Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

25. Apríl 2009

ÖRLAGARÍKAR KOSNINGAR

Birtist í Mosfellingi
Hinn 25. apríl næstkomandi ganga Íslendingar til Alþingiskosninga sem ég tel vera einhverjar hinar örlagaríkustu í sögu lýðveldisins. Þær snúast um endurreisn Íslands. Á hvaða grunni viljum við reisa efnahags- og fjármálakerfið við, hvernig viljum við bera okkur að í vörn og sókn fyrir velferðarþjónustuna og hvernig ætlum við að ráðstafa náttúruauðlindum okkar? Flestir þekkja áherslur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um blandað hagkerfi sem byggir á fjölbreytni, jöfnuði og sanngirni við skiptingu verðmæta, eignarhaldi þjóðarinnar á auðlindum til lands og sjávar og varfærni í umgengni við móður jörð. Nú ríður á að við ...

24. Apríl 2009

UM MIKILVĆGI MENNINGAR


Friðrik Rafnsson
, þýðandi, skrifaði í gær greinina sem ég tel einna mikilvægasta fyrir þessar kosningar. Hún hét Menningin er kjölfestan og birtist í Fréttablaðinu. Boðskapur Friðriks er af svipuðum toga og boðskapur Ólafs Kvaran, fyrrum Listasafnsforstjóra og lisfræðings, fyrir síðustu Alþingiskosningar. Sjálfur hef ég reynt að halda uppi málflutningi af þessu tagi og gleður það jafna hjarta mitt að heyra tekið í þessa strengi. Grein Friðriks í Fréttablaðinu í gær segir það sem segja þarf....

24. Apríl 2009

HEILSUGĆSLAN VERĐI KJÖLFESTAN

Birtist í Fjarðarpóstinum
...Ég er nefnilega þeirra skoðunar að heilsugæslan eigi að vera kjölfestan í heilbrigðiskerfinu sem aðrir þættir þess hvíli á. Það kallar á aðra forgangsröðun en fylgt hefur verið til þessa. En framar öllu þarf að standa þá vakt sem þjóðin ætlast til af stjórnvöldum: Að verja heilbrigðiskerfið afleiðingum fjármálahrunsins sem framast má vera og tryggja að grunnurinn verði til staðar til að byggja á nýja framfarasókn....

23. Apríl 2009

ÍSLAND ER HÁLENDI HUGANS!


Sumardaginn fyrsta fer ég ævinlega í Skátamessu í Hallgrímskirkju. Þetta er hluti af hefðinni í mínu lífi á þessum degi. Í bland geri ég þetta í minningu föður míns, Jónasar B. Jónssonar, sem ...var mikill áhugamaður um æskulýðsstarf... Ræðu dagsins í Skátamessunni að þessu sinni flutti listakonan  María Ellingsen. Henni mæltist sérlega vel. Sótti efniviðinn víða, til ljóða Jónasar Hallgrímssonar og í speki suður í álfur, gott ef ekki var til Afríku þar sem spekingur hafði sagt að við værum líkleg til þess "að varðveita það sem við elskuðum; elskuðum það sem við þekktum og þekktum það sem okkur væri kennt." Boðskapurinn var augljós...

22. Apríl 2009

ŢAKKLÁTUR LĆKNUM

Birtist í Fréttablaðinu 21.04.09.
.Fréttabladid haus.. Á stuttum ferli mínum sem heilbrigðisráðherra hef ég átt ótal fundi á heilbrigðisstofnunum, með starfsfólki og stjórnendum, með trúnaðarmönnum stéttarfélaga innan BHM, ASÍ, BSRB og Læknafélags Íslands. Ég hef hlustað eftir sjónarmiðum og komið mínum eigin á framfæri; viðrað þá skoðun að æskilegt væri að umræða um framtíðina væri eins laustengd amstrinu í augnabliki samtímans og kostur er, fjarri kjarasamningum og hagsmunatengdri baráttu enda ættum við að nálgast viðfangsefnið með langtímahagsmuni samfélagsins alls í huga. Slíkan...

21. Apríl 2009

VELVILJAĐUR HALLDÓR

Birtist í Morgunblaðinu 20.04.09.
MBL  - Logo...Hann ætti að hafa meiri áhyggjur af þeirri arfleifð sem Sjálfstæðisflokkurinn skilar okkur eftir 18 ára valdaferil: Himinháar skuldir, bankahrun, vaxtaokur og óðaverðbólgu. Út úr „góðærinu" skilar Sjálfstæðisflokkurinn okkur heilbrigðiskerfi með tveggja milljarða skuldahala og niðurskurði upp á tæpa sjö milljarða á þessu ári.
Annars óska ég Halldóri Blöndal til hamingju með 80 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins hinn 25. maí nk. og vona að sjálfur eldist hann betur.

19. Apríl 2009

KJARAJÖFNUN ER KJARABÓT

Birtist í Morgunblaðinu 18.04.09.
MBL  - Logo...Peninganefnd Seðlabankans hefur ekki getað skýrt þá ákvörðun sína að viðhalda 15,5% stýrivöxtum. Vaxtaokrið hefur verið nefnt „tilvonandi fortíðarvandi" Þetta er umhugsunarverð áminning....Talað hefur verið um að færa höfuðstól skuldara niður um tiltekið hlutfall, einnig um tiltekna krónutölu. Að mínu mati þarf að þróa þessa hugsun áfram ...Um þær aðferðir þarf að mynda þjóðarsátt. Í þessu sambandi eru áform ríkisstjórnarinnar tvíþætt: a) að stöðva uppboð og árásir á skuldara og b) nota andrúmið til að þróa aðferðir til að létta byrðarnar með sanngjörnum hætti...

18. Apríl 2009

FRÁBĆRT FRAMLAG TANNLĆKNA


Um það bil 25 tannlæknar og tanntæknar ásamt tannlæknanemum hafa gefið vinnu sína tvær helgar í röð í þágu barna og unglinga sem þurfa á tannlækningum að halda...Ingibjörg S. Benediktsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands, sagði mér að hún væri því sammála að líta eigi á tannlækningar eins og hverjar aðrar lækningar. Hún sagði að 60 börn hefðu komist að í þetta skiptið ... Mér þótti athyglisvert í máli Ingibjargar að hún benti á að tannskemmdirnar hefðu ekkert með októberhrunið að gera - þær kæmu út úr "góðærinu". Þá hefðu meira að segja verið lækkaðir skattar á gos og sælgæti eins og til að kæta Karíus og Baktus!...

16. Apríl 2009

NÚ ŢARF AĐ BRETTA UPP ERMAR

Birtist í Morgunblaðinu 15.08.09.
MBL  - Logo...Hugurinn reikar til liðinna ára, til harðvítugra deilna um markaðsvæðingu sjávarauðlindarinnar, bankanna, einkavæðingu heita vatnsins og hvernig okkur tókst að koma í veg fyrir að kalda vatnið færi sömu leið. Nú dugir hins vegar ekki að horfa til baka heldur fram á veginn. Brýnasta krafa samtímans er að tryggja eignarhald þjóðarinnar á auðlindunum, öllum auðlindum sem eru eðli máls samkvæmt sameign íslensku þjóðarinnar. Andstaða Sjálfstæðisflokksins við slíkar fyrirætlanir hlýtur að vekja athygli kjósenda í komandi Alþingiskosningum. Flokkurinn hefur greinilega ekkert lært og virðist staðráðinn í því að halda áfram á sömu braut.
Tal hans um skatta og niðurskurð eru af sama meiði. ...

15. Apríl 2009

ÁRNI, MATTHÍAS OG SIGURĐUR GÍSLI


...Yfirsýn þeirra félaga, sögulegar skírskotanir, upprifjun þeirra á tilteknum þáttum úr þjóðlífinu, menningin og meiningarmunurinn. Það var upplýsandi að hlusta á blaðamennina og athyglisvert að merkja hve kurteisir þeir voru, en ákafir...Hvað varð til þess að við hættum að hlusta á svona menn og háakta þá? Var það kannski þegar við slepptum kúltúrlausu peningaliði inn í sparibauka landsmanna, án barnfóstru? ... Þetta var ekki strengurinn sem leikið var á í Krossgötum og þetta var ekki þráðurinn sem spunninn var í frábæru viðtali í Fréttablaðinu á dögunum þar sem rætt var við Sigurð Gísla Pálmason um ekki ólík mál ...

12. Apríl 2009

ARFLEIFĐ ANDRÉSAR

Andres Bjornsson...Við skulum aldrei vanmeta menningarlegt hlutverk Ríkisútvarpsins. Þegar þjóð lendir í þrengingum eins og við höfum nú gert, þá er gott að eiga traustan menningararf að styðjast við. Menningin er aldrei mikilvægari en á slíkum stundum. Menning og bókvit veitir gleði og ánægju,  eflir sjálfstraust og þor og verður í askana látið!
Við eigum útvarpssnillingum á borð við Ævar Kjartansson mikið að þakka, mönnum sem halda loganum stöðugt vakandi. Forvera hans ýmsa, lífs og liðna, hefur mátt heyra í dagskrá Gufunnar yfir páskana. Það hefur yljað um hjartarætur. Megi stjórnendur Ríkisútvarpsins jafnan vera meðvitaðir um menningarlega ábyrgð sína. Á útvarpsstjórastóli hafa setið margir mætir menn, sem risið hafa undir sinni ábyrgð. Sumir þeirra hafa verið í senn verkstjórar og átt sjálfir hlutdeild í menningarlegu framlagi Ríkisútvarpsins. Þar kemur nafn Andrésar Björnssonar upp í hugann. Hann var ...

11. Apríl 2009

LYFJARISAR KĆRA OKKUR TIL BRUSSEL


...Annars er hugtakið fyrirtæki harla hógvært hugtak þegar haft er í huga að um er að ræða lyfjaauðhringi heimsins! Kannski ekki von að þau hafi hugann við þrengingar Íslendinga eða sýni því áhuga að taka þátt í þjóðarátaki til endurreisnar efnahagslífsins. Íslenskir umboðsaðilar gætu alla vega reynt að sýna lit í stað þess að hlaupa með kærumál á hendur þjóðinni suður til Brussel. Þar er helst að finna skjól fyrir bisnissfyrirtækin þegar lýðræðið sækir að þeim....

9. Apríl 2009

LYFJARISAR Í MÁL GEGN ŢJÓĐINNI

Birtist í DV 08.04.09.
.DV..En þótt almennt sé tekið undir sameiginlegt sparnaðarátak þjóðarinnar er það eins og í öðru að undantekningin sannar regluna. Hver skyldi það nú vera sem ekki vill vera með? Jú, það eru fulltrúar öflugustu lyfjafyrirtækja heimsins sem sýna fram á það með gjörðum sínum að þeim komi efnahagsþrengingar Íslendinga ekkert við. Það er nefnilega þannig að samtök stóru lyfjafyrirtækjanna sem flytja inn lyf til Íslands hafa nú kært íslenska ríkið fyrir ESA sem hefur það hlutverk að fylgjast með því að ekki sé brotið gegn heilagri ritningu markaðslögmála innan Evrópusambandsins. Er þetta hægt? Kannski lagalega en réttlætiskennd flestra okkar hlýtur að mæla gegn þessu háttalagi...

8. Apríl 2009

VÁLEGIR ATBURĐIR OG HLUTVERK HEILBRIGĐISŢJÓNUSTUNNAR: ALŢJÓĐAHEILBRIGĐISDAGURINN 7. APRÍL

Birtist í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 07.04.09.
Afar öflugur jarðskjálfti, 6,1 stig á Richter, skók Suðurland í maí á síðasta ári. Töluverðar skemmdir urðu á þeim svæðum sem næst lágu skjálftaupptökunum. Lítilsháttar skemmdir urðu á Sjúkrahússins á Selfossi og var það rýmt að hluta. Eftir skoðun kom í ljós að engar skemmdur voru á burðarþoli byggingarinnar og var því hægt að halda uppi eðlilegri starfsemi á sjúkrahúsinu...

8. Apríl 2009

SAMRĆĐA OG SAMSTARF TIL ÁRANGURS


...Með þessa hugsun að leiðarljósi  hafa fundirnir verið, sem efnt hefur verið til um allt land að undanförnu með heilbrigðisstarfsfólki, einstökum starfsstéttum, trúnaðarmönnum, stjórnenduum heilbrigðisstofnana, sveitarstjórnarmönnum og nú síðast með þverfaglegri umræðu allra heilbrigðisstétta um hvað betur megi fara í heilbrigðiskerfinu.Í hógværð heimasíðu Heilbrigðisráðuneytisins segir að 150 manns hafi sótt fundinn en ég leyfi mér að halda því fram að fjöldinn hafi verið ívið meiri.Vinnudagurinn heppnaðist með ágætum og heyrðist mér ...

7. Apríl 2009

HÖFĐINGLEGT BOĐ Á HRAFNISTU


...Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarfomaður, og gamall samstarfsfélagi minn - og í mörgum efnum baráttubróðir - á Alþingi sagði, þegar hann bauð til hádegisverðarborðs að ég fengi kótellettur í raspi og brúnaðar kartöflur með öllu tilheyrandi. Þetta væri „þjóðréttur Hrafnistu" og aðeins boðið höfðingjum. Rétturinn væri að sjálfsögfðu reglulega á borðum heimilsfastra, sem var hans máti að segja mér frá því að á Hrafnistu væri litið á alla sem þar byggju sem höfðingja! ...Á laugardag sótti ég síðan þriggja tíma fund með samtökunum Heilaheill. Rætt var um málefni sem snerta félagsmenn og stofnanir sem þeim þjóna, þar á meðal Grensásdeild Landspítalans. Ég fékk margar ...

6. Apríl 2009

SILFUR EGILS FÉKK GULL Í DAG


...Í dag voru síðan mættir í Silfrið tveir valinkunnir Bandaríkjamenn sem vara okkur við Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og minna á að hann er fyrst og fremst varðhundur auðvaldsins. Hárrétt. Þetta eru annars vegar Michael Hudson, fræðimaður og ráðgjafi Bandaríkjastjórnar í ýmsum málefnum en hann vinnur nú að endurskoðun á bandarísku skattalöggjöfinni. Hinn er John Perkins, höfundur Confessions of an Economic Hit Man og The Secret History of the American Empire. John Perkins þekkir af eigin raun ofbeldi auðvaldsins því hann hefur sjálfur reynslu af því að vinna fyrir alþjóðlegt fjármálafyrirtæki sem sannfærði fátækar þróunarþjóðir til að skuldsetja sig svo hægt væri síðar að hafa af þeim eignir þeirra...Aldrei hefur verið eins mikilvægt að halda þjóðareign á auðlindum okkar. Það var og kjarninn í boðskap þessara tveggja gesta okkar...

5. Apríl 2009

HEILAHEILL TIL HEILLA


Í gær sótti ég  þriggja tíma fund með samtökunum Heilaheill. Rætt var um málefni sem snerta félagsmenn og stofnanir sem þeim þjóna, þar á meðal Grensásdeild Landspítalans. Ég fékk margar mjög gagnlegar ábendingar á þessum fundi og vona að ég hafi einnig getað miðlað einhverju til fundarmanna sem ekki voru einvörðungu úr Hjartaheill heldur líka öðrum samtökum sem eru áshuga- og hagsmunatengd málefninu. Þórir Steingrímsson, félagi minn úr verkalýðssstarfi til margra ára veitir samtökunum forystu. Hér má ...

4. Apríl 2009

HÉĐINN OG SAMVINNAN

...Mest hafði ég þó gaman af veganestinu, eða hugarfóstrinu eins og samstarfsmaður minn í Heilbrigðisráðuneyti, Héðinn Unnsteinsson, kallaði það. Hann fékk mér í hendur nokkar línur á blaði áður en ég gekk að hátalara til að ávarpa samkomuna. Þar stakk Héðinn upp á því að skólanemar hugleiddu ritgerðarefni með því sem hann taldi verða meginþema komandi tíma. Þar yrði áherslan á að við hjálpuðum hvert öðru og yrði forskeytið SAM án efa fyrirferðamikið í orðaforða okkar næstu árin: Sam-vinna, sam-félag, sam-ábyrgð, sam-an, sam-staða, sam-ráð og nú væri að hefjast sam-keppni! Jafnvel samkeppni yrði með áherslunni á að gera hlutina saman. Skyldi þó ekki ...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLĆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIĐ VONBRIGĐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGĐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓĐ KVEĐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta