesa úr verkum sínum og Þóra Einarsdóttir, óperusöngkona syngur við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Mér hlotnast sá heiður að stýra hátíðinni  sem venju samkvæmt hefst  klukkan 14 og stendur í um klukkustund en þá er boðið upp á veitingar. Allir eru velkomnir og er ...

17. Júní 2009

FULLVELDIĐ, LÝĐRĆĐIĐ OG FRELSIĐ


Ég óska lesendum síðunnar gleðilegrar þjóðhátíðar. Megi dagurinn verða okkur tilefni til að íhuga allt það góða og jákvæða sem við sem þjóð höfum fengið áorkað. Íslendingar búa yfir frjóum og gjöfulum meninngararfi. Við skulum leggja rækt við hann sem aldrei fyrr því menningin eflir með okkur samstöðu og baráttuþrek; viljann til framfara.
Á síðustu öld byggðum við upp grunn að öflugu velferðarsamfélagi á Íslandi. Þann grunn þarf nú að verja. Það gerum við aðeins í sameiningu. Til þess þurfum við að geta ráðið ráðum okkar sjálf. Við þurfum sjálfstæði til ákvarðana og athafna. Það er kjarni fullveldisins. Nú er vegið að fullveldi Íslendinga. Við ráðum okkur sjálf aðeins að takmörkuðu leyti....

12. Júní 2009

MEĐ ŢJÓĐARHAG AĐ LEIĐARLJÓSI


Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins "sömdu" okkur út í hafsauga í Icesave deilunni síðastliðið haust. Ýmsir lögfræðingar og þjóðréttarfræðingar hafa alla tíð sagt að ekki hafi verið um eiginlegan samning að ræða heldur yfirlýsingu sem þvinguð var fram á upplausnarstundu - auk þess sem hún byggði ekki á lýðræðislegum vilja. Síðan hefur verið reynt að ná betri niðurstöðu. Slík niðurstaða er nú til umræðu á Alþingi og í þjóðfélaginu. Ekki er vitað hvaða afstöðu Sjálfstæðismenn á Alþingi koma nú til með að taka. Ég geri ekki kröfu til þess að þingmenn Sjálfstæðisflokksins máti sig við sínar fyrri gjörðir þótt óneitanlega væri trúverðugt að þeirra væri minnst í málflutningi. Reyndar geri ég enga kröfu á Sjálfstæðismenn sem eina hjörð. Nú ber einmitt hverjum og einum, sjálfum, að taka afstöðu til þessa máls á grundvelli mjög vel ígrundaðra raka. Hrunið byggði á hjarðhugsun. Hún reyndist vera leið til glötunar. Nú er þjóðarhagur í húfi. Menn hafa spurt hvort ...

8. Júní 2009

Á SEĐLABANKINN AĐ ŢJÓNA FÓLKI EĐA FJÁRMAGNI?


...Hvað á Sigríður Ingibjörg Ingadóttir við? Telur hún að samhengi sé á milli þess að draga úr útgjöldum til Landspítala og að lækka stýrivexti? Fróðlegt væri að fá á þessu nánari skýringu. Einnig hvað hún á við þegar hún stillir upp sem andstæðum "faglegum" og "pólitískum"  forsendum fyrir vaxtaákvörðunum: "Við getum vissulega haft okkar skoðanir á þeim ákvörðunum sem teknar eru í Seðlabankanum en það er einnig mikilvægt að þær ákvarðanir séu teknar á faglegum forsendum en ekki pólitískum. .."Þarf þingkona Samfylkingarinnar ekki að skýra nánar fyrir skuldsettum heimilum og fyrirtækjum, sem ramba á barmi gjaldþrots, hvað hún á við?
Bjarni Benediktsson
, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur uppi sam konar málflutning og segir mig sem ráðherra þurfa að þola ...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta